Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 68

Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Kristinn mágur minn eða Kiddi er látinn eftir stutt en erfið veikindi. Kiddi stundaði nám í byggingafræðum í Danmörku. Stuttu eftir heim- komu hóf hann að byggja ein- býlishús fyrir fjölskylduna í Traðarlandi 12 sem hann teikn- aði, allt stílað upp á að hann gæti unnið sem mest sjálfur en hann var mjög duglegur og útsjónar- samur. Þar fæddust Berglind, Elínóra, Herdís og Bjarni en Helga var fædd áður. Kiddi vann lengst af hjá Húsameistara rík- isins og var með teiknistofu heima, þar vann hann á kvöldin og um helgar. Hann sat sjaldan auðum höndum og stundum fannst manni nóg um, meðan fjölskyldan sat og spjallaði var Kiddi alltaf með teikniborðið á hnjánum. Hann var heppinn að eiga hana Völu sína sem sá um barnauppeldið og allt heimilis- hald en hún er einstök húsmóðir. Traðarlandið var hálfgerð fé- lagsmiðstöð, allir velkomnir í mat og drykk. Fátt fannst hon- um skemmtilegra en að fá til sín gesti en hann var höfðingi heim að sækja. Ég minnist afmælis- daga hans í Traðarlandinu, 29. maí, var alltaf boðið í stórveislu og þá fannst manni sumarið komið. Síðan hóf hann að byggja Kristinn Sveinbjörnsson ✝ Kristinn Svein-björnsson fæddist 29. maí 1945. Hann lést 20. febrúar 2018. Kristinn var jarðsunginn 2. mars 2018. hús í Hvassaleiti og það var sama sag- an, allt gert sjálfur og unnið dag og nótt og fór hann kannski aðeins of- fari en vinnan var hans áhugamál. Hann var mjög hugulsamur og greiðvikinn en fór ekki vel með sjálfan sig. Þegar hann var rúmlega fertugur greindist hann með geðsjúkdóm sem var hon- um og allri fjölskyldunni erfiður og varð Vala að slíta hjónaband- inu. Fluttist hún í Hvassaleitið með börnin og hann í íbúð stutt frá. Vala studdi vel við hann með alla þjónustu og sá til að ekki yrði mikil röskun fyrir börnin. Hann varð aldrei sá sami en allt- af jafn greiðvikinn og studdi börnin sín vel í þeirra verkefn- um. Það lýsir Kidda vel þegar hann fór í verslun í sumar og sá úlpur á góðu verði, hann keypti þær allar, hugsaði eina fyrir sig og hinar fyrir bræður sína. Við Árni skuldum Kidda miklar þakkir fyrir að hafa áhrif á að við gátum keypt Kvistalandið á sínum tíma. Kiddi sýndi ótrúlegt æðruleysi og kvartaði aldrei sl. mánuði eftir að hann veiktist al- varlega. Blessuð sé minning Kristins. Áslaug Sigurðardóttir. Í örfáum orðum langar mig að minnast Kristins Sveinbjörns- sonar, sem gaf mér og konu minni eina þá dýrmætustu gjöf sem hægt er að fá, yndislega tengdadóttur og í gegnum hana þrjú barnabörn sem eru hvert öðru mannvænlegra. Um það vorum við Kristinn alltaf sam- mála. Kristinn var sum sé „hinn af- inn“ í fjölskyldu okkar og strax við fyrstu kynni kunni ég vel við þennan góða og hjartahlýja „karl“. Kristinn var ljúfur og góður maður, aldrei með neinn hávaða en alltaf hreinn og beinn. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur, ef svo má að orði komast: „Áttu ekki rabar- barasultu á lambakjötið Konni?“ var ein fyrsta setningin sem hann sagði við mig þegar Nóra tengdadóttir mín kynnti hann fyrir okkur, verðandi tengdafor- eldrum sínum. Tvisvar sinnum fór ég með Kristni til útlanda þar sem við vorum tveir saman „afarnir að bralla“ eitt og annað sem óþarfi er að rifja upp í minningargrein. En eitt verð ég þó að upplýsa að báðum þótti okkur gott að koma til Tékklands þar sem Kristinn kynnti mig fyrir góðum vinum sínum. Toppurinn á þeirri ferð var þegar við „brögðuðum á Bekkerofku“, sem skáldið góða sagði að bragðaðist eins og „sambland af apóteki og vínkjall- ara, sólheitri lyngbrekku og röku jarðhúsi“! Er þar skemmst