Morgunblaðið - 08.03.2018, Page 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Síðastliðna mánuði hafa mörg ríki
lýst því yfir að þau hyggist auka
framlög sín til varnarmála. Sumir
hafa spáð miklum hækkunum á
árinu og hefur til að mynda upplýs-
ingaveitan Jane’s IHS, sem sérhæfir
sig í hernaðar-,
flug-, og sam-
göngumálum,
spáð að sett verði
nýtt met í út-
gjöldum til varn-
armála. Gert er
ráð fyrir að út-
gjöld muni
hækka um 3,3%
til málaflokksins
og heildarútgjöld
muni standa í
rúmlega 1.600 milljörðum banda-
ríkjadala á heimsvísu fyrir árið 2018,
það mesta frá því á tímum kalda
stríðsins.
Page Lousie Wilson, öryggisfræð-
ingur, alþjóðalögfræðingur og dós-
ent við stjórnmálafræðideild Há-
skóla Íslands, segir í samtali við
Morgunblaðið að „spár þarf alltaf að
taka með ákveðnum fyrirvara. Til að
mynda hafa sumar spár, svo sem spá
alþjóðlega friðarrannsóknarseturs-
ins í Stokkhólmi (SIPRI), talað um
að það myndi draga úr hækkunum á
árinu. Dæmi eru samt um að sumar
þjóðir hafa verið að auka sín útgjöld
mikið að undanförnu, sérstaklega í
Austur-Evrópu“.
Þeir stóru hækka framlög mest
Bandaríkin auka framlög sín mest
og er sú hækkun talin vera stærsti
þátturinn í því að fyrri útgjaldamet
gætu verið slegin á árinu. Hinn 12.
desember síðastliðinn skrifaði for-
seti Bandaríkjanna, Donald Trump,
undir fjárlög varnarmála og gera
þau ráð fyrir að 692 milljörðum
bandaríkjadala verði varið til varn-
armála. Aðspurð um þessa miklu
fjárhæð segir Wilson: „Bandaríkin
hafa þegar gífurlega yfirburðastöðu
er varðar hernaðarmál og framlög til
þeirra. Í þessu samhengi gæti verið
ætlun Bandaríkjanna að viðhalda
stöðu sinni gagnvart þeim ríkjum
sem eru hugsanlega að reyna að
jafna leikinn. Hvort sem það er
raunin eða ekki þarf að hafa í huga
að það er ennþá mjög langt á milli.“
Samkvæmt frétt AFP hyggjast
kínversk stjórnvöld auka framlög til
varnarmála um 8,1% á árinu, en það
kom fram í fjármálaskýrslu sem lögð
var fyrir þjóðráð kínverska komm-
únistaflokksins á mánudag. Nú þeg-
ar ver Kína næstmestu allra til
málaflokksins. „Í sambandi við Kína
er þetta mjög mikil hækkun, sér-
staklega ef litið er til þess að NATÓ
á erfitt með að fá aðildarríki sín til
þess að ná markmiðinu um 2%,“ seg-
ir Wilson. Hún bætir við „að í ljósi
þess að það er efnahagsvöxtur í Kína
er ekki endilega óeðlilegt að þessi
framlög aukist“.
Rússneska fréttastofan TASS
hafði í desember eftir varnarmála-
ráðherra Rússlands, Sergei Shoigu,
að Rússar myndu verja 46 milljörð-
um bandaríkjadala til varnarmála
árið 2018. Kreml hefur sagt þetta
vera lækkun og jafnframt sagst ætla
að minnka framlög til varnarmála á
komandi árum.
Athugasemdir hafa verið gerðar
við réttmæti talna rússneskra yfir-
valda, aðallega vegna þess að þar-
lend yfirvöld skilgreina útgjöld til
varnarmála með öðrum hætti en
gerist víða. Alþjóðastofnun öryggis-
fræða (IISS) áætlar að heildar-
útgjöld Rússa verði tæpir 68 millj-
arðar bandaríkjadala árið 2018.
