Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 71

Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 71
og kynningarmál, var bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði 2002-2012 og bæjarstjóri í Hafn- arfirði frá 2010-2012. Haustið 2012 var Guðmundur Rúnar ráðinn verkefnastjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun í Malaví, þar sem hann starfaði þar til sl. sumar. Undanfarna mánuði hefur hann sinnt margvíslegum verk- efnum á vegum ýmissa aðila. Guðmundur Rúnar var skáti á æsku- og unglingsárunum og sat í stjórn nemendafélaga og í stjórn SÍNE. Hann hóf snemma afskipti af stjórnmálum í Hafnarfirði, fyrst í Alþýðubandalaginu og síðan í Sam- fylkingunni í Hafnarfirði. Á árunum 1982-2012 gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum, í nefndum og ráð- um í tengslum við þátttökuna í sveitarstjórnarmálum. Helstu áherslur í þeim efnum hafa verið í tengslum við velferðarmál og for- varnir. Af öðrum áhugamálum má nefna lestur, einkum skáldverka. Hann hefur verið meðlimur í #1 Lilongwe Mens’ Book Club í Malaví, en þar voru lesnar bækur sem félagsmenn völdu, m.a. Sjálfstætt fólk, Himna- ríki og helvíti og nýlegt íslenskt smá- sagnasafn. Guðmundur Rúnar hlustar mikið á tónlist af flestu tagi, annað en popp- tónlist, en Frank Zappa hefur verið í miklu uppáhaldi hjá honum í næstum hálfa öld. Hann hefur gaman af ferðalögum, innanlands og utan, hef- ur t.d. farið þrívegis til Indlands. Fjölskyldan notaði gjarnan frítím- ann til ferðalaga á meðan á Afr- íkudvölinni stóð. Í þessum ferðum hefur hann tekið fjöldann allan af ljósmyndum. Hann tók um 50.000 myndir í Afríku, að hluta til vegna starfa sinna en að hluta til af eigin áhuga á því sem fyrir augu bar. Fjölskylda Eiginkona Guðmundar Rúnars er Ingibjörg Jónsdóttir, f. 26.4. 1959, fé- lagsfræðingur og verkefnastjóri. Hún er dóttir Jóns Bergssonar, f. 31.10. 1931, d. 25.4. 2015, verkfræð- ings í Hafnarfirði, og k.h., Þórdísar Steinunnar Sveinsdóttur, f. 25.5.1931, húsfreyju í Hafnarfirði.. Fyrri kona Guðmundar Rúnars er Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir, f. 26.11.1959, söngkona. Með Ingveldi á Guðmundur Rúnar soninn Ólaf Kolbein Guðmundsson, f. 27.2. 1978, píanóleikara og sjómann á Ísafirði en sambýliskona hans er Re- bekka Guðleifsdóttir og á hún tvo syni, Bjarka Frey Rebekkuson, f. 1998, og Hauk Smára Rebekkuson. f. 1999. Börn Guðmundar Rúnars og Ingi- bjargar eru Jón Steinar Guðmunds- son, f. 27.10. 1983, BA í heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði, búsett- ur í Reykjavík en sambýliskona:hans er Ása María H. Guðmundsdóttir, BA í heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði; Ágústa Mithila Guð- mundsdóttir, f. 19.11. 1998, mennta- skólanemi, búsett í Hafnarfirði; Þór- dís Timila Guðmundsdóttir, f. 18.10. 2000, menntaskólanemi, búsett í Hafnarfirði. Systir Guðmundar Rúnars er Guðný Árnadóttir, f. 18.1. 1955, frönskukennari og söngkona, búsett í Hafnarfirði Foreldrar Guðmundar Rúnars: Árni Bárður Guðmundsson, f. 3.8. 1925, f. 12.2. 2014, vélstjóri og skrif- stofumaður, lengst af í Hafnarfirði, og k.h., Ágústa V. Haraldsdóttir, f. 12.7. 