Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 66

Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 66
66 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 ✝ Magnús Á.Guðmundsson fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1926. Hann lést á Hjúkr- unar- og dvalar- heimilinu Höfða á Akranesi 24. febr- úar 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Ágústsson frá Birt- ingarholti, f. 2. maí 1897, d. 23. júlí 1976, og kona hans, Ragnheiður Sigfúsdóttir Thorarensen, f. 25. júní 1897, d. 29. ágúst 1942. Bræður Magn- úsar voru: a) Sigfús Haukur, f. 27. júní 1920, d. 22. maí 1962, maki Sigrún Björgúlfsdóttir og eignuðust þau þrjú börn, Skúla, Ragnheiði og Þórunni. b) Skúli Martin Andersen og eiga þau tvö börn, b) Ólafur Jónson, maki Elísabet Eydís Leósdóttir og eiga þau þrjú börn. b) Skúli Magnússon, f. 12. maí 1959, maki Sigríður O. Jónsdóttir, f. 10. október 1960. Börn þeirra eru a) Margrét Skúladóttir, maki Bragi Thoroddsen og eiga þau einn son. b) Magnús Á. Skúlason og á hann eina dóttur. Magnús lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1946 og flutti sama ár til Akra- ness og hóf störf hjá Haraldi Böðvarssyni og Co. þar sem hann vann allan sinn starfs- aldur, lengst af sem skrifstofu- stjóri. Auk starfa sinna hjá Har- aldi Böðvarssyni sat hann í stjórn Andarkílsárvirkjunar um árabil og var umboðsmaður Loftleiða á Akranesi, enn frem- ur var hann í stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Akraness um nokkurra ára skeið. Útför Magnúsar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 8. mars 2018, klukkan 13. Guðmundsson, f. 25. mars 1924, d. 22. janúar 2002, maki Aðalbjörg Björnsdóttir og eignuðust þau þrjár dætur, Ragnheiði, sem er látin, Mar- gréti Birnu og Erlu Björgu. Magnús átti tvo hálfbræður, samfeðra, Kára, sem er látinn, og Ágúst. Hinn 7. júlí 1951 kvæntist Magnús Ernu Sigurðardóttur, f. 19. júlí 1926, d. 7. júní 1999. Börn þeirra eru a) Sigríður H. Magnúsdóttir, f. 7. desember 1953, maki Jón Magni Ólafsson, f. 21. ágúst 1943. Börn þeirra eru a) Erna Jónsdóttir, maki Jæja afi, þá kom að þessu, ég veit ekki hversu oft við mamma höfum rætt að þetta hljóti nú að vera síðustu jólin en þau eru örugglega orðin átta í það minnsta. En ef maður heldur sig við sama spádóminn, sem er svo öruggur sem dauðinn er, þá hlýt- ur maður að hafa rétt fyrir sér á endanum. Og það hlaut að koma að þessu fyrr eða síðar þó að í þínu tilfelli hafi það verið síðar, mun síðar. En talandi um jólin þá rifjast upp öll jólin sem þið amma voruð hjá okkur og hvað það var alltaf notalegt. Ein jólin ákváðuð þið að vera bara tvö heima hjá ykkur og ég man að mér fannst eiginlega ekki vera jól nema þið væruð hjá okkur, þið voruð bara partur af jólahefðinni og svo þú eftir að amma dó. En ein af mínum fyrstu minn- ingum er þegar ég fékk að fara með þér í vinnuna þegar ég var í pössun hjá þér og ömmu. Ég hef örugglega ekki verið mikið eldri en sex ára og þetta hefur örugg- lega verið um helgi því ég man að við vorum bara tveir í húsinu. Þú hafðir kennt mér á innanhúss- símakerfið og ég hljóp um allar hæðir og fór inn á skrifstofur til að hringja í þig á þína skrifstofu til að spyrja þig hvað þú værir að gera, svo fór ég yfir á næstu skrifstofu og hringdi aftur og spurði „en núna?