Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
KRINGLUKAST8 -12. mars
TOPPUR
4.990,-
Líka til blár
JAKKI
10.995,-
BUXUR
7.995,-
20% afsláttur af öllum vörum
Full búð af nýj
um
vorvörum
KJÓLL
24.990,-
ST: 36-48
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Auður Guðjónsdóttir, stjórnar-
formaður Mænuskaðastofnunar Ís-
lands, fer ásamt tveimur öðrum ís-
lenskum konum til fundar við
bandaríska þingmenn og almanna-
tengla síðar í mánuðinum.
Bandarísk samtök mæðra mænu-
skaddaðra einstaklinga, Warriors
Momz, buðu fulltrúum Mænuskað-
astofnunar á fundinn.
Gekk yfir Bandaríkin
Auður sagði að 11. mars væri von
á ástralskri konu, Kay Ledson, til
Washington DC. Ledson er 67 ára
móðir manns sem lamaðist af völd-
um slyss árið 2000. Hún ákvað að
ganga tæplega 5.000 km frá Carls-
bad í Kaliforníu til Washington DC
Tilgangurinn var að minna á þau
sem hafa lamast vegna mænuskaða.
„Við ætlum að taka á móti henni í
Washington og síðan er búið að bóka
fundi með bandarískum þingmönn-
um,“ sagði Auður. Hún sagði að
fulltrúar Mænuskaðastofnunar
fengju einnig að njóta ráðgjafar
þekktra bandarískra almannatengla.
Auður sagði að samtök mæðra
lamaðra vegna mænuskaða hefðu
áhuga á að koma á framfæri þeirri
pólitísku leið sem íslensk stjórnvöld
hafa markað fyrir umræðu og þekk-
ingu á mænuskaða og taugakerfinu
innan Norðurlandaráðs og Samein-
uðu þjóðanna (Sþ).
Mikið af vannýttri þekkingu
„Það hefur ekkert gengið að finna
lækningu við mænuskaða,“ sagði
Auður. Hún sagði að eftir síðari
heimsstyrjöldina hefði verið mótuð
sú stefna að þjálfa mænuskaðaða til
að verða sjálfbjarga í hjólastól. „Síð-
an hefur meðferðin ekkert breyst.
Það eru 29 ár síðan dóttir mín hlaut
mænuskaða og lamaðist. Meðferðin
er nákvæmlega sú sama enn í dag.
Samt er verið að rannsaka þetta úti
um allan heim. Það er til fullt af van-
nýttri þekkingu á þessu sviði. Það
þarf að nýta hana.“
Auður er skurðhjúkrunarfræð-
ingur og hefur fylgst mjög vel með
málaflokknum frá því að dóttir henn-
ar slasaðist. Hún er viss um að fara
þurfi pólitíska leið til að þoka þess-
um málum áfram.
Norræn samskráning
„Íslenskir stjórnmálamenn hafa
reynst mér mjög vel,“ sagði Auður.
„Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráð-
herra, hafði frumkvæði að því að
ráðherranefnd Norðurlandaráðs
samþykkti 2013 að setja á laggirnar
samskráningu á rannsóknum og
meðferð á mænuskaða á Norð-
urlöndum. Þetta er unnið undir
stjórn St. Olavs-sjúkrahússins í
Þrándheimi. Nú liggur önnur tillaga
fyrir ráðherranefndinni, sem Lilja
Alfreðsdóttir, þáverandi utanrík-
isráðherra, lagði fram. Unnið er að
því að NordForsk-rannsókna-
samvinnustofnunin taki þetta upp.“
Auður ritaði Ban Ki-moon, þáver-
andi aðalritara SÞ, um að rann-
sóknir á taugakerfinu yrðu eitt af
þróunarmarkmiðum SÞ sem sett
voru 2015. Hún efndi til undir-
skriftasöfnunar til stuðnings málinu
og skrifuðu 26 þúsund Íslendingar
undir. Auður kvaðst alltaf hafa feng-
ið svör frá Amina Mohammed, sem
nú er orðin aðstoðaraðalritari SÞ.
Málið varð ekki eitt af þróunarmark-
miðunum en utanríkisráðuneytið
kom því inn í stefnuyfirlýsingu SÞ að
raskanir í taugakerfinu færu í for-
gang.
Gervigreind verði nýtt
„Það yrði mjög gott ef norræna
ráðherranefndin tæki upp það sem
við höfum komið á blað hjá SÞ.
Norðurlöndin yrðu þá fyrst til að
samkeyra gagnabanka á taugavís-
indasviði og nýta gervigreind til að
athuga hvort sameiginlegt mynstur
finnst í rannsóknunum. Það er eina
leiðin til að samnýta rannsóknir sem
liggja úti um allan heim. Ég vona að
ef Norðurlöndin byrja muni allur
heimurinn fylgja á eftir til að færa
okkur nær lækningu. Einhvers stað-
ar er litla þúfan sem mun velta hlass-
inu, eins og þegar pensillínið fannst
eða meðferð við HIV,“ sagði Auður.