frá því að segja að við létum „sýna okkur öll keröldin“ og urð- um því betri vinir sem lækkaði í. Í stað þess að teygja lopann frekar, langar mig, sem kallaður er af minni elskulegu tengda- dóttur og barnabörnum: „ljóða- afinn“, að gera orð Jóhannesar úr Kötlum að orðum okkar allra sem nú syrgjum góðan dreng: Líf vort er tónn; á hörpu ljóss og húms það hljómar skammt, grætur og hlær við hliðskjálf tíma og rúms, en hljómar samt; síðan einn dag — þann dag veit engin spá — er dauðaþögn og tónninn liðinn hjá. Vinur í raun: hér hvílir þú svo hljótt, en hjarta nær ómar þitt líf sem lýsi gegnum nótt einn logi skær. Traust var þín hönd og trú við hlutverk sitt, en tónsins djúp var góða hjartað þitt. Þökk sé þér vin: Við lifum lítil börn og líðum burt. Vor tónn er sár, við eigum enga vörn – um allt er spurt. Líf þitt er svar: á bak við skúr og skin við skynjum þig, hinn liðna trygga vin. (Jóhannes úr Kötlum) Elsku hjartans Nóra mín, Kalli minn, fjölskyldan öll, börn Kristins og tengdabörn, barna- börn, systkini og síðast en ekki síst Helga Kristinsdóttir, móðir Kristins; innilegar samúðar- kveðjur. Konráð og Elín. Í dag kveð ég elsta bróður minn, Kristin Sveinbjörnsson. Þegar ég var smástelpa var Kiddi bróðir við nám í Dan- mörku og í mínum huga var það einhvers staðar langt í burtu og ég þekkti hann frekar lítið. Þeg- ar Kiddi og Vala konan hans fluttu heim var það mjög spenn- andi tími og ekki skemmdi fyrir að Helga litla var rétt ókomin í heiminn. Í námi Kidda var eitt af verkefnum hans að gera mód- el að húsi sem hann teiknaði. Hann var svo sniðugur að út- færa mótelið sem dúkkuhús sem hann færði mér við heimkom- una. Fljótlega eftir að Kiddi og Vala fluttu heim byggðu þau sér hús í Traðarlandi. Kiddi hannaði húsið sjálfur með þarfir stækk- andi fjölskyldu í huga. Eldhúsið var opið inn í sjónvarpshol og í minningunni sat Kiddi í sófanum með teiknibretti, krakkarnir að leika sér í kringum hann og Vala að stússast í eldhúsinu. Stórfjöl- skyldunni og vinum þótti gott að koma til Kidda og Völu sem tóku vel á móti öllum gestum. Kiddi vann hjá húsameistara ríkisins og þar fyrir utan vann hann á sinni eigin teiknistofu, oft um kvöld, nætur og helgar. Kiddi var oft með sérstakar hugmyndir t.d. tók hann upp á því að drepa á bílnum á ljósum og í brekkum til að spara bens- ínið. Kom hann eitt sinn mjög kátur í sumarbústað foreldra okkar og sagðist hafa látið bílinn renna niður Kambana og að bíll- inn hafi staðnæmst við Hvera- gerði. Kiddi naut þeirrar gæfu að eignast fimm frábær börn með Völu og fimmtán barnabörn. Hann var duglegur að aðstoða þau, ef eitthvert þeirra var að breyta eða bæta húsnæði var hann alltaf mættur. Kiddi var líka duglegur að heimsækja mömmu okkar á tí- ræðisaldri og oft sat hann hjá henni á kvöldin. Veikindi settu svip á líf Kidda. Á miðjum aldri fór að bera á andlegum veikindum sem erfitt að var að eiga við. Upp úr því skildu Kiddi og Vala, en hann var alltaf velkominn á hennar heimili og var virkur þátttakandi í öllu sem viðkom fjölskyldunni. Síðasta sumar datt Kiddi heima hjá sér og lam- aðist fyrir neðan brjóst. Erfiður tími tók við þar sem Kidda var oft ekki hugað líf. Kiddi dvaldi á Grensásdeild síðustu mánuði lífs síns og fékk þar góða aðhlynningu. Hann tók veikindum sínum með ótrúlegu jafnaðargeði og æðruleysi og naut þess að fá börnin og barnabörnin í heim- sókn, jafnt sem aðra gesti. Hvíl í friði elsku bróðir. Anna María Sveinbjörnsdóttir. Í dag kveðjum við kæran vin og nágranna til margra ára, Kristin Sveinbjörnsson. Kristinn lést á Grensásdeild Landspítal- ans eftir erfið veikindi í kjölfar áverka sem hann hlaut á hrygg sem