“ Mig rámar í að þér hafi nú þótt nóg komið þegar ég var búinn að hringja ca 10 sinnum í þig og þú sagðir mér að „núna væri komið nóg“ en ég man ennþá hvað mér fannst þetta gaman, að fara með afa í vinnuna og „vinna“ með þér. Minningarnar eru ótal fleiri úr Grundartúninu eins og þegar við vorum í heimsókn og þú varst að grilla á gamla kolagrillinu og við barnabörnin fengum það mikil- væga verkefni að slökkva í eld- inum með spreybrúsa ef hann gaus of kröftuglega upp. En núna er komið að leiðarlok- um og ég samgleðst þér að vera laus úr viðjum þessa hruma og þreytta líkama sem hefur haldið þér niðri undanfarin ár. Ég er þess fullviss að þér líður betur núna og vona bara að ykkur ömmu hafi tekist að sameinast á ný. Þinn Ólafur (Óli). Fáum óskyldum mönnum á ég meira að þakka en Magnúsi Guð- mundssyni, sem nú kveður að lokinni langri og viðburðaríkri ævi. Þegar ég hóf störf hjá Haraldi Böðvarssyni hafði Magnús þá þegar unnið með afa mínum og föður sem fjármálastjóri og stað- gengill framkvæmdastjóra á fjórða áratug, við einstaklega góðan orðstír. Magnús kom hingað til Akraness sem nýstúd- ent 19 ára frá Verslunarskólan- um og hugðist vinna sér inn fyrir framhaldsmenntun. Örlögin höguðu því svo til að árin urðu næstum sextíu á sama vinnustað. Það var ómetanlegt fyrir fyrir- tækið að fá þvílíkan snilling til starfa og var öllum brögðum beitt til að halda honum sem fastast. Magnús sagði stundum frá því þegar afi Haraldur gerði ýmsar lymskulegar tilraunir til að finna fyrir hann konuefni til að festa hann í sessi hér á Akranesi. „En mér tókst svolítið að leika á þann fullorðna – þegar ég flutti Ernu mína hingað frá Akureyri,“ sagði Magnús. Hér á Akranesi bjuggu þau Erna öll sín ár saman, lengst af á fallegu heimili þeirra á Grundartúninu. Erna var glæsi- leg kona og kunni sannarlega að gera fallegt í kringum fjölskyld- una. Kynni mín af Magnúsi eru samofin bernsku minni því að fjölskyldur okkar voru nánar, bæði í leik og starfi. Mér var það fyrst morgunljóst hvers konar akkeri hann var við stjórn fyrir- tækisins þegar ég hálfgerður drengstauli um tvítugt tókst á við þá ábyrgð að reka og stjórna stóru fyrirtæki í ólgusjó verð- bólgu og aflabrests. Þá var gott að leita liðsinnis Magnúsar, sem af reynslu, íhygli og einstakri ró- semi leiðbeindi mér. Hann lét mig aldrei finna annað en full- komið traust; lét mér líða sem jafningja þrátt fyrir mikinn ald- ursmun. Samvinna okkar var mér ómetanleg og verður ekki fullþökkuð. Magnús var góður maður í þess orðs fyllstu merkingu, gegnheill, ekki maður margra orða, en maður góðra verka. Hann hafði þolinmæði til að bera og þrautseigju í meiri mæli en aðrir menn sem ég hef kynnst. Það kom best í ljós í glímu hans við margar erfiðar byrðar sem hann bar með reisn án þess að kvarta. Magnús var gæddur óvenjugóðum gáfum, víðlesinn og tónlist var honum í blóð borin. Hann sóttist aldrei eftir metorð- um en það var sannarlega sóst eftir hæfileikum hans. Lítillæti, kurteisi og ástúð til samferðar- manna voru hans persónuein- kenni. Fyrir fáum dögum ræddum við síðast saman. Þá sagði hann mér að hann væri tilbúinn að kveðja og langaði mjög til að fljúga burt úr þreyttum líkama. Hugurinn var skýr og stefnan tekin á æðri slóðir. Nú hefur hann tekið flugið og ég veit að ef einhver á skilið góða lendingu er það Magnús. Ástvinum hans öllum bið ég og fjölskylda mín alls hins besta. Haraldur Sturlaugsson. Magnús Guðmundsson ✝ María HildurGuðmundsdótt- ir fæddist í Reykja- vík 15. nóvember 1925. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 24. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Rannveig Majasdóttir frá Bol- ungarvík, f. 19.6. 1891, d. 29.6. 1972, og Guð- mundur Magnússon frá Digra- nesi, f. 25.4. 1870, d. 6.11. 1934. Hún var næstyngst sjö systkina: Ingibjörg, f. 16.11. 1915, d. 13.5. 2006, Sigríður Elísabet, f. 14.5. 