Leitað að þúfunni sem
velta mun hlassinu
Fulltrúar Mænu-
skaðastofnunar fara
á fund bandarískra
þingmanna 12. mars
Morgunblaðið/Kristinn
Baráttukona Auður Guðjónsdóttir, stjórnarformaður Mænuskaða-
stofnunar, hefur barist fyrir því að leitað verið lækningar á mænuskaða.
33. Reykjavíkurskákmótið tek-ur nafn frá aðalstyrktaraðilasínum, GAMMA, og er aðþessu sinni helgað minningu
Bobbys Fischers sem hefði orðið 75
ára á morgun, 9. mars. Bobby lést
17. janúar 2008, 64 ára að aldri. Á
þessum rösku tíu árum sem liðin eru
síðan hann lést er lífshlaup hans lát-
laust rifjað upp í blaða- og tímarits-
greinum, heimildarmyndum og kvik-
myndum og er óhætt að fullyrða að
arfleifð hans sé orðin svo stór í snið-
um að hún geti eiginlega séð um sig
sjálf, eins og Ronald Reagan sagði
víst um fjárlagahallann í Bandaríkj-
unum. Guðmundur G. Þórarinsson,
forseti SÍ einvígisárið 1972, mun
halda fyrirlestur um „einvígi ald-
arinnar“ á Bryggjunni Brugghúsi
nk. sunnudag, 11. mars, og hefst
hann kl. 11.30. Þá mun greinarhöf-
undur lesa úr bók sinni „Bobby Fisc-
her comes home“ á sama stað og
sama tíma þriðjudaginn 13. mars.
Eitt meginþema Reykjavík-
urskákmótsins er iðkun skákaf-
brigðisins Fischer random, einnig
kallað Chess 960 eða slembiskák.
Indverjinn Nihal Sarin reið á vaðið á
mánudaginn með Fischer-random-
fjöltefli í höfuðstöðvum GAMMA við
Garðastræti og á morgun, 9. mars,
verður haldið í Hörpu Fischer-
random-hraðskákmót og má búast
við að margir hinna 248 keppenda
verði með.
Reykjavíkurskákmótið hefur und-
anfarin ár tekið á sig form skák-
hátíðar og fjölmargir hliðarviðburðir
á borð við barna-blitz, stúlkna-
fjöltefli Susan Polgar, pub-quiz og
margt fleira viðhalda vinsældum
mótsins og gera það að verkum að
Reykjavík er vinsæll áfangastaður
fjölmargra skákáhugamanna sem
koma hingað ár eftir ár. Einn þeirra
er faðir heimsmeistarans, Henriks
Carlsens, sem aðeins teflir á einu
móti á ári – Reykjavíkurskák-
mótinu!
Eftir fyrstu tvær umferðirnar var
22 skákmenn búnir að vinna báðar
skákir sínar. Í þeim hópi voru Jó-
hann Ragnarsson, Gunnar Freyr
Rúnarsson og hinn 15 ára gamli
Kópavogsbúi Birkir Ísak Jóhanns-
son. Jóhann Hjartarson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Guðmundur
Kjartansson, Björn Þorfinnsson og
Vignir Vatnar Stefánsson voru með-
al þeirra sem höfðu 1½ vinning.
Talsvert var um óvænt úrslit og í
gær komust nokkrir af þeim stiga-
hæstu í hann krappan:
L’Ami – Ravi Haria
Hollendingurinn Erwin L’ami,
sem vann Reykjavíkurskákmótið
2015, fékk þægilega stöðu eftir byrj-
unina en gáði ekki að sér. Síðasti
leikur svarts var 36. … g5. Nú kom:
37. Hg4?? Rc3!
Hótar hróknum og sennilega hef-
ur L’Ami ætlað að leika 38. He1 en
séð að eftir 38. … Re2+! missir hann
drottninguna eða verður mát. Hann
varð að gefa skiptamun og tapaði
eftir 45 leiki.
Úkraínumaðurinn Pavel Eljanov
hefur átt mikilli velgengni að fagna
undanfarin ár þótt hann hafi eitt-
hvað lækkað á heimlistanum, þar
sem hann situr í 37. sæti. Hann
missti af upplögðu tækifæri í gær
gegn einum fulltrúa Indverja á
mótinu:
Eljanov – Sundararajan
Hvítur getur unnið með 25. e7!
Hf2 26. Be6! Þar sem fórnin á g2
gengur ekki upp, 26. … hxg2 27.
Kxg2 Rxe3+ 28. Kg1 Dg5+ 29. Kf2
og allir reitir sem skipta máli eru
valdaðir. Hann valdi hins vegar að
leika 25. Bd5? og eftir 25. … Rf2 26.
De5+ Hf6 27. Dh2 Dg5! var svartur
sloppinn og þeir sömdu um jafntefli í
33. leik.
Þriðju umferð lauk seint í gær-
kvöldi en í næstu umferðum munu
línur fara að skýrast. Alls verða
tefldar tíu umferðir.
Morgunblaðið/Ómar
Aftur í eldlínunni Jóhann Hjartarson er meðal þátttakenda á Reykjavíkur-
skákmótinu. Hann vann báðar skákir sínar í fyrstu tveimur umferðunum.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Mikið um óvænt
úrslit í fyrstu um-
ferðum Reykjavíkur-
skákmótsins