leiddu til lömunar. Þetta var mikið áfall en Kiddi, eins og hann var kallaður, tók þessu með miklu jafnaðargeði og æðruleysi. Þau hjón, Vala og Kiddi, byggðu sér hús í Traðarlandi í næsta ná- grenni við hús okkar og vann Kiddi mikið sjálfur við verkið enda dugnaðarforkur. Það varð strax mikill og góður samgangur milli fjölskyldna okkar, einkum vegna kunningsskapar dætra hans og yngri dóttur okkar. Mörg voru kaffiboðin í Traðar- landinu, enda var mikill mynd- arskapur í köku- og tertubakstr- inum hjá húsmóðurinni. Kiddi var afar greiðvikinn og minnist ég þess er við eitt sinn þurftum að fara með dóttur okkar upp á slysadeild, en mikil ófærð var í bænum vegna snjóþyngsla og festum við bílnum fljótlega. Þá kom Kiddi okkur til hjálpar á nýja Suzuki-jeppanum sínum og braust upp á Borgarspítala í allri ófærðinni og þurfti hann í lokin að bera hana síðasta spölinn yfir alla skaflana inn á spítalann. Ég þykist vita að Kiddi hafi verið hvíldinni feginn enda höfðu veikindi hans reynt mikið á síð- ustu mánuði. Við Gerður vottum Völu og fjölskyldunni allri samúð okkar. Gerður og Daníel. Ég bjó í götunni fyrir ofan Kidda, Völu og Helgu, Lindu, Nóru, Herdísi og Bjarna og man ekki eftir mér án þess að þau væru hluti af lífi mínu. Ég áleit mig vera eina af systrunum og hef líklega verið daglegur gestur hjá þeim. Systurnar voru oft pínu pirraðar út í pabba sinn, enda vildi hann gjarnan skipta sér af því hvað við vorum að gera. En fyrir vikið vissi hann alltaf hverju við höfðum áhuga á og kom oft með eitthvert óvænt flott dót sem enginn annar átti. Í London keypti hann t.d. eins metra löng blöð með svarthvít- um myndum sem átti að lita í, og við „systurnar“ lágum á gólfinu í fleiri vikur að fylla upp í mynd- irnar með tússlitum. Kiddi keypti Philips 2000-tæki, mörg- um árum áður en það varð al- gengt að eiga vídeótæki, og það voru mörg kvöldin sem sjón- varpsholið var fullt af börnum að horfa á The Sound of Music, Herbie og fleiri minnisstæðar myndir. Kiddi var líka á undan sinni samtíð með umhverfismál og nýtingu. Man vel eftir risa- stórri plastpokarúllu sem hann kom með heim frá bakaríi sem hafði farið á hausinn og átti að henda. Þessi rúlla dugði í fleiri ár. Ein jólin keyptu foreldrar mínir einstaklega fallegt jólatré sem hélt barrinu ótrúlega vel. Þegar átti að kasta því fannst Kidda það synd og tók það og setti inn í bílskúr. Þegar kom að næstu jólum var tréð enn jafn fínt og var sett upp og skreytt í stofunni í Traðarlandinu. Þegar jólin voru búin var tréð enn jafn fínt og var aftur sett í bílskúrinn í geymslu. Næstu jól var tréð enn fínt, en ákveðið var að breyta aðeins til, spreyjað gyllt og skreytt, og var reyndar enn ótrúlega flott og jólalegt! Annað sem hann gerði alltaf, sem eng- inn annar gerði, var að hann drap alltaf á bílnum á rauðu ljósi til að minnka mengun. Mér fannst það pínu skrítið, en nú er þetta sjálfsagður hlutur í nýrri bílum. Kiddi var alltaf hjálpsamur. Þegar ég var 11 ára fótbrotnaði ég og var með gips frá tá og upp að nára. Þetta var um hávetur og kom að því að ég átti að mæta upp á spítala til að skipta á gips- inu. Þennan dag var búið að snjóa svo svakalega að engir bílar nema jeppar gátu keyrt um götur bæjarins. Kiddi átti Su- zuki-jeppa og bauðst til að keyra mig upp á spítala. Þegar við vor- um komin á Bústaðaveginn á móts við spítalann var öll umferð stopp. Kiddi tók mig þá í fangið og óð með mig í gegnum skafla sem náðu honum upp að mitti inn á slysó. Lét nú ekki smá ófærð stoppa sig. Þótt ég hafi búið erlendis að mestu síðastliðin 25 ár hef ég alltaf haldið sambandi við gömlu fjölskylduna mína úr Traðar- landinu. Sem betur fer náði