1917, d. 6.4. 1991, Emma, f. 13.11. 1918, d. 23.3. 2014, Guð- mundur Bjarni, f. 5.7. 1921, d. 7.4. 1995, Kristján Friðrik, f. 13.12. 1923, d. 3.12. 2016, Ragn- 1974, synir hennar og Andra Ottós Ragnarssonar: Aron Logi, f. 28.12. 2003, og Skarphéðinn Elí, f. 23.10. 2012. 2) Skarphéð- inn Kristinn, f. 25.11. 1981, d. 27.5. 2005. María Hildur missti föður sinn rétt tæplega níu ára og ólst upp hjá móður sinni eftir það. Fjöl- skyldan var í leiguhúsnæði á ýmsum stöðum í Reykjavík. Hún gekk í Austurbæjarskóla og tók þaðan barnaskólapróf. Á æsku- árum var hún í sveit á Mýrum í Borgarfirði og svo á Nesi í Höfð- ahverfi. Hún gekk snemma í KR, þar sem hún æfði handbolta og varð svo fyrirliði fyrsta landsliðs kvenna í handbolta árið 1956. Hún byrjaði ung að vinna hjá Sigríði Zoëga ljósmyndara, fyrst á ljósmyndastofunni og síðar á ljósprentstofunni, hún vann þar í 37 ár. Eftir það var hún gang- astúlka á Landakoti og síðar verkakona hjá Sólargluggatjöld- um. Útför Maríu Hildar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 8. mars 2018, og hefst athöfnin kl. 13. hildur Guðrún, f. 12.8. 1930. Auk þeirra átti María Hildur þrjú eldri systkini, samfeðra. Þau voru Agatha Kristbjörg, f. 19.8. 1906, d. 17.3. 1937, Kristján Friðrik, f. 14.6. 1909, d. 16.5. 1999, og Kristín Sigurveig Frið- rikka, f. 20.11. 1913, d. 20.7. 1990. María Hildur eignaðist eina dóttur, Rannveigu Sigurgeirs- dóttur, f. 12.11. 1964, faðir henn- ar er Sigurgeir Bjarni Guðmannsson, f. 2.5. 1927. Rann- veig er gift Sverri Jónssyni, f. 4.1. 1950. Sverrir var giftur Guð- rúnu L. Skarphéðinsdóttur, f. 25.1. 1949, d. 13.8. 1982. Börn þeirra: 1) Erla Jóna, f. 26.8. Mamma. Elsku mamma mín. Þú varst Maja systir, Maja frænka, Maja hjá Sigríði Zoëga, auðvitað Maja í KR, Maja kapt- einn, enda varstu fyrirliði í hand- boltanum, bæði í KR og svo í fyrsta landsliði kvenna í hand- bolta. Þú varst líka Maja á Birki- melnum og Maja hinum megin, þið voruð tvær á sama stigapall- inum á Birkimelnum sem hétuð María og báðar kallaðar Maja og einfaldast að kalla ykkur báðar Maja hinum megin. Þú varst líka Maja vinkona, þú varðst aldrei Maja amma, en þú varst Maja langamma. Í mínum huga varstu einfaldlega mamma. Það eru svo margar minning- ar sem koma upp í hugann, eins og handboltinn, sem var órjúf- anlegur hluti af þér. Þitt mesta stolt í lífinu var að hafa fengið að spila fyrsta landsleik fyrir Ís- lands hönd þann 19. júní 1956. Það má segja að þessi dagur hafi verið þríheilagur fyrir þig: af- mælisdagur mömmu þinnar, fyrsti landsleikurinn og svo kvennadagurinn. Það var yndis- legt að fá að fara með þér síðustu ár að hitta „stelpurnar þínar“ og að finna vináttuna og væntum- þykjuna á milli ykkar eftir öll þessi ár. Þú fórst oft með KR- stelpunum að horfa á handbolta- leiki, þangað til þið voruð beðnar um að yfirgefa áhorfendapallana – enda voruð þið næstum komn- ar inn á völlinn, það var komið gat í vörnina og þið ætluðuð að hjálpa til. Eftir það léstu þér nægja að horfa á boltann í sjón- varpinu. Vinir mínir komu oft á Birkimelinn þegar leikur var í sjónvarpinu, bara til að horfa á þig. Þú tókst ekki eftir neinu, fyrr en allt í einu að þú leist á okkur, og þá vorum við öll skelli- hlæjandi. Það er svo margt sem kemur upp í hugann, margt sem ég er þakklát fyrir og annað sem ég ætla að gleyma. Ég ætla að gleyma erfiðu árunum þínum og halda bara í góðu minningarnar, þær eru nefnilega svo margar. Þú varst einn mesti grallari sem ég hef kynnst, það var alltaf stutt í grínið hjá þér og alltaf varstu til í eitthvert sprell. Þú varst líka stríðnispúki, en