Morgunblaðið - 08.03.2018, Page 47

Morgunblaðið - 08.03.2018, Page 47
47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Keppt í upplestri Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna í Reykjavík fór fram í 20. sinn í Ráðhúsinu í gær, en hún á 22 ára afmæli. Meginmarkmið keppninnar er að þjálfa nemendur í upplestri. Kristinn Magnússon „Gentrification“ er nokkurs konar auð- valdsþróun þar sem hin- ir tekjuhærri koma í stað tekjulægri íbúa sem neyðast til að flytja burt vegna hærra fast- eignaverðs. Auðvalds- þróun þar sem lágtekju- og verkamanna- hverfum, sem oft var illa við haldið, er breytt með miklu fjármagni. Þróuninni fylgir breyting á borg- arlandslaginu og borgarformi með nýrri þjónustu og breyttum arkitekt- úr. Íbúum í 101 Reykjavík fækkaði mjög með fjölgun bíla eftir stríð þar sem fólk fluttist í hópum í ný út- hverfi. En á meðan í flestum öðrum borgum hafa orðið umskipti þar á og vinsælast er að búa miðsvæðis þá hefur íbúum í miðborginni haldið áfram að fækka. Í staðinn hafa kom- ið gistirými fyrir fjölda ferðamanna og nú er að koma að þeim tímamót- um að þar gistir einn ferðamaður fyrir hvern íbúa. Þessi aukna eft- irspurn eftir gistirým- um hefur kynt undir ásókn fjárfesta í að þjónusta ferðamenn í miðborginni og hafa þeir getað athafnað sig án verulegra hamla og byggt hótel (yfir 60% af hótelum landsins eru í 101 Rvk) og keypt upp íbúðir án vand- kvæða. Fjárfestar hafa fengið mun meiri hagn- að af því að fjárfesta í ferðaþjónust- unni en í venjulegu íbúðarhúsnæði og því hafa þeir yfirtekið markaðinn í þágu ferðaþjónustunnar á meðan íbúarnir hafa verið hraktir úr mið- borginni. Ferðamannafjöldinn hefur gert það að verkum að grundvöllur hefur orðið fyrir meiri og fjölbreytt- ari veitingarekstur, líkt og í Fen- eyjum. En þar sem íbúinn er ekki lengur jafn áhugaverður við- skiptavinur hefur þjónustan við hann jafnt og þétt minnkað. Miðborg Reykjavíkur sem áður hafði verslun á hverju horni á erfitt með að byggja sig upp aftur í hag íbúa eins og aðrar borgir hafa gert með þéttingu byggð- ar og auknum vinsældum þess að búa miðsvæðis. Of fáum lóðum er haldið eftir fyrir þjónustu við íbúa og þeir sem hafa áhuga á að flytja í miðborg- ina hafa lítinn möguleika á því, vegna þess að skipulagið er þeim ekki í hag. Fjárfestar eru uppteknir í ferða- mannahverfum sem byggjast nú á eyðslu og skemmtun. Meira að segja svo uppteknir að erfitt getur reynst fyrir þá sem hafa efni á því að fá verk- taka í venjulegar íbúðabyggingar. Í Reykjavík og víðar hefur húsnæð- isverð og heimilisútgjöld orðið fyrir miklum hækkunum sem setja má í beint samhengi við auðvaldsþróun tengda ferðamannaiðnaðinum. Það er hlutverk skipulagsyfirvalda að hafa áhrif á eftirspurnina með stýringu og að sporna við auð- valdsþróuninni. Hvað má m.a. gera til að sporna við fækkun íbúa, veita þeim betri þjón- ustu og auka gæði umhverfisins? – Byggja upp skipulega, auka þátt- töku íbúa í ákvörðunartöku og veita aðstoð til einkaframkvæmda. – Auka framboð á ódýrara hús- næði. – Beina fjárfestum á önnur svæði en miðborgina og í íbúðauppbyggingu með borgarskipulagi, gjöldum og af- sláttarkjörum. Nota má eftirspurnina eftir hótelum til þess að byggja upp hverfiskjarna í úthverfum, auka þar þjónustu og bæta þar almennings- samgöngur (t.d. Mjódd). – Heimila ekki breytingu á íbúðar- húsnæði í atvinnuhúsnæði nema í undantekningartilvikum. – Taka úr nýju aðalskipulagsbreyt- ingunni um gististaði (14. september 2017) heimild til byggja fleiri hótel í miðborg Reykjavíkur og að breyta megi íbúðum í skammtímaútleigu- íbúðir á öllum aðalgötum. Sporna við íbúðahótelum sem nú hafa tekið yfir um 400 íbúðir í 101 Reykjavík eða 10%. – Taka einnig úr fyrrnefndri að- alskipulagsbreytingu að leyfa gisti- staði (í flokki II og III) út í Örfirisey, við hafnarsvæði miðborgarsvæðis og við íþróttasvæði. – Takmarka með reglugerð mögu- leikana á því að ferðamannaiðnaður sé skipulagður á kostnað þjónustu við íbúa sem þarf annars að víkja. – Hætta alfarið að flytja friðuð hús úr stað eða rífa þau og endurbyggja. Vernda strandlengjuna og tengingu sögulegrar byggðar við sjóinn. – Nauðsynlegt að taka frá svæði fyrir þjónustu við íbúa og komandi kynslóðir sem munu þurfa svæði fyr- ir framtíðarhugmyndir. Flest gefur til kynna að ásókn í gistirými muni aðeins aukast og að vanhugsað sé að vilja metta mark- aðinn í miðborginni. Hér gilda sömu lögmál og með bílaumferð, miðborgin getur ekki tekið endalaust við meiru. Við þurfum að hugsa um okkar þegna, þarfir á húsnæði, gæði nær- þjónustu, fjölbreytni, almenn lífs- gæði og viðhalda menningu og minj- um. Eftir Birgi Þröst Jóhannsson »En þar sem íbúinn er ekki lengur jafn áhugaverður viðskipta- vinur hefur þjónustan við hann jafnt og þétt minnkað. Birgir Þröstur Jóhannsson Höfundur er arkitekt og sækist eftir 2. sæti á lista Pírata í komandi sveitarstjórnarkosningum. Auðvaldsþróun í Reykjavík: „Tourism gentrification“ Við stöndum á tíma- mótum hvað varðar réttindi kvenna. Kúgun og mismunun, sem hef- ur þrifist í skjóli sögu- legs og kerfisbundins ójöfnuðar, er nú op- inberuð sem aldrei fyrr. Hvort heldur sem er í Suður-Ameríku, Evrópu eða Asíu, á samfélagsmiðlum, í verksmiðjum eða á götum úti; alls staðar eru konur að krefjast var- anlegra breytinga. Þær krefjast þess að hvers kyns kynbundnu ofbeldi, áreitni og mismunun verði útrýmt. Stærsta mannréttindaáskorun heimsins og stærsta ólokna verkefni heimsins er að tryggja jafnrétti kynjanna og efla völd kvenna. Virkni og málflutningur margra kynslóða kvenna hefur uppskorið ár- angur. Fleiri stúlkur sækja skóla en nokkru sinni fyrr. Fleiri konur vinna launaða vinnu og gegna ábyrgðar- stöðum í einkageiranum, háskóla- samfélaginu, í stjórnmálum og al- þjóðlegum samtökum, þar á meðal hjá Sameinuðu þjóð- unum. Jafnrétti kynjanna hefur verið lögfest og skaðlegar að- gerðir á borð við kyn- færalimlestingar og barnahjónabönd hafa víða verið bannaðar. En alvarlegar hindr- anir standa í vegi fyrir því að leiðrétta sögu- legan halla, sem liggur til grundvallar mis- munun og misnotkun. Meir en milljarð kvenna skortir lagalega vernd gegn kynferðislegu heimilisofbeldi. Launamunur kynjanna er 23% á heimsvísu, og allt að 40% í dreifbýli, auk þess sem ólaunuð vinna kvenna er ekki viðurkennd. Að meðaltali er hlutfall kvenna á þjóðþingum fjórð- ungur og enn lægra í stjórnum fyr- irtækja. Án samhæfðra aðgerða munu milljónir stúlkna sæta kyn- færalimlestingum á næsta áratug. Þar sem lög hafa verið sett er oft ekki farið eftir þeim og konur eru oft virtar að vettugi, málflutningur