Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
og skrifstofumanna. Þetta var öðru-
vísi fyrr á tíð. Þá sáu ráðherrar og
jafnvel ríkisstjórnin í heild stundum
ástæðu til að hafa afskipti af því
hvert myndefni frímerkja var ef til-
efni útgáfunnar var stórt. Þegar 50
ára afmælis fullveldisins var minnst
1968 sá ríkisstjórnin til dæmis
ástæðu til að hafna tillögu póst-
stjórnarinnar um myndefni minn-
ingarfrímerkisins og sjá til þess að
annað yrði fyrir valinu. Gögn póst-
stjórnarinnar og samgöngu-
ráðuneytisins í Þjóðskjalasafni
geyma fleiri dæmi um afskipti ráð-
herra af frímerkjaútgáfu, t.d. við
lýðveldisstofnun 1944, á 50 ára af-
mæli heimastjórnar 1954 og 50 ára
afmæli lýðveldisins 1994.
Jóni Magnússyni lyft á stall
Árið 1968 þegar 50 ár voru liðin
frá því að Ísland varð fullvalda ríki
þótti við hæfi að minnast tímamót-
anna með útgáfu frímerkis. Póst-
stjórnin stakk upp á því að myndefni
nýja frímerkisins yrði hin táknræna
lágmynd Einars Jónssonar mynd-
höggvara, Brautryðjandinn, sem er
á fótstalli styttunnar af Jóni Sig-
urðssyni á Austurvelli. Til sam-
anburðar var mynd af Jóni Sigurðs-
syni forseta á frímerkinu sem gefið
út var í tilefni af stofnun lýðveldis
1944. Myndir af Hannesi Hafstein
ráðherra voru á frímerkjum sem
gefin voru út á hálfrar aldar afmæli
heimastjórnar 1954. Yfirmenn Pósts
og síma eins og fyrirtækið hét þá
hafa greinilega ekki séð fyrir sér
neinn einstakan mann sem öðrum
fremur væri rétt að tengja við þessi
miklu tímamót í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. En vegna þess hve til-
efnið var mikilvægt var talið rétt að
bera tillöguna um afmælismerki
fullveldisins undir forsætisráðu-
neytið þótt póstmál heyrðu undir
samgönguráðuneytið. Málið var tek-
ið til umfjöllunar á ríkisstjórn-
arfundi í ágúst 1968 og póststjórn-
inni tilkynnt að honum loknum að
mynd af Jóni Magnússyni, sem var
forsætisráðherra þegar Ísland varð
fullvalda ríki 1. desember 1918,
skyldi prýða frímerkið sem gefa átti
út í tveimur mismunandi litum og
verðgildum. Tillögu póststjórn-
arinnar var þar með hafnað.
Óvíst er að margir kannist núna
við Jón Magnússon (1859-1926). En
þeir hafa verið fleiri sem þekktu til
hans árið 1968. Þessi hlédrægi lög-
fræðingur, embættismaður lengst
af, þótti að sögn ævisöguritara hans
„dulur í skapi og fályndur og sjaldan
með fullu gleðibragði“, og því varla
til þess fallinn að kveikja neista með
fólki eða hrífa þjóðina og verða
þannig eftirminnilegur. Enda segir
sami höfundur að á fjölmiðla- og
auglýsingaöld hljóti það „að vera
nokkur ráðgáta hvernig slíkur mað-
ur verður þjóðarleiðtogi jafn lengi
og raun ber vitni,“ en Jón var for-
sætisráðherra í sjö ár, fyrst 1917 til
1922 og síðan 1924 til 1926 er hann
lést. Ríkisstjórnin var hins vegar
sannfærð um að minning Jóns ætti
að lifa með þjóðinni.