„Það er nokkuð erfitt að sjá sam-
hengið milli þess að Rússar segjast
ætla að lækka hernaðarútgjöld og
þess að Pútín var fyrir nokkrum
dögum að gorta af því að eiga ósigr-
andi kjarnorkuvopn. Ég tel hins veg-
ar að þessi kjarnorkueldflaug Rúss-
lands sé jafn ósigrandi og Títanik
var ósökkvandi. Ástæða þess að ég
segi þetta er að Pútín er mjög snjall
stjórnmálamaður og hann gerir sér
grein fyrir, ef þýðingin er rétt, að
svona yfirlýsingar geta valdið pólí-
tísku bakslagi. Þetta er það sem
heimamenn vilja heyra og verður að
sjá í samhengi við komandi forseta-
kosningar í Rússlandi.“
Aukin tortryggni í Asíu
Indversk stjórnvöld stefna að
talsverðri útgjaldaaukningu, en
samkvæmt dagblaðinu Mint gerir
fjárlagafrumvarp indversku ríkis-
stjórnarinnar ráð fyrir 7,6% aukn-
ingu fjárveitinga til varnarmála.
Japan hefur einnig ákveðið að
hækka sín útgjöld samkvæmt fjár-
lögum sem samþykkt voru í desem-
ber síðastliðnum, en þetta er aukn-
ing sjötta árið í röð. Á svipuðum
tíma ákváðu stjórnvöld í Suður-Kór-
eu að auka framlög sín til varnar-
mála um 6,9%, segir í frétt Yonhap.
Wilson telur að „líklega sé þetta
vegna þess að ríkin eru bæði að
fylgjast með Bandaríkjunum og
Kína. Við sjáum Kína byggja upp
hernaðarinnviði í Suður-Kínahafi á
Spratly-rifi sem er umdeilt svæði og
á nýjustu gervihnattamyndum
sjáum við nákvæmlega hvað Kína er
að byggja til þess að tryggja tilkall
sitt til svæðisins, önnur ríki taka
auðvitað eftir þessari þróun. Japan
og Indland fylgjast með því í hvað
Kína eyðir fjármunum sínum, einnig
er óvissa hvað varðar stefnu Banda-
ríkjanna. Trump-stjórnin á það til að
segja eitt og gera annað.“
Sádi-Arabía, það ríki sem leggur
mest fé í málaflokkinn á Mið-Aust-
urlöndum, hyggst einnig auka fjár-
veitingar til hernaðar, eða um 10%
meira en árið 2017 samkvæmt Ja-
ne’s IHS.
Óvissa vegna Bandaríkjanna
Fulltrúar ríkisstjórna Frakklands
og Þýskalands hafa gefið það út að
löndin vilji standa að frekari fjár-
veitingum til þess að bæta varnar-
getu ríkjanna. Frakkland jók út-
gjöld sín á fjárlögum fyrir 2018 og
hefur Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, heitið því að ríkið muni
standa að frekari hækkunum næstu
ár, en þetta kemur fram í umfjöllun
AP frá því í febrúar. Reuters upp-
lýsti í síðasta mánuði að varnarmála-
ráðherra Þýskalands, Ursula von
der Leyen, hefði lýst sambærilegum
áformum á öryggisráðstefnu í
München.
„Þegar óvissa skapast um stefnu
þess ríkis sem hefur verið leiðandi í
alþjóðakerfinu, eins og hefur gerst
undir núverandi ríkisstjórn Banda-
ríkjanna, er líklegt að hefðbundnir
bandamenn þeirra, eins og Japan,
ríki Austur-Evrópu og NATÓ-ríkin,
setji spurningarmerki við áreiðan-
leika bandalagsins. Í framhaldinu
gætu þau hugsað að við þyrftum
hugsanlega að efla getu okkar til
þess að verja okkur sjálf,“ segir Wil-
son.
