Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 73

Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 73
DÆGRADVÖL 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Farðu varlega í öllum samskiptum við aðra og mundu að ekkert er sem sýnist. Láttu því vera að taka stórar ákvarðanir. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er eitthvert valdatafl í gangi í vinnunni svo þér er skapi næst að gefast upp. Það er eins og allur máttur sé úr þér dreginn. Ekki örvænta, þú munt fá það sem þér ber. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú skaltu setjast niður og semja áætlanir um framkvæmd þeirra hluta sem þú hefur hingað til aðeins látið þig dreyma um. Láttu það eftir þér að leika þér svolítið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ekki gott fyrir heimilislífið að taka vinnuna með sér heim. Hláturinn lengir lífið svo blessaður taktu sjálfan þig ekki svona hátíðlega. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú nýtur kumpánlegra samskipta við vini þína í dag. Fáðu þér annan kaffibolla, lestu blaðið og njóttu þín milli þess sem þú sýslar við á heimilinu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki verða hissa eða móðgaður ef jafnvel bestu vinir setja út á persónulegar framfarir þínar. Reyndu að laga þig að þeim hraða sem er í lífi þínu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vertu á verði gagnvart tungulipru fólki og mundu að ekki er það alltaf sannleikurinn sem hrýtur af munni þess. Líttu til megin- stoðanna en láttu smáatriðin lönd og leið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vertu sjálfum þér trúr og reyndu ekki að gera þér upp skoðanir á mönnum og málefnum. Hvaðeina sem þú gerir færir þér ávinning. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er eitt og annað sem sækir að þér þessa dagana en nú er einmitt komið að uppgjörinu. Gefðu öðrum færi á að leggja orð í belg og sýndu þeim tillitssemi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er nauðsynlegt að þekkja vel þann sem maður deilir sínum innstu skoð- unum með. Og kannski eru þær bara góðar, ef þær hafa staðist tímans tönn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Til þess að leysa það verkefni sem þú hefur tekist á hendur þarftu að leiða sam- an fólk sem að jafnaði starfar lítt saman. Sýndu fyrirhyggju og gerðu áætlanir um framtíðina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vandasamt verkefni sem á þér hvílir mun leysast farsællega. Láttu ekki áhyggj- urnar ná tökum á þér og haltu glaður út í daginn. Víkverji komst í hann krappan ádögunum, ef svo má að orði komast. Svo var mál með vexti að hann var að keyra í vinnuna, þegar hann ákvað að taka fram úr einum bíl, sem honum þótti aka helst til hægt. Víkverji misreiknaði ögn þann hraða sem þyrfti til þess að fram- úraksturinn gæti gengið fljótt og örugglega fyrir sig, og áður en hann vissi af, var hann kominn nokkra kílómetra yfir hámarkshraðann. x x x Það væri svo sem ekki í frásögurfærandi, ef svo hefði ekki viljað til að næsti bíll sem var fyrir aftan þann sem Víkverji tók fram úr hefði ekki ákveðið að beygja mjög skarpt og ákveðið í humátt á eftir Víkverja, sem þarna var kominn á nokkra ferð að reyna að hægja á sér, þar sem hann beygði út á Vesturlandsveg. Víkverja grunaði strax að þarna væru á ferð laganna verðir á ómerktum bíl, sem þætti aksturslag Víkverja forvitnilegt í meira lagi. x x x Að beygju lokinni hóf Víkverji aft-ur að gefa í, þar sem hámarks- hraðinn var 80. Eitthvað hefur öku- manni bílsins sem elti Víkverja þótt það grunsamlegt háttalag, því nú blikkaði hann háu ljósunum á Vík- verja, sem þó lofar því að hann ætl- aði sér alls ekki að fara yfir