Í fréttatilkynningu, sem Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra
lagði hönd á, var Jón Magnússon
sagður hafa átt „manna mestan þátt
í að samkomulag náðist um [sam-
bandslögin] milli Danmerkur og Ís-
lands.“ Segja má að með því að láta
setja mynd Jóns og enga aðra á op-
inbert frímerki í tilefni fullveldis-
afmælisins hafi ríkisstjórnin lyft
honum á stall með helstu sjálfstæð-
isfrömuðum þjóðarinnar, Jóni Sig-
urðssyni forseta og Hannesi Haf-
stein ráðherra.
Ekki óumdeild söguskoðun
Um útgáfu frímerkisins urðu eng-
ar opinberar umræður að séð verð-
ur. Má þó segja að fullyrðing ríkis-
stjórnarinnar um hlut Jóns
Magnússonar í samkomulaginu árið
1918 orki tvímælis. Þetta var ekki og
er ekki óumdeild söguskoðun. Jón
sat ekki einu sinni í nefndinni sem
samdi við Dani. Þar voru aðrir at-
kvæðamiklir þingmenn. En næsta
víst er að ríkisstjórnin hefði ekki
látið setja mynd Jóns á frímerki ef
hún hefði haft ástæðu til að ætla að
ákvörðunin yrði misklíðarefni. Frí-
merkjum er hvergi ætlað að verða
efniviður í þjóðmáladeilur, þótt það
gerist vissulega öðru hverju. Við því
var að búast að flestir mundu sætta
sig við upphafningu Jóns vegna
stöðu hans sem forsætisráðherra 1.
desember 1918. Og enginn augljós
keppinautur var um þessa vegtyllu
á afmælisdaginn. Í rauninni voru
Danir meiri áhrifavaldar um að Ís-
lendingar fengu fullveldi en Íslend-
ingar sjálfir, enda orðnir þreyttir á
sífelldum kröfum og kvörtunum
landsmanna.
Veikari staða í þjóðarminni
Hugsanlega hefði öðru máli
gegnt ef til hefði staðið að reisa af
Jóni líkneski á einhverjum áberandi
stað. Myndastyttur eru miklu færri
og eiga jafnan lengra líf fyrir hönd-
um en frímerki sem hafa skamman
gildistíma og hverfa innan tíðar úr
almannarýminu í möppur og bækur
safnaranna.
Þegar Jón Magnússon var „frí-
merktur“ árið 1968 voru frímerki
enn miðlæg í póstsendingum svo
kynningin sem honum hlotnaðist
var umtalsverð. Um hitt er erfiðara
að dæma, eiginlega ómögulegt, hver
áhrifin voru nákvæmlega. Í við-
urkenndu yfirlitsriti, Ísland á 20.
öld (Reykjavík 2002) eftir Helga
Skúla Kjartansson sagnfræðing
kemur nafn Jóns Magnússonar fyr-
ir 7 sinnum, en Hannesar Hafsteins
35 sinnum. Þótt fullveldið 1918 telj-
ist stærri áfangi í stjórnfrelsisbar-
áttu Íslendinga en heimastjórnin
1904 (og jafnvel stofnun lýðveld-
isins 1944) hefur það í sögulegu
endurliti þjóðarinnar að vissu leyti
lent á milli stafs og hurðar. Fyrir
vikið hefur Hannes Hafstein, fyrsti
heimastjórnarráðherrann, langtum
sterkari stöðu í þjóðarminninu en
nokkur þeirra stjórnmálamanna er
tengjast beint næstu áföngum sjálf-
stæðisbaráttunnar, fullveldinu og
stofnun lýðveldis 1944. Ekki er víst
að á því verði nokkru sinni breyt-
ing, en gerist það verður það örugg-
lega ekki fyrir tilstuðlan frímerkja
úr því sem komið er.
---
Stuðst er við grein höfundar
„Frímerktir stjórnmálamenn“ sem
birtist í 2. tbl. Frímerkjablaðsins
2015.
Sjónræn túlkun fullveldisins
100 ára afmælis fullveldisins 1918 minnst með útgáfu frímerkja Svo var einnig á afmælinu 1968
Ríkisstjórnin gaf fyrirmæli um myndefnið Jóni Magnússyni lyft á stall með sjálfstæðisfrömuðum
Ljósmynd/ Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Magnús Ólafsson.
