Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 ✝ Valborg SoffíaBöðvarsdóttir fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1933. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 19. febrúar 2018. Foreldrar Val- borgar Soffíu voru Böðvar Stephensen Bjarnason, f. 1.10. 1904, d. 27.10. 1986, húsasmíða- meistari, og kona hans, Ragn- hildur Dagbjört Jónsdóttir, f. 31.3. 1904, d. 23.7. 1993, hús- móðir. Systkini Valborgar Soffíu eru Jón Böðvarsson, f. 2.5. 1930, d. 4.4. 2010, kennari, skólastjóri, rithöfundur, skáld og fræðimað- ur. Vilhelmína Sigríður Böðv- arsdóttir, f. 13.6. 1932, d. 29.6. 2007, húsfreyja, verkakona og verslunarstúlka, Bjarni Böðv- arsson, f. 13.11. 1934, d. 27.12. 2013, húsasmíðameistari, Böðv- ar Böðvarsson, f. 23.6. 1936, d. 9.3. 2014, húsasmíðameistari. Sigmundur Böðvarsson, f. 29.9. 1937, lögfræðingur, búsettur í Reykjavík. Hálfsystur Val- borgar eru tvíburasysturnar Al- berta Guðrún Böðvarsdóttir og Guðný Þóra Böðvarsdóttir, f. 19.6. 1942. Valborg Soffía gifti sig 1.10. 12.12. 1961, kennari við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, bú- settur í Reykjavík. Eiginkona Ragnars er Marjorie Nivin Mota Arce, f. 28.7. 1973. Börn Ragn- ars: a) Óðinn Snær, f. 29.1. 1993. b) Júlía Valborg, f. 22.9. 1996. Móðir Óðins og Júlíu er Hrafn- hildur Erna Reynisdóttir, f. 22.3. 1963. c) Jökull Benóný Ragnarsson, f. 9.3. 2005. Móðir Jökuls er Sólveig Bennýjar Haraldsdóttir, f. 2.4. 1970. Börn Marjorie og stjúpbörn Ragnars eru d) Juan Pablo Rosa Mota, f. 6.2. 1993, og e) Anna Margarita Ólafsdóttir, f. 15.11. 2007. Allir eru þeir bræður fæddir í Kópa- vogi. Valborg ólst upp í Skerja- firði, í Miðstræti 5 og Efstasundi 54. Eftir gagnfræðapróf fór hún í Fósturskólann og útskrifaðist 1953, síðan fór hún í Húsmæðra- skólann á Laugarvatni þar sem hún dvaldi 1954-1955. Veturinn 1983-1984 var hún í framhalds- deild Fósturskóla Íslands, 1. áfanga. Eftir það fór hún í menntaskóla og í nám í heimspekideild Háskóla Íslands. Einnig var hún eina önn í há- skólanum í Uppsala í Svíþjóð. Valborg starfaði við kennslu í leikskólum og grunnskólum, var leikskólastjóri og starfaði einnig með fötluðum á Kópa- vogsbraut 1, Safamýrarskóla og á Sólheimum í Grímsnesi. Einn- ig starfaði hún í Lækjarskóla í Hafnarfirði og Setbergsskóla. Útför Valborgar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 1. mars 2018, klukkan 13. 1955. Maður henn- ar er Magnús Júlíus Jósefsson, f. 7.7. 1930, en hann starfaði sem plötu- og ketilsmiður og sendiferðabílstjóri. Foreldrar hans voru Guðrún Magn- úsdóttir, f. 13.11. 1896, d. 14.7. 1976, og Jósef Jónasson, f. 20.2. 1896, d. 17.7. 1988. Þau voru bændur í Arnarfirði og síðustu árin sín bjuggu þau á Bíldudal. Börn Valborgar Soffíu og Magnúsar eru: 1) Böðvar Magn- ússon, f. 31.1. 1956, rafsuðu- maður, búsettur í Reykjavík. Börn Böðvars eru: a) Haukur Már, f. 22.2. 1979. Sonur Hauks er Aron Hugi, f. 24.8. 2000. b) Magnús Valur, f. 7.12. 1983. Dóttir Magnúsar er Þórdís Ósk, f. 17.4. 2008. c) Benjamín Hrafn, f. 16.1. 1986. Kona Benjamíns er Birna Sif Morthens, f. 1981. Sonur þeirra er Daníel Elí Benjamínsson, f. 19.10. 2015. d) Samúel Örn, f. 16.11. 1992. Barnsmóðir Böðvars er Karitas Hrönn Hauksdóttir, f. 25.5. 1957. 2) Jósef Rúnar Magn- ússon, f. 22.3. 1957, húsasmíða- meistari, búsettur í Kópavogi. 3) Ragnar Sveinn Magnússon, f. Mamma. Þetta einstaka og fal- lega orð sem er þrungið ást og kærleik. Mamma mín var líka einstök kona, félagslynd, skemmtileg, skapgóð, hláturmild og ekkert feimin við að gera grín að sjálfri sér. Það sem mér fannst sjálfsagt í æsku, hugsa ég oft um nú. Hvernig fór mamma að þessu? Pabbi vann oft frá morgni til kvölds, mamma var líka útivinn- andi, sá svo um heimilið, sem var oft eins og félagsheimili. Þar voru haldin bridsmót og skákmót, far- ið í borðtennis á stofuborðinu, ýmiss konar borðspil spiluð og svo mætti lengi telja. Allir voru velkomnir. Svangir drengir klár- uðu heilu brauðin, kexpakkana, morgunkornið og ófáa mjólkur- lítrana. Þessu öllu tók mamma með bros á vör og spilaði við okkur kana, tremann, brids og ótal borðspil, stundum var teflt og svo var jú gítarinn dreginn fram og spilað og sungið. Mamma var reyndar ekki allt- af heima, hún var líka í alls konar félagsstarfi, sótti ótal námskeið og menntaði sig líka eftir að við bræðurnir komust á legg. Alzheimer er skelfilegur sjúk- dómur og það var erfitt að sjá hvernig minnið gaf sig smátt og smátt og persónuleikinn breytt- ist. Samt hélt mamma alltaf góða skapinu og hló oft bara með þeg- ar hún sá á viðbrögðum fólks að hún hefði