há- markshraða. Engu að síður þótti honum réttara og vissara að hægja ögn ferðina og sjá hvort aftur yrði blikkað, eða jafnvel kveikt á bláum ljósum. Þegar hann tók síðan næstu beygju, sem liggur að vinnustað hans, fylgdi bíllinn enn á eftir. x x x Víkverji, sem vanur er því að geraúlfaldahjarðir úr einum mý- fluguvæng, fór nokkuð á taugum þegar hann hafði lagt á bílastæðinu. Þorði hann ekki annað en að bíða við bíl sinn í nokkrar mínútur, ef ske kynni að laganna verðir ættu eitt- hvað vantalað við hann, eða þeir vildu færa hann í járnum upp á stöð fyrir hinn glannalega framúrakstur. Svo reyndist ekki vera, en Víkverji þakkar engu að síður fyrir ábend- inguna og lofar að gæta sín betur í umferðinni. vikverji@mbl.is Víkverji En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóhannesarguðspjall 17.3) Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Markmið okkar er að spara viðskiptavinum tíma, fyrirhöfn og fjármuni. VA N TA R Þ I G STA R FS F Ó L K Við verðum á Verk og vit 8. – 11. mars 2018 Velkomin til okkar í bás D41 Ólafur Stefánsson skrifaði umþað í Leirinn að hann hefði á mánudagskvöld verið að tala um það við nágranna sinn, hversu slæmt ástand væri orðið í vega- málum. – Allir vegir að hrynja milli fjalls og fjöru, og ekki mætti á milli sjá hvar verst væri. Granni minn var á því að skattleggja þyrfti ferðamennina meðan þeir enn kæmu hingað. Svo væru þeir kannski allt í einu hættir að koma, og við sætum uppi með ónýta vegi. En ákvarðanir drægjust alltaf meir og meir á langinn þar til það væri kannski of seint. Svo bætti Mogginn um betur í morgun með stríðsletri á forsíðu að kólnun væri í hagkerfinu. Þá datt mér í hug hvort hægt væri að yrkja kvæði um holuvegina, ferðamenn- ina og hagsveifluna sem virðist nú vera að renna sitt skeið. Á þjóðveginum þjóta bílar hjá með þúsund ferðamönnum ótal landa. Af akstri þar má ýmsar týpur sjá og allar þjóðir jafnt í skafli standa. Hver vegur siginn, vilpa á hvora hlið, og veilur fleiri’ en ná í skýrslu’ að standa. Stormur ýlfrar, gefur engum grið, grátt í sveitum, „hnípin þjóð í vanda“. Um loftsins vegu leitt er fólk hér inn, lofað töfrum hvera’ og norðurljósa. Þó fer oftar stroka köld um kinn, og Kölski sjálfur má þeim vegum hrósa. Þar hrökkva öxlar, holur vinna grand, hver hættubeygja á hér sína vörðu, þó vorið leysi að lokum klakaband, og ljóssins geislar eyði þela úr jörðu. Nú kólna tekur kötlum hags vors í, þá kunnum brátt í gömlum sporum standa: Að verða það sem vorum enn á ný, veiðimannaþjóð í gengisvanda. Mér finnst fara vel á „fer- skeytluheimspeki“ eftir þvílíkan lestur. Jón Atli Játvarðarson yrkir á Boðnarmiði: Gæðastýring staðfast rugl. Storkar raun í alheimshveli. Enginn skítur furðufugl, á fuglaþúfu á auðnarmeli. Þórður Pálsson spyr: „Hvernig heldur þú að sé að taka þetta út?“: Gott er búið gæðastýrt gef því fína dóma. Allt er fé þar frekar rýrt fátt er þar til sóma. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af austurlensku aksturs- lagi og evrópsku „JÁ. ÉG LOSAÐI MIG VIÐ LÍKIÐ. HEFURÐU SÉÐ HVAÐ ÚTFARARSTOFURNAR RUKKA MIKIÐ?“ „JÓNAS, ÉG FANN LEIÐ FYRIR ÞIG TIL ÞESS AÐ SPARA FYRIRTÆKINU PERSÓNULEGA UM 200.000 KRÓNUR Á MÁNUÐI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera sá fyrri til að hringja og biðjast afsökunar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann FYRIRGEFÐU! BYRJAÐU Á KANTINUM. ÉG ER BÚINN AÐ TÝNA ÖLLU NEMA TVEIMUR BITUM AF ÞESSU PÚSLI. ÉG VEIT EKKI HVORT ÉG GET SETT ÞAÐ SAMAN. EN ÉG ER BARA ÓVOPNAÐUR KOKKUR KONUNGSINS! HVERNIG VEIT ÉG AÐ ÞIÐ MUNIÐ EKKI VINNA MÉR MEIN? OPNAÐU OG GEFSTU UPP! VIÐ HÖFUM EKKI BORÐAÐ HÁDEGISMAT ENN!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.