Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Athyglisverð sýning tveggjalistamanna af yngri kyn-slóðinni, þeirra KatrínarAgnesar Klar og Lukas Kindermann, stendur nú yfir í Ný- listasafninu í Marshall-húsinu í Reykjavík. Listamennirnir búa og starfa í Þýskalandi og hafa einu sinni áður sýnt verk sín saman hér á landi en það var á lítilli sýningu í Skaftfelli á Seyðisfirði árið 2014, Point of View. Auk þess tók hin hálf- íslenska Katrín þátt í samsýning- unni Birting í Gerðarsafni árið 2015 en Fjarrænt efni er fyrsta stóra samsýning þessara ungu lista- manna. Í kynningartexta sýningarinnar segir: „Með aftengdum og endurröð- uðum ásýndum efnis gegnum hvert og eitt verk, styðst sýningin við sendar upplýsingar, þrívíddarlíkön úr geimnum, íspinnalitaðar skjáhvíl- ur og sjóndeildarhringi veggspjalda sem leið til að rýna í hversdagslega framsetningu og sem ferðalag um reglufast kerfi alheimsins.“ Katrín Agnes býður áhorfendum upp á spennandi ferðalag. Stafli af prentuðum myndum á gólfi er hluti verksins „Blue Gradient (taken from airplane)“ (2018). Verkið er ljós- mynd af sjóndeildarhring sem tekin er í dagrenningu, ljósmyndin er fjöl- földuð plaköt og gestum býðst að taka brot af sjóndeildarhringnum með sér heim. Einn veggur sýning- arrýmisins hefur einnig verið þakinn prentverkinu þar sem himinbláminn með ljóstíru á jaðrinum myndar end- urteknar rendur sem minna á valsa og hreyfingu í ljósritunarvél eða skanna. Verkið „Boundary Colors“ (2015) lætur ekki mikið yfir sér; lítill ferkantaður flötur sem festur er á stand á gólfi. En þetta litla verk fangar hins vegar rýmið og virkjar ferðalag áhorfandans um það. Eftir því sem áhorfandinn færir sig til í rýminu dregur flöturinn til sín liti úr öðrum verkum á sýningunni, flöt- urinn getur til að mynda verið gulur, rauður, blár eða jafnvel marglitur eftir því hvaðan horft er á hann. „Boundary Colors“ leikur á litaskal- ann og nær að kalla fram heildar- upplifun og hrífandi samhljóm milli áhorfandans og verkanna í rýminu. Sterkar sögulegar vísanir eru í verkum Lukasar Kindermann sem vinnur meðal annars með hluti úr vísindalegum rannsóknum sem efni- við. Í verkinu „Atlas“ (2018) eru stafræn prent á filmu, byggð á ljós- myndum Hans Vehenbers af him- inhvolfinu, sem liggja á fleka á gólfi salarins. Þar má einnig sjá þrívídd- arteikningar af fornmunum þar sem listamaðurinn stefnir saman við- fangsefnum vísindamanna sem rannsaka jafn ólík viðföng og fundna gripi í jörðu, loftsteina og jafnvel óhöndlanlega stærð himinhvolfsins. Sýningin Fjarrænt efni ferðast með áhorfandann til hins óræða og óhöndlanlega sem vísindamenn reyna að beisla með böndum þekk- ingar. Fyrirbæri úr náttúrunni eins og sólsetur sem við upplifum á flug- ferðalagi, loftsteinar sem fallið hafa til jarðar og hinir ýmsu hlutir sem innihalda brot af mannkynssögunni og jafnvel loftsteinar sem prentaðir eru með þrívíddarprentara vekja áhorfandann til umhugsunar og skörun hversdagslegra hluta verður óhjákvæmileg. Fjarrænt efni er hríf- andi og falleg sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Morgunblaðið/Hari Sýningarbrot Plotterteikningar eftir Lukas Kinderman og PowerBook G4 12 inches, 2007, eftir Katrínu Agnesi. Hrífandi ferðalag um alheiminn Nýlistasafnið Fjarrænt efni bbbbn Sýning Katrínar Agnesar Klar og Lukas Kindermann í Nýlistasafninu í Marshall- húsinu. Sýningarstjóri: Becky Forsythe. Sýningin stendur til 11. mars 2018. Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-18 og til kl. 21 á fimmtudögum. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Morgunblaðið/Hari Samhljómur Untitled (#154285 #ffff19 #154285), verk eftir Katrínu Agnesi Klar frá þessu ári 2018 og skúlptúr eftir Lukas Kindermann, 1:1, frá 2016 . Tónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival hefst í dag á Kex hosteli og er hátíðin sú áttunda í röðinni. Há- tíðin stendur yfir í þrjá daga og fara tónleikar fram á kvöldin milli kl. 20 og 23. Á dagskránni í ár má finna hljómsveitir og tónlistarmenn úr ólíkum áttum, innlenda og erlenda, vænan þverskurð þess sem er að gerast í þjóðlagatónlistarsenunni í dag, eins og það er orðað í tilkynn- ingu. Bæði komi fram nýir tónlist- armenn í þjóðlagageiranum á borð við Árna Vil og Danann Madz Mou- ritz og gamalkunnir og þjóðþekkt- ir, til dæmis Pétur Ben, Lára Rún- ars, Teitur Magnússon, Myrra Rós og Bjartmar Guðlaugsson. Grísk kaffihúsahljómsveit, Syn- tagma Rembetiko, hefur dagskrána annað kvöld en hún er leidd af Ás- geiri Ásgeirssyni buzukileikara. Aðrir sem fram koma á hátíðinni og hafa ekki verið nefndir eru Stunt- bird, Kólga, Halli Reynis og Soffía Björg. Frekari upplýsingar um há- tíðina má finna á Facebook. Ljósmynd/Per Sollerman Á hátíð Myrra Rós kemur fram á Reykjavík Folk Festival í kvöld kl. 21.30. Þriggja daga þjóð- lagatónlistarhátíð  Reykjavík Folk Festival hefst í dag Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.