1927, d. 16.7. 2013, starfsmaður í bókbandi, lengst af í Hafnarfirði. Guðmundur Rúnar Árnason Guðrún Björg Jónsdóttir húsfreyja í Vestdal Jón Eyjólfsson bóndi í Vestdal í Seyðisfirði Guðný Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, síðast í Kópavogi Karl Haraldur Gunnlaugsson skipasmiður, verkstjóri og síldarmatsmaður, síðast í Kópavogi Ágústa V. Haraldsdóttir starfsmaður í bókbandi, í Hafnarfirði Þuríður Bjarnadóttir húsfreyja, síðast á Akureyri Gunnlaugur Sigurðsson trésmiður á Svalbarðsströnd og Akureyri Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Eyri Guðmundur Arngrímsson bóndi á Eyri í Ingólfsfirði Guðrún Guðmundína Guðmundsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði Guðmundur Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður, síðast í Hafnarfirði Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, síðast í Bolungarvík Magnús Bárðarson bóndi í Kálfavík í Skötufirði Úr frændgarði Guðmundar Rúnars Árnasonar Árni Bárður Guðmundsson skrifstofumaður í Hafnarfirði Á Malavíárunum Guðmundur Rún- ar og Ingibjörg, eiginkona hans. ÍSLENDINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Vertu velkomin! ...til dæmis eldhúsinu, með litlum tilkostnaði. Eina sem þarf eru efni og ráðleggingar frá Slippfélaginu. Það er auðvelt að breyta... Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, sími 588 8000 • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 0385 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, sími 421 2720 • Gleráreyrum 2, Akureyri, sími 461 2760 Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga Hér má sjá eldhús sem gert var upp af Söru Dögg innanhússarkitekt, (femme.is), lakkað matt svart. Laufey Valdimarsdóttir fæddistí Reykjavík 1.3. 1890 og ólstþar upp í foreldrahúsum að Þingholtsstræti 18 í Reykjavík. For- eldrar hennar voru hjónin Bríet Bjarnhéðinsdóttir, kvenréttinda- frömuður, bæjarfulltrúi og ritstjóri, og Valdimar Ásmundsson, ritstjóri, útgefandi og kennari. Bróðir Laufeyjar var Héðinn Valdimarsson, hagfræðingur, fram- kvæmdastjóri Olíuverslunar Íslands, alþingismaður og formaður Dags- brúnar, faðir Bríetar Héðinsdóttur leikkonu, móður Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur leikkonu. Laufey lauk stúdentsprófi frá MR 1910 og var fyrsta konan sem sat þann skóla, en áður höfðu tvær konur tekið stúdentspróf utanskóla. Hún stundaði nám við Kaupmannahafn- arháskóla, lauk þar heimspekiprófi og lagði stund á málanám í ensku, frönsku og latínu. Heim komin sinnti Laufey erlend- um bréfaskriftum fyrir Landsverslun og hjá Olíuverslun Íslands. Laufey hóf ung þátttöku í kven- réttindabaráttunni, tók við for- mennsku af móður sinni í Kvenrétt- indafélagi Íslands árið 1927 og var formaður þess til dauðadags. Hún var margsinnis fulltrúi Kvenrétt- indfélagsins á fjölþjóðlegum fundum og ráðstefnum kvenna, víða um Evr- ópu. Hún bar mjög fyrir brjósti hag ekkna, einstæðra mæðra, barna og munaðarleysingja, hafði forgöngu um stofnun Mæðrastyrksnefndar og var formaður hennar frá upphafi. Laufey starfaði m.a. í Alþýðu- flokknum, var nokkrum. sinnum í framboði til Alþingis, átti sæti í fram- færslunefnd Reykjavíkur, var meðal stofnenda Sósíalistaflokksins og sat í miðstjórn hans en hætti síðan af- skiptum af flokkspólitík. Laufey skrifaði fjölda greina. í blöð og tímarit, flutti útvarpserindi og fór í fyrirlestraferðir á vegum Kvenrétt- indafélagsins um landið. Auk þess var hún prýðilegt skáld þótt lítið hafi farið fyrir ljóðum hennar á prenti. Laufey lést 9.12. 