Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 85
MENNING 85
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi
um þegar mér bauðst þetta leik-
stjórnarverkefni,“ segir Ólafur Egill
Egilsson, leikstjóri gamansýning-
arinnar Sjeikspír eins og hann legg-
ur sig! eftir Adam Long, Daniel
Singer og Jess Winfield í þýðingu og
staðfærslu Vilhjálms Bergmanns
Bragasonar sem Leikfélag Akureyr-
ar frumsýnir í Samkomuhúsinu á
Akureyri annað kvöld. Í sýningunni
fara þrír leikarar
yfir 37 leikrit
Shakespeares á
aðeins 97 mín-
útum.
„Þetta er frá-
bært stykki og ég
þekkti aðeins til
krakkanna í leik-
hópnum áður en
ég sagði já. Auk
þess hafði ég
unnið áður með
Brynju Björnsdóttur, sem hannar
leikmynd og búninga, og Ólaf Ágúst
Stefánsson ljósahönnuð þekki ég úr
Þjóðleikhúsinu. Ég sá það eiginlega í
hillingum að geta farið norður og
unnið að sýningunni á daginn, skrif-
að á kvöldin og farið í sund á morgn-
ana,“ segir Ólafur Egill og tekur
fram að það sé ekkert launungarmál
að það verði meira úr tímanum fjarri
amstri hversdagslífsins þegar ekki
þurfi að skutla börnum og elda
kvöldmat. „Ég skellti öllu heimilis-
haldinu á konuna mína, sem sinnti
því með prýði,“ segir Ólafur Egill og
vísar þar til Estherar Talíu Casey
leikkonu, sem sjálf hefur staðið í
ströngu síðustu vikur enda frum-
sýndi hún söngleikinn Slá í gegn um
liðna helgi í Þjóðleikhúsinu.
Leiktæknileg flugeldasýning
„Sjeikspír eins og hann leggur sig!
er leiktæknileg flugeldasýning. Það
er ofboðslega mikill hraði, margar
persónur og stokkið úr einu í annað.
Verkið býður upp á skemmtilega
revíustemningu, því það er ekki bara
verið að endursegja söguþráðinn í
öllum Shakespeare-leikritunum
heldur líka verið að setja þau í sam-
hengi við samtímann og nær-
umhverfið,“ segir Ólafur Egill.
Með hlutverk í sýningunni fara
Benedikt Karl Gröndal, Jóhann Axel
Ingólfsson og Sesselía Ólafsdóttir.
„Þau eru öll menntuð erlendis. Sess-
elía er helmingurinn af Vandræða-
skáldunum ásamt Vilhjálmi sem
þýðir og staðfærir verkið. Hún er
jafnvíg á leik og söng og leikur í
þokkabót á gítar í sýningunni. Við
Benni höfum aldrei unnið saman, en
þekkjumst úr leikarafótboltanum á
þriðjudagskvöldum. Þaðan vissi ég
að hann er viðbragðssnöggur og fót-
fimur með eindæmum. Við Jóhann
Axel unnum saman í söngleiknum
Óliver! sem Magnús Geir Þórðarson
leikstýrði í Samkomuhúsinu 2005.
Hann var þá nýfermdur og hluti af
þjófagengi Fagíns, sem ég lék. Hann
var sérlega efnilegur vasaþjófur og
fer enn létt með að stela senunni.“
Sprenghlægilegir harmleikir
Spurður hvort það sé kostur að
þekkja verk Shakespeare áður en
fólk leggur leið sína í leikhúsið að sjá
Sjeikspír eins og hann leggur sig!
segir Ólafur Egill það ekki endilega
vera svo. „Ég held það sé miklu
betra að vera ekki mikill Shake-
speare-aðdáandi eða nörd. Það gætu
ýmsar styttingar og samþjappanir
farið fyrir brjóstið á þeim sem kynnt
hafa sér leikritin í þaula. Sem kynn-
ing á Shakespeare er þetta hins veg-
ar frábær sýning og um margt er
hún kannski nær því sem fólk upp-
lifði í Globe-leikhúsinu á dögum
Shakespeare en margt sem sett er
upp í dag. Á tímum Shakespeare var
gert óspart grín að mönnum og mál-
efnum líðandi stundar á sviðinu og
ekkert var heilagt, þetta var alþýðu-
skemmtun, stuð og stemning og ekk-
ert snobberí-snobb. Globe-leikhúsið
er t.d. eitt af alfyrstu húsum í heim-
inum sem eru reist af almenningi,
ekki kóngum eða kirkju, fyrir al-
menning að koma saman í. Vonandi
náum við að koma þessari stemningu
til skila og kannski nær fólk í gegn-
um þessa samtímaspeglun að finna
Sjeikspírinn í sér og sig í Sjeikspír,“
segir Ólafur Egill og tekur fram að
það hafi verið afar ánægjulegt að fá
áhorfendur á æfingu í liðinni viku.