Fullveldi Lýst var yfir fullveldi Íslands við hátíðlega athöfn við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík 1. desember 1918. Aðalræðuna flutti Sigurður Eggerz fjár-
málaráðherra þar sem Jón Magnússon forsætisráðherra var staddur í Kaupmannahöfn. Ríkisfáninn (tjúgufáninn) var þá í fyrsta sinn dreginn að hún.
Frímerki Mynd af Jóni Magnússyni forsætisráðherra var á frímerkinu á 50
ára afmæli fullveldisins 1968. Ríkisstjórnin ákvað það og lyfti honum þannig
á stall með helstu sjálfstæðisfrömuðum þjóðarinnar. Í ár urðu stílfærðar
teikningar af þinghúsinu og Stjórnarráðinu með ríkisfánanum fyrir valinu.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þegar Íslandspóstur sendi á dög-
unum frá sér tvö frímerki í tilefni af
100 ára afmæli fullveldis Íslands á
þessu ári var fyrirtækið að fylgja
gamalli hefð. Fyrir utan þann meg-
intilgang að sýna burðargjald póst-
sendinga og uppruna þeirra hefur
frímerkjum lengst af verið ætlað að
kynna sögu, menningu, atvinnu-
hætti, náttúru og merkismenn þjóð-
anna. Frímerkjunum nýju með stíl-
færðum teikningum af
Alþingishúsinu og Stjórnarráðinu
skreyttum ríkisfánanum, sem tekinn
var í notkun 1918, er ætlað að vera
sjónræn túlkun fullveldisins þegar
íslenskt löggjafar- og fram-
kvæmdavald leysti hið danska af
hólmi. Önnur framsetning var valin
á 50 ára afmæli fullveldisins 1968.
Ljósmynd af Jóni Magnússyni for-
sætisráðherra prýddi frímerkin sem
þá voru gefin út. En hugsunin var
hin sama. Litið var á andlit Jóns
sem sjónrænt tákn fullveldisins.
Frímerki fyrir allra augum
Lengst af á öldinni sem leið voru
frímerki daglega fyrir augum alls
þorra landsmanna á bréfum og
bögglum. Söfnun frímerkja og við-
skipti með þau, notuð sem ný, var
blómleg iðja og algengt tóm-
stundagaman. Fastir frímerkja-
þættir voru í öllum íslenskum dag-
blöðum og frímerkjaklúbbar
starfræktir um land allt. Ný frí-
merki sættu ávallt tíðindum og
mynduðust biðraðir á pósthúsum og
hjá frímerkjasölum þegar þau komu
út. Á þessum velmektardögum frí-
merkjanna skipti myndefni þeirra
talsverðu máli. Það hafði vægi á
svipaðan hátt og minnisvarðar sem
stjórnvöld láta reisa á almannafæri,
myndir á seðlum og mynt, minjasöfn
og minjastaðir og hvað annað sem
gert er í almannarýminu til að halda
á lofti og rækta sameiginlega arf-
leifð og sjálfsvitund þjóðarinnar.
Nú þegar frímerki eru orðin sjald-
gæf á póstsendingum og útgáfa
þeirra miðast einkum við sérstaka
áhugamenn og safnara innanlands
og utan vekur myndefnið minni
áhuga og athygli. Hefðin er þó sterk
og frímerki eru enn talin gagnlegur
og áhrifaríkur miðill. Þess vegna
hefur stjórnvöldum þótt við hæfi að
minnast 100 ára afmælis fullveld-
isins með sérstökum frímerkjum.
Ólíklegt er að þau hafi að öðru leyti
haft nokkur afskipti af útgáfunni.
Val myndefnis er í höndum hönnuða
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og
hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum
eða fyrirtækinu.
Ertu að byggja, breyta eða bæta?
Endilega kynntu
þér málið.
Snjalllausnir – nútíma raflögn