alltaf var það í góðu. Þig dreymdi um að verða íþróttakennari, en það var aldrei hægt. Aðstæður voru erfiðar, amma ekkja og þið mörg systkinin. Þess vegna lagðir þú alla áherslu á að ég gæti lært það sem mig langaði til að læra. Ég hef svo margt að vera þakklát fyrir. Ég er þakklát fyrir allar vinkonur þínar og vini og tryggðina sem þau sýndu þér alla tíð. Ég er þakklát fyrir að þú kenndir mér að meta lestur og undraheiminn sem leynist í bók- um. Ég er þakklát fyrir að vinir mínir voru alltaf velkomnir til okkar á Birkimelinn og ég er þakklát fyrir vináttuna, tryggð- ina og væntumþykjuna sem þau sýndu þér alltaf. Ég er þakklát fyrir það að þú þekktir mig fram á síðustu stundu, þó að flest ann- að hyrfi í þoku Alzheimers. Ég er líka þakklát fyrir að hafa verið hjá þér þegar þú kvaddir þessa jarðvist. Það er skrítið að kveðja þig, elsku mamma mín, en ég veit að núna líður þér vel, þú ert komin til mömmu þinnar og pabba, og þeirra systkina þinna sem eru farin. Hvíl í friði, elsku mamma, við sjáumst aftur þegar þar að kemur. Þín dóttir Rannveig (Veiga). Okkur langaði að setja niður nokkur orð um kæra vinkonu okkar, hana Maríu H. Guð- mundsdóttur eða Mæju, sem var góð vinkona hennar mömmu og okkar . Þær voru báðar í KR og vinkonur alla tíð. Þær mæðgur Rannveig móðir hennar, Mæja og dóttirin Rannveig sem við þekkjum sem Veigu bjuggu með okkur í Tjarnargötunni áður en þær fluttu á Birkimelinn. Á milli fjölskyldnanna var mikill sam- gangur og þær vinkonur voru báðar einstæðar mæður, sem var ekki svo algengt á þessum árum. Það var alltaf gaman að hitta Mæju og hún tók brosandi á móti manni, var hress og skemmtileg. Það er þessi hressleiki sem fylgir okkur áfram út í lífið á þessari kveðjustund. Við þökkum fyrir samveruna, elsku Mæja mín. Ingunn og Ingólfur Björns- börn (Ingi og Inga). Í dag kveðjum við kæra vin- konu okkar, hana Maju, sem lést 25. febrúar síðastliðinn 92 ára að aldri. Við kynntumst henni fyrir rúmum 60 árum í handbolta í KR. Hún var sjálf búin að vera í félaginu í langan tíma og tók vel á móti okkur nýliðunum. Hún var jákvæð og glaðlynd og hélt vel utan um okkur. Það er svo margt sem fer í gegnum hugann þegar horft er til liðinna tíma. Blómaskeið handbolta kvenna og karla í KR var frá árinu 1954- 1960 og var Maja foringi og fyr- irliði okkar stelpnanna. Í okkar augum var hún alltaf Maja kapt- einn og við alltaf stelpurnar hennar. Lífið var handbolti á þessum árum og félagslífið mjög öflugt. Við fórum í allnokkrar keppnisferðir á þessum tíma bæði innanlands og utan. Þarna myndaðist vinátta sem enst hef- ur alla ævi. Maja var fyrirliði fyrsta lands- liðs Íslands í handbolta árið 1956 og var fyrsti landsleikurinn háð- ur 19. júní það ár á Bislett-leik- vanginum í Ósló. Leikurinn var leikinn á grasi utandyra í aus- andi rigningu og íslenska lands- liðið lék í venjulegum strigaskóm en þær norsku í takkaskóm og auðvitað runnum við út og suður á blautu grasinu en þær gátu hæglega stöðvað á punktinum. Leiknum lauk með sigri Norð- manna 10:7. Þetta var í þá daga, en nú er öldin önnur. Við stelpurnar sem hittumst í KR þarna um árið eigum saman ógleymanlegar minningar um veru okkar í KR og skemmtilegt tímabil í lífi okkar allra. Við hitt- umst enn mánaðarlega og meðan heilsa Maju leyfði mætti hún alltaf kát og glöð og mundi ávallt eftir stelpunum sínum. Við minnumst Maju með hlý- hug og sendum Veigu og fjöl- skyldu hennar innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Maju okk- ar kapteins. F.h. KR-stelpnanna, Elín, Erna, Geirlaug, Gerða. Sem dropi tindrandi tæki