„Fólk veltist um af sjeikspírískri
andagift og uppljómun og hlátri.“
Inntur eftir því hvort eitthvað í
vinnuferlinu hafi komið honum á
óvart hugsar Ólafur Egill sig vel um
og svarar svo: „Það kom mér mjög á
óvart hvað harmleikirnir geta verið
sprenghlægilegir.“ Spurður hvort
von sé til þess að uppfærslan rati í
leikferð suður svarar Ólafur Egill
því neitandi. „Fólk verður að koma
norður að sjá sýninguna, en auðvitað
veit maður aldrei hvað verður,“ segir
Ólafur Egill og dásamar í framhald-
inu Samkomuhúsið. „Þetta er eitt af
alskemmtilegustu leiksviðum lands-
ins vegna þess hversu nálægðin við
áhorfendur er mikil. Þegar maður
stendur á sviðsbrúninni finnst manni
jafnvel eins og maður geti klipið í
nefið á áhorfanda á aftasta bekk. Svo
spillir ekki fyrir hversu fallegt húsið
er og andinn í því góður.“
Ekki er hægt að sleppa Ólafi Agli
án þess forvitnast um hvað sé á
teikniborðinu hjá honum að frum-
sýningu lokinni. „Ég er að fara að
undirbúa sýningu sem frumsýnd
verður á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins í haust,“ segir Ólafur Egill og
tekur fram að um sé að ræða erlent
leikrit, allt í senn kómískt, ljúfsárt
og krefjandi efni. „Ég var alveg
heillaður af verkinu þegar ég kynnt-
ist því,“ segir Ólafur Egill og vill að
svo stöddu ekki gefa meira upp.
„Þessa dagana er líka eftirvinnsla í
gangi á kvikmyndinni Kona fer í
stríð, sem við Benni [Benedikt Erl-
ingsson] skrifuðum saman. Hún
verður frumsýnd öðrum hvorum
megin við sumarið,“ segir Ólafur
Egill, sem er einnig með fleiri hand-
rit í vinnslu. „Eitt leikrit, eina sjón-
varpsseríu og eina kvikmynd, eins
og sagt er: Það er best að gera bara
eitt í einu,“ segir Ólafur Egill og
hlær.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Átök Sesselía Ólafsdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson og Benedikt Karl Gröndal fara yfir 37 leikrit á 97 mínútum.
„Fer enn létt með
að stela senunni“
Sjeikspír eins og hann leggur sig! frumsýndur á morgun
Ólafur Egill
Egilsson
Kvikmyndahátíðin Nordatlantiske
Filmdage hefst í dag á Norður-
bryggju í Kaupmannahöfn og
stendur yfir í viku. Er hún haldin í
samstarfi við sendiráð Íslands í
Kaupmannahöfn og er fullveldis-
afmæli Íslands fagnað með því að
beina ljósinu að kvikmynda-
samstarfi Íslands og Danmerkur til
100 ára, eins og segir í tilkynningu.
Á hátíðinni verður stiklað á stóru
og verður m.a. hægt að sjá íslenska
kvikmynd danska leikstjórans Erik
Balling, 79 af stöðinni (1962),
danska kvikmynd Hlyns Pálmason-
ar, Vetrarbræður (2017), og Atelier
(2017), útskriftarmynd Elsu Maríu
Jakobsdóttur frá Danska kvik-
myndaskólanum.
Hátíðina sækja kvikmyndaleik-
stjórarnir Friðrik Þór Friðriksson,
Rúnar Rúnarsson og Dagur Kári
Pétursson sem hafa starfað bæði í
Danmörku og á Íslandi og segir í
tilkynningu að kvikmyndir þeirra
sýni glöggt styrkinn sem felist í
samstarfi landanna. Fleira verður í
boði á hátíðinni, m.a. sýnd heimild-
armynd Höllu Kristínar Einars-
dóttur um kvennabaráttuna á Ís-
landi, Hvað er svona merkilegt við
það, frá árinu 2015.
Hátíðin hefst með sýningu á Und-
ir trénu (2017) og mun handritshöf-
undur hennar, Huldar Breiðfjörð,
kynna myndina í kjölfar opnunar-
ræðu sendiherra Íslands í Dan-
mörku, Benedikts Jónssonar.
Meðal stuðningsmanna hátíð-
arinnar og samstarfsaðila eru
Danska kvikmyndamiðstöðin, Kvik-
myndasafn Íslands, Kvikmynda-
miðstöð Íslands og sendiráð Íslands
í Kaupmannahöfn.
Fagna samstarfi og fullveldisafmæli
Atelier Úr útskriftarmynd Elsu M. Jakobs-
dóttur frá Danska kvikmyndaskólanum.
Tónlistarmaðurinn Mikael Máni Ás-
mundsson heldur tónleika í menn-
ingarhúsinu Mengi í kvöld kl. 21 og
bera þeir yfirskriftina Textar í
gegnum tónlist. Mikael Máni mun
flytja lög Bobs Dylans fyrir sólógít-
ar en hugmyndin er að túlka texta
Dylans í gegnum hljóðfærið. „Að-
ferðin sem Mikael notar við að spila
lögin er blanda af skrifuðum út-
setningnum og spuna. Í skrifuðu
pörtunum er markmiðið að ná fram
tilfinningunni í textanum en á með-
an hann spilar melódíuna er textinn
kjarninn í túlkuninni á verkinu og
flutningurinn er innblásinn af hon-
um,“ segir um tónleikana í tilkynn-
ingu.
Á tónleikunum verður dreift
bæklingi sem Lilja María Ásmunds-
dóttir hannaði með textum þeirra
átta laga sem Mikael flytur á tón-
leikunum og tónleikagestir fá þann-
ig að stýra upplifun sinni á tónlist-
inni og geta valið hvort þeir vilja
bara hlusta eða hvort þeir vilja lesa
ljóðin sem Dylan skrifaði til að
tengjast lögunum á annan hátt, eins
og segir í tilkynningu.
Flytur lög Dylans fyrir sólógítar
Gítarleikari Mikael Máni Ásmundsson.
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK14.700
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK27.400
Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur.
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bæklingurinn
okkar fyrir 2018 er
kominn út. Í honum
finnur þú fullt af
tilboðum og
verðdæmum. Hægt
er að nálgast hann á
www.smyrilline.is
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
ICQC 2018-20