sagt einhverja vitleysu. Þakklæti er mér efst í huga. Þó mamma væri oft mjög upptekin þá gaf hún sér alltaf tíma fyrir okkur bræðurna og hugsaði alltaf um það sem okkur var fyrir bestu. Ég er viss um að núna ertu bú- in að draga fram gítarinn og farin að spila og syngja og skemmta öllum þarna á himnum. Engum á eftir að leiðast þar eftir að þú ert komin. Kveðja, þinn sonur Ragnar Sveinn Magnússon (Raggi). Amma Valborg var einstök, hugulsöm og góð, og lagði sig fram við að láta fólkinu í kringum sig líða vel. Sannkölluð fyrirmynd og mikil lukka að hafa fengið að verja svona miklum tíma með henni. Hún var skapandi og gaf sér oft tíma til að föndra með mér og hvatti mig áfram til að rækta list- rænu hliðina. Minningar frá sumrum sem við fjölskyldan vörðum hjá henni og afa á Tálknafirði einkennast af sól, gleði og ró. Hvíldu í friði, amma mín. Kveðja, Júlía Valborg Ragnarsdóttir. Elsku amma, ég vil þakka þér fyrir það hve yndisleg þú varst. Þú varst alltaf uppáhaldsamma mín. Þú varst alltaf svo barngóð og þú elskaðir börn. Ég trúi því að Guð hafi gefið þér þá náðargjöf sem ekki mörgum er gefin og það er einstök þolinmæði, umburðar- lyndi og kærleikur til barna. Ég og bræður mínir, Haukur, Magnús og Samúel, elskuðum þig. Við elskuðum að koma til þín og afa í Breiðásinn þar sem okkur beið faðmlag, væntumþykja, Stöð 2, lazy-boy-sófasett, kexskúffan og kakóhristan. Þú varst alltaf til í að spila við okkur, ólsen-ólsen, veiðimann, manna eða vist. Það var alltaf eitthvað að gera fyrir okkur heima hjá ykkur og maður fékk að vera maður sjálfur, öruggur og hamingjusamur. Svona gæði eru ekki á hverju strái. Ég man hvað þú varst fé- lagslynd og þegar ég fór með þér í Kringluna þá virtist þú þekkja aðra hverja manneskju sem gekk þar um og þú fórst og talaðir við hana, þrátt fyrir litla þolinmæði undirritaðs á þeim tíma. Þú spil- aðir á gítar og varst fræg fyrir jóðlið þitt og varst alltaf með myndavélina á lofti og rauðeygðu myndirnar og hálfu hausarnir sem skarta margra ára safni myndaalbúma verða vel geymd og eru dýrmætur arfur sem þú lætur eftir þig. Þú varst svo stórkostleg, elsku amma mín, ég bara vildi óska þess að ég hefði getað sagt þér það núna þegar ég skrifa þessa minningargrein. Ég get aðeins beðið og vonað að almáttugur Guð komi þeim skilaboðum áleiðis. Þú varst kannski ekki stórefnuð kona í veraldlegum gæðum en þú varst ein ríkasta kona þegar kemur að hinum andlegu gæðum. „Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð eyðir … safnið yður heldur fjár- sjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð … því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ Það sést mjög skýrt þegar ævi þín er skoðuð að þú varst alger dýrlingur. Þú varst lítillát, hóg- vær, auðmjúk og algerlega þú sjálf. Þú leitaðist frekar við að hugga en að vera hugguð, elska frekar en að vera elskuð og gefa frekar en að vera gefið. Þú ert sönn hetja, elsku amma mín, og mér finnst leiðinlegt að þurfa kveðja þig, en við munum hittast aftur á himnum með Guði okkar almáttugum og eftir þeim endurfundum get ég varla beðið. Þangað til seinna, amma, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, ég elska þig. Þinn elskaði sonarsonur, Benjamín Hrafn. Valborg Soffía Böðvarsdóttir Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, VALGARÐS SIGMARSSONAR bifreiðastjóra, Sævangi 11, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir sendum við Eiríki Jónssyni, heimahlynningu, læknum og starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og hlýju. Einnig þökkum við félögum í Kiwanisklúbbnum Eldborg fyrir veittan stuðning. María Einarsdóttir Valgarð Már, Hafsteinn, Valdís, Viggó, Hugrún og fjölskyldur Smáauglýsingar Húsnæði óskast Leiguíbúð/herbergi óskast Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna vantar til leigu 3-4 herb. íbúð eða herbergi á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðin þarf að vera búin nauðsynlegum húsgögnum og heimilistækjum. Herbergin þurfa að vera búin húsgögnum og bjóða upp á aðgang að tækjum til þrifa, þvotta og eldunar. Leigutími er frá 15. apríl til 7. október 2018. Nánari upplýsingar í s: 569 6069/6000 og thi@os.is. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 www.frusigurlaug.is Frí póstsending Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Ný sending af sumar og strandfatnaði Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 www.frusigurlaug.is Frí póstsending Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Ný sending af sumar og strandfatnaði Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.