Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk framleiðsla
• Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta
og ráðgjöf
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Allir staðir á landinu hafa fundið fyr-
ir lélegri afkomu burðarfyrirtækja í
sínu sveitarfélagi. Þegar við bætist að
verið er að greiða veiðigjald, sem
byggist á afkomu
ársins 2015, sem
var gott ár í sjáv-
arútvegi, er aug-
ljóst að það mun
mörgum blæða
víða um land.
Veiðigjaldið er
orðið hættulegt
mörgum útgerð-
um. Það er bara
staðreynd sem
ágætt væri að
stjórnvöld færu að taka tillit til,“ segir
Jens Garðar Helgason, formaður
stjórnar Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi, aðspurður um stöðuna í ljósi
samantektar Deloitte á rekstri
sjávarútvegsfélaga.
Engar vísbendingar um
að ástandið sé að batna
Hann segir að gengi íslensku krón-
unnar geri ekki greinarmun á því
hvað selt er, þannig að allir sem flytji
út sjávarafurðir hafi orðið fyrir veru-
legum tekjumissi vegna styrkingar á
gengi krónunnar. Þetta sjáist til
dæmis ágætlega í nýbirtu uppgjöri
Granda sem er bæði í uppsjávar-
vinnslu og botnfiskvinnslu.
Spurður hvort ástandið hafi lagast
það sem af er ári 2018 segir Jens
Garðar að of snemmt sé að segja til
um það, en engar vísbendingar séu
um að ástandið sé að batna. „En þótt
það myndi lagast eitthvað frá því sem
var í fyrra væri ástandið samt sem áð-
ur alvarlegt fyrir margar útgerðir.
Það gleymist oft að rúmlega 98% af
okkar afurðum eru flutt út á alþjóð-
legan markað. Á þeim markaði
stjórnum við ekki verðinu og getum
ekki einfaldlega hækkað verð í sam-
ræmi við kostnaðarhækkanir hér
heima, eins og hækkun veiðigjalds,
hækkun launakostnaðar, hækkandi
olíuverð og helmings hækkun kolefn-
isgjalds svo nokkrir liðir séu nefndir,“
segir Jens Garðar.
Aðspurður hvort útgerðin hefði
getað brugðist við þessari þróun síð-
ustu misseri segir Jens Garðar að
sjávarútvegsfyrirtæki hagi rekstri
sínum miðað við aðstæður hverju
sinni og reyni að sjálfsögðu að sjá eitt-
hvað fram í tímann. „En það segir sig
alveg sjálft að þegar saman fer sterk-
ara gengi íslensku krónunnar og
miklar kostnaðarhækkanir á innlend-
um vettvangi þá er mjög erfitt að
mæta því.
Svo verður að hafa í huga að sjávar-
útvegurinn verður að fjárfesta ef
hann ætlar sér að verja stöðu sína á
erlendum markaði, en 98% af öllum
afurðum eru flutt út á alþjóðlegan
markað. Þar ættum við að verja kröft-
um okkar, því án fótfestu á alþjóð-
legum markaði væri tómt mál að tala
um öflugan íslenskan sjávarútveg.“
Hann segir að stjórnvöldum sé
mætavel kunnugt um að starfs-
umhverfi sjávarútvegsfyrirtækja sé
mjög erfitt um þessar mundir. Nú
liggi þessi skýrsla fyrir, en hún var
unnin fyrir ráðuneytið og afkoman sé
skjalfest.
Ekki bara sjávarútvegurinn
„Ég tel að stjórnvöld ættu að hafa
bak við eyrað að það verður ekki bara
sjávarútvegurinn víða um land sem
mun líða fyrir þessa stöðu, því mikill
fjöldi fyrirtækja um allt land í tækni
og iðngreinum treystir á stöndugan
sjávarútveg. Afkoma sjávarútvegsins
er því alls ekki einkamál sjávar-
útvegsfyrirtækja, það hangir margt
annað á spýtunni.“
Jens Garðar segir að samtökin hafi
margoft varað við þeirri þróun sem
orðið hafi vegna hærri veiðigjalda.
„Sjávarútvegsfyrirtæki vilja standa
sig gagnvart samfélaginu, en veiði-
gjöld þessa árs eru hættuleg mörgum
fyrirtækjum. Og haldi svo fram sem
horfir munu þau bíta enn fastar og
hvað þá mun gerast held ég að sé öll-
um ljóst sem á annað borð vilja vita
það.“
Mörgum mun blæða víða um land
Allir sem flytja út sjávarafurðir hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi vegna styrkingar á gengi krón-
unnar, segir Jens Garðar Helgason, formaður SFS Veiðigjaldið orðið hættulegt mörgum útgerðum
Morgunblaðið/Albert Kemp
Frá Fáskrúðsfirði Afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi hefur áhrif víða og margir treysta á sterkan sjávarútveg.
Jens Garðar
Helgason