þeirra dreginn í efa og þær smán- aðar, þegar þær leita réttar síns. Við vitum sífellt betur að kynferðisleg áreitni og mismunun hefur viðgeng- ist á vinnustöðum, á opinberum vett- vangi og á einkaheimilum, jafnvel í löndum sem telja sig hafa náð góðum árangri í jafnréttismálum. Sameinuðu þjóðunum ber að vera öðrum fyrirmynd í heiminum. Ég viðurkenni að þetta hefur ekki alltaf verið tilfellið. Frá því ég tók við starfi mínu hef ég ýtt úr vör ýmsum aðgerðum í höfuðstöðvum Samein- uðu þjóðanna í New York, í frið- argæslusveitum okkar og skrif- stofum um allan heim. Við höfum nú náð jafnvægi á milli kynjanna í æðsta stjórnunarteymi mínu og ég er ákveðinn í að ná sama árangri innan samtakanna í heild sinni. Ég er staðráðinn í að útrýma kynferðislegri áreitni og hef tekið saman áætlanir til að bæta kæruleið- ir og auka ábyrgð. Við vinum náið með ríkjum um all- an heim til þess að koma í veg fyrir og taka á kynferðislegri misnotkun og afbrotum starfsfólks í friðar- gæslusveitum og veita fórnar- lömbum stuðning. Við hjá Sameinuðu þjóðunum stöndum þétt að baki konum um all- an heim sem berjast fyrir því að brjóta á bak aftur óréttlæti sem þær mega þola. Hvort sem það eru konur í dreifbýli sem krefjast sömu launa og karlar, konur í borgum sem berj- ast fyrir breytingum, flóttakonur sem eiga á hættu misnotkun og áreitni eða konur sem þola margt af þessu í senn: ekkjur, frum- byggjakonur, konur með fötlun og konur sem falla ekki inn í hefðbundin kynjahlutverk. Aukin völd kvenna eru hluti af kjarna Áætlunar 2030 um sjálfbæra þróun – eða svokallaðra Heimsmark- miða. Árangur í heimsmarkmiðunum þýðir árangur fyrir konur, alls stað- ar. Kastljós-frumkvæðið (Spotlight) sem við stöndum að ásamt Evrópu- sambandinu beinir sjónum sínum að því að útrýma ofbeldi gegn konum og stúlkum, en slíkt er forsenda jafn- réttis og valdeflingar kvenna. Velkjumst ekki í vafa: við erum ekki að gera konum greiða. Jafnrétti kynjanna snýst um mannréttindi, en það er í líka í allra þágu: karla og drengja, kvenna og stúlkna. Ójafn- rétti og mismunun gagnvart konum skaðar okkur öll. Það eru skýr dæmi um að fjárfest- ing í konum er skilvirkasta leiðin til þess að efla samfélög, fyrirtæki og jafnvel ríki. Þátttaka kvenna styrkir friðarsamkomulög, eykur þolgæði samfélaga og þrautseiglu hagkerf- isins. Þar sem konum er mismunað þrífast oft siðir og hefðir sem valda öllum tjóni. Feðraorlof, lög gegn heimilisofbeldi og lög um jöfn laun eru allra hagur. Á þessu þýðingarmikla augnbliki í réttindabaráttu kvenna, er tímabært fyrir karla að taka sér stöðu við hlið kvenna; hlusta á þær og læra af þeim. Gagnsæi og ábyrgð vega þungt ef tryggja skal að konur njóti hæfi- leika sinna til fullnustu og er öllum lyftistöng í samfélögum okkar, þjóð- félögum og hagkerfum. Ég er stoltur af því að vera hluti af þessari hreyfingu og ég vona að rödd hennar haldi áfram að hljóma innan Sameinuðu þjóðanna og um allan heim. Eftir António Guterres » Við höfum nú náð jafnvægi á milli kynjanna í æðsta stjórn- unarteymi mínu og ég er ákveðinn í að ná sama árangri innan samtak- anna í heild sinni. António Guterres Höfundur er aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Framþróun kvenna er í allra þágu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.