ég að kveðja Kidda nokkrum dög- um áður en hann dó. Hann gat ekki opnað augun eða talað þeg- ar ég kom, en þegar ég sagði honum frá því að ég og fjöl- skylda mín værum nú að taka smá skref í átt að því að flytja heim með því að eignast íbúð á Íslandi fékk ég risastórt bros frá Kidda mínum. Elsku Vala, Helga, Linda, Nóra, Herdís og Bjarni og allt ykkar yndislega fólk. Ég sam- hryggist ykkur svo innilega. Þið áttuð frábæran pabba. Ég sakna hans mjög. Ég veit að þér líður vel núna, Kiddi, og við munum sjást síðar. Þórhildur Margrét Daníelsdóttir. Minningar um Kristin Svein- björnsson koma sterkastar fram þegar hann birtist með tvær yndislegar dætur sínar í göngu- túr í Háaleiti. Hann átti fallegt heimili í Hvassaleiti. Síðar bjó hann áfram við Kringlufót, í hringiðu mannlífs, ekki langt frá móður sinni. Ég kynntist Kristni fyrst í Safamýri er ég bjó í næsta húsi við Sveinbjörn og Helgu. Mikilli jákvæðni og hlýju var alltaf að mæta þar sem þau voru. Brosandi og forvitin, oft spyrjandi um hvernig gengi, um- hyggjusöm og alltaf með stórt hjarta og fjölmenni í kringum sig. Alls staðar höfðu þau mikið að gefa. Foreldrar Kristins ólu upp stóran legg með barnabörn- um. Samhent fjölskylda og mikl- ir byggingamenn á ferð, ávallt með stórverk. Kristinn var áhugasamur um vinskapinn og ræktaði hann. Alltaf jákvæður þrátt fyrir veik- indi sem hann varð að ganga í gegnum. Þegar Kristinn er fall- inn frá verður manni oft hugsað til þess hve margar mannlegar áhyggjur okkar eru léttvægar, miðað við andlega sjúkdóma er enginn hefur stjórn á. Kristinn var mjög næmur og þegar álag var mikið og stíflur geta brostið finnum við fyrir vanmætti. Sam- viskusemin var honum í blóð borin og öllum verkefnum vildi hann fylgja eftir, öllu gott gera. Kímnigáfa Kristins var aldrei fjarri, en undir niðri var lífið þrautarganga og kvíði sem hrjá- ir suma meir en aðra. Fátækleg orð um góðan dreng segja lítið en hann mat vinskap eins og í Hávamálum. Lífsspeki Kristins var eins og hann læsi þau mál oft á göngu sinni. Sá einn veit er víða ratar og hefir fjöld um farið hverju geði stýrir gumna hver, sá er vitandi er vits. Sendi fjölskyldu og uppkomn- um börnum hans samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hans. Sigurður Antonsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, MAGNÚS HEIMDAL MAGNÚSSON, Bryne, Noregi, áður til heimilis að Hagaflöt 8, Garðabæ, andaðist í Bryne 21. febrúar. Útförin fór fram 28. febrúar. Sissel Sørdal Magnússon og fjölskylda Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar ömmu og langömmu, JÓNÍNU ÁSDÍSAR KRISTINSDÓTTUR, Stellu, Hlíðarhúsum 7. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir, 2. hæð suður, fyrir hlýja og góða umönnun. Jóna G. Alexandersdóttir Davíð Löve Sófus A. Alexandersson Guðrún Ágústsdóttir Áslaug Alexandersdóttir Þorgeir Kjartansson Kristín H. Alexandersdóttir Ásgeir J. Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTJÁN MAGNÚSSON, bóndi á Melgraseyri, Jökulgrunni 11, Reykjavík, lést föstudaginn 2. mars. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 15. mars klukkan 13. Jarðsett verður í Melgraseyrarkirkjugarði föstudaginn 16. mars. Snævar Guðmundsson Anna Guðný Gunnarsdóttir Magnea Jenny Guðmundardóttir Fannar Karvel, Jakob Már, Ragnheiður Kristín, Natan, Ástþór Ingi, Salka, Arnfinnur, Gunnþór Tumi, Kristín Valgerður, Steinunn Jóhanna og barnabarnabörn Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNS SIGURJÓNSSONAR, Efri-Holtum, V-Eyjafjöllum. Unnur Sigurjónsdóttir Oddur Sæmundsson Kristbjörg Sigurjónsdóttir Sigríður Einarsdóttir (Silla)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.