sig út úr regni hætti við að falla héldist í loftinu kyrr – þannig fer unaðssömum augnablikum hins liðna. Þau taka sig út úr tímanum og ljóma kyrrstæð, meðan hrynur gegnum hjartað stund eftir stund. (Hannes Pétursson) Með þakklæti fyrir gömul og góð kynni. Ingibjörg Hauksdóttir. Maja móðursystir mín kvaddi okkur 24. febrúar sl., 92 ára að aldri. Síðustu ár sín dvaldi hún í Sunnuhlíð í Kópavogi og fékk þar góða umönnun en hún var sjúklingur síðustu árin. Maja hélt lengi heimili í Reykjavík með móður sinni Rannveigu Majasdóttur, sem varð ekkja ung að árum, afi var Guðmundur Magnússon. Maja fór snemma að vinna, lengst sem aðstoðarkona á Ljósmyndastofu Sigríðar Zoëga í 37 ár. Hún hafði mikinn áhuga á ljósmyndun og langaði að mennta sig á því sviði en það gekk ekki eftir vegna fá- tæktar. Hún eignaðist þó ljós- myndavél og tók myndir sjálfri sér og öðrum í fjölskyldunni til ánægju. Þær mæðgur leigðu íbúð á Laufásvegi í nokkur ár. Gömul hjón bjuggu í kjallaranum og höfðu þau á orði að það mætti stilla klukkuna eftir því hvenær Maja lokaði hliðinu á eftir sér þegar hún fór gangandi til vinnu í Austurstræti, alltaf á sama tíma morguns. Maja hafði alltaf sérstakan áhuga á íslenskri tungu. Þá var handbolti hennar áhugamál alla tíð, hún var KR-ingur af lífi og sál og var fyrirliði kvennaliðsins. Hún var líka fyrirliði landsliðs kvenna í handbolta er liðið keppti í fyrsta skipti á Norður- landamóti fyrir Íslands hönd árið 1956 og lenti í þriðja sæti.Var hún lengi á eftir kölluð Maja kaf- teinn meðal vina. Hún var lítil og grönn og frá á fæti. Hún sagði mér að Guðmundur pabbi henn- ar hefði stundum hlaupið milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, svo hún átti kannski ekki langt að sækja fótafimina. Á Vitatorgs-elliárunum dreif Maja stundum í því þegar RÚV sýndi frá heimsmeistaramótum í fótbolta, að fá leyfi starfsfólks fyrir áhugasama íbúa til að dvelja lengur en vanalega í sjón- varpsstofunni. Þau fylgdust svo með keppninni og þegar rétta liðið skoraði mark gaf Maja næsta manni olnbogaskot og hrópin í þeim heyrðust langar leiðir. Á þessum árum var Maja auðvitað aðaldriffjöðrin í botsía- liði Vitatorgs. Maja var barnlaus framundir fertugt en sýndi okkur systkina- börnum sínum mikinn kærleika og gaf okkur til dæmis spenn- andi gjafir þegar hún kom heim úr keppnisferðum á hinum Norð- urlöndunum. Hún var ósjaldan til í að grínast með okkur. Jæja, gamla geit, hvað segirðu nú? sagði hún stundum við mig þegar ég bjó hjá þeim í kjallaraíbúð á Tjarnargötu einn vetur á ung- lingsárum. Hún smitaði mig af handboltadellu á þeim tíma og fór einu sinni með mig og Ingu, systur mína, í keppni í skíða- göngu og hvatti okkur eins og foreldrar mínir til að taka þátt í Norðurlandakeppni almennings í sundi. Fyrir allt þetta og ótal margt annað er ég Maju þakklát. Ári áður en hún varð fertug eignaðist Maja dótturina Rann- veigu Sigurgeirsdóttur og ól hana upp, fyrstu ár Veigu bjó amma með þeim á Birkimel í íbúð Sigurgeirs Guðmannssonar en eftir lát ömmu bjuggu þær tvær saman í mörg ár. Veiga fór eftir stúdentspróf í MH til há- skólanáms í frönsku í Sviss en flutti heim að því loknu. Ég votta Veigu, eiginmanni hennar Sverri Jónssyni og fjöl- skyldu þeirra innilega samúð mína. Rannveig Haraldsdóttir. María Hildur Guðmundsdóttir HINSTA KVEÐJA Þín augu mild mér brosa á myrkri stund og minning þín rís hægt úr tímans djúpi sem hönd er strýkur mjúk um föla kinn þín minning björt (Ingibjörg Haraldsdóttir) Sverrir, Erla Jóna, Aron Logi og Skarphéðinn Elí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.