Útgjöld 10 útgjaldahæstu ríkja til varnarmála 2017
0 50 100 150 200 250 300 350 400 450 500 550 600Milljarðar USD
*Tölur sem erfitt er að sannreyna, en eru byggðar á ígrunduðum áætlunum
Heimild: Alþjóðastofnun öryggisfræða (IISS)
Suður-Kórea
Þýskaland
Japan
Frakkland
Bretland
Indland
Rússland
Sádí-Arabía
Kína
Bandaríkin
35,6
41,7
46,0
48,6
50,7
52,5
68,0*
76,7
150,5
602,7
10 útgjaldahæstu samtals:
72,5%
eða 1.128,8
milljarðar USD
1.556,9
milljarðar
USD
Heildarútgjöld til
varnarmála í heiminum
Hernaðarútgjöld aukast víða
Vísbendingar um að framlög til varnarmála á heimsvísu hækki verulega 2018 gæti orðið metár
Sérfræðingar segja stefnu Bandaríkjanna auka óvissu sem gæti ýtt undir aukin hernaðarútgjöld
Page Lousie
Wilson
Útgjalda-
aukning til
varnarmála
teygir anga
sína víða um
heiminn. Dr.
Marc Lant-
eigne, sér-
fræðingur á
sviði kín-
verskra
stjórnmála og utanríkisstefnu
starfar við Massey-háskóla á
Nýja-Sjálandi, segir við blaða-
mann Morgunblaðsins að „þrátt
fyrir alla þá alþjóðlegu athygli
sem útgjaldaaukning Kína hefur
fengið verður að taka fram að
þessar tölur blikna í sam-
anburði við ráðstafanir í fjár-
lögum Bandaríkjanna. Í tilfelli
beggja er augljóslega einhver
þörf fyrir ríkin að sýna hern-
aðarlegan styrk sinn.“
„Ef horft er frá sjónarhóli
Kína hefur ríkið á undanförnum
árum haft framsækna stefnu og
farið í umfangsmiklar fjárfest-
ingar í alþjóðlegum við-
skiptainnviðum, þannig að nú
verður ríkið að sýna að það hafi
burði til þess að verja kínverska
ríkisborgara og eignir erlendis.
Til dæmis eru framlög Kína til
friðargæslu Sameinuðu þjóð-
anna, hvað mannskap varðar,
mun meiri en nokkurs annars
þeirra fimm fastafulltrúa sem
eru í Öryggisráðinu. Einnig er
Kína að auka viðveru sína í Suð-
ur-Kínahafi, þrátt fyrir þrýsting
frá Bandaríkjunum og banda-
mönnum þeirra,“ segir Lant-
eigne aðspurður um áform Kín-
verja.
Að sögn Lanteigne „veldur
stefna Kína og Norður-Kóreu
því að Japan hefur þurft að end-
urskoða varnarstefnu sína og
farið í að bæta hernaðargetu
sína. Indland hefur séð ástæðu
til þess að bæta varnir sínar
vegna áformum Kínverja um að
auka hernaðarlega viðveru sína
á Indlandshafi, að auki er staða
öryggismála í Pakistan áhyggju-
efni fyrir Indverja.“
„Við verðum einnig að hafa í
huga að hærri hernaðarútgjöld
geta líka verið afleiðing efna-
hagsvaxtar. Á sama tíma er lík-
legt að staðan í Mið-Aust-
urlöndum líkleg til þess útskýra
hluta þessarar þróunar. Það er
líka áhyggjuefni ríkja að Banda-
ríkin virðast færast í átt að
minni afskiptum á alþjóðavett-
vangi, sem ýtir undir breytta
stefnu meðal bandamanna
þeirra.“
Breyttar
horfur í Asíu
KÍNA
Marc Lanteigne
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
LÍKA FYRIR STÓRU
HUNDANA
– fyrir dýrin þín