1945. Merkir Íslendingar Laufey Valdimarsdóttir 85 ára Haukur Otterstedt Jón Elberg Baldvinsson Svanhvít Kjartansdóttir 80 ára Emma Stefánsdóttir Guðrún Steinþórsdóttir Gunnar Árnason Hulda Benediktsdóttir Olga Khaevna Akbasheva Una Matthildur Árnadóttir 75 ára Aðalsteinn Einarsson Jón Ögmundur Þormóðsson Margrét Svavarsdóttir María Friðriksdóttir Sigurður Guðjónsson 70 ára Axel Jóhann Ágústsson Eyjólfur Matthíasson Inga Jónsdóttir Pétur Gíslason Stefán Ævar Ívarsson 60 ára Árni Leósson Ásgeir Úlfarsson Elsa Mogensen Eyþór Tómas Heiðberg Fjóla Malen Sigurðardóttir Guðmundur Böðvarsson Guðmundur Rúnar Árnason Guðrún Einarsdóttir Hjálmar Kjartansson Jakob Hagedorn-Olsen Jónína Kristbjörg Björnsdóttir Rúnar Elberg Indriðason Samúel Marteinn Karlsson Sigurður Rúnar Jónsson Snjólaug Anna Pétursdóttir Steinn Jakob Ólason Svanborg Matthíasdóttir 50 ára Anna Andriyash Arnar Bjarni Eiríksson Guðbjörg Linda Bragadóttir Hrannar Erlingsson Katrín Þorláksdóttir Baxter Lilja Hafdís Harðardóttir Ragna Jóna Georgsdóttir Sigurður Axelsson 40 ára Agnieszka Kachel Arnar Bjarnason Bragi Þór Kristinsson Dóra Burami Gyða Sigurðardóttir Hjalti Kristjánsson Jurgita Latvyte Marek Polkowski Rakel Ásgeirsdóttir Tryggvi Þór Róbertsson 30 ára Anna-Kaisa Luotonen Ágúst Bjarni Guðmundsson Dagný Þóra Gylfadóttir Gunnar Sturla Ágústuson Inga María Sigurðardóttir Ívar Daníel Karlsson Karólína Bæhrenz Lárudóttir Lilja Rún Kristbjörnsdóttir Muharrem Emre Unal Regimantas Simkus Sara Margrét Sigurðardóttir Sindri Markússon Vjollca Zogaj Til hamingju með daginn 30 ára Lilja Rún ólst upp í Reykjavík, býr í Hafn- arfirði, lauk brottfarar- prófi í húsasmíði og er húsasmiður hjá Sigga og Jóni ehf. Maki: Kristján Páll Kolka Leifsson, f. 1983, fram- haldsskólakennari og fé- lagsfræðingur. Sonur: Benedikt Kolka, f. 2008. Foreldrar: Helga Magn- ússon, f. 1955, og Krist- björn Magnússon, f. 1954. Lilja Rún Kristbjörnsdóttir 30 ára Inga María ólst upp á Stóra-Lambhaga í Hvalfjarðarsveit, býr þar og starfar hjá HB á Akra- nesi. Maki: Heimir Einarsson, f. 1987, húsasmiður. Börn: Veronika Jara, f. 2010, og Arnþór Mikael, f. 2014. Foreldrar: Sigurður Sverrir Jónsson, f. 1954, og María Lúísa Kristjáns- dóttir, f. 1955, skólabíl- stjórar á Stóra-Lambaga. Inga María Sigurðardóttir 30 ára Gunnar ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BSc-prófi í tölvunarfræði frá HÍ og er vefforritari hjá Klappir - Grænar lausnir. Maki: Marissa Sigrún Pi- nal, f. 1988, móttökustjóri á Hótel Holti. Dóttir: Embla María, f. 2013. Foreldrar: Ágústa Gunn- arsdóttir, f. 1950, sál- fræðingur, og Birgir Harð- arson, f. 1946, d. 1987, deildarstjóri. Gunnar Sturla Ágústuson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.