Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 88

Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 88
FIMMTUDAGUR 8. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Lögregluaðgerð á Ægisíðu 2. Fjórir í haldi lögreglunnar 3. Leiddir út úr leigubíl við Hagamel 4. Sagt upp störfum fyrirvaralaust »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Átta ungar söngkonur sem allar hafa starfað með kórum í Langholts- kirkju koma fram á einsöngs- tónleikum í kirkjunni í kvöld kl. 20. Munu þær takast á við verk þekktra tónskálda, eins og Mozarts, Bachs og Verdis, og túlka fjölbreytilegar til- finningar. Meðal söngvaranna er Íris Björk Gunnarsdóttir sem sigraði í söngvarakeppninni Vox Domini. Átta efnilegir ein- söngvarar koma fram  Les Coquettes er heiti sýningar níu stúlkna á dansi sem þær hafa samið og flytja í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í kvöld kl. 20. Sýningin er hluti af hátíðinni Únglingurinn í skóginum. „Les Coq- uettes eru kvenmenn nútímans,“ segja þær. „Okkur finnst gaman að vera stelpur og erum stoltar af því. Við erum stelpur sem daðra og hæðumst að þessum týpísku steríótýpum …“ Les Coquettes í Hafn- arhúsinu í kvöld  Djassleikararnir Hjörtur Ingvi Jó- hannsson á píanó, Leifur Gunnarsson á kontrabassa og trymbillinn Magnús Trygvason Elíassen koma næstu þrjá daga fram á tónleikaröð Borg- arbókasafnsins, Jazz í hádeg- inu. Flytja þeir lög eftir Leon- ard Bernstein. Tónleikar verða í Grófinni á fimmtudag og Gerðu- bergi á föstudag, kl. 12.15 báða daga, og kl. 13.15 í Spönginni á laugardag. Djassmenn heiðra Bernstein á söfnum Á föstudag og laugardag Norðaustan kaldi og él með norður- og austurströndinni en hægari um landið suðvestanvert og lengst af léttskýjað. Frost 0-8 stig, mildast með suðurströndinni. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s með éljum eystra, en norðan 10-15 suðaustantil og lengst af léttskýjað sunnan- og vest- antil. Frost 0-8 stig, mildast með suður- og suðvesturströndinni. VEÐUR Hin suðurafríska Caster Semenya hefur borið höfuð og herðar yfir aðra kepp- endur í 800 metra hlaupi síðustu ár. Nú er útlit fyrir að reglur um testósterón- magn í líkama geti á ný gert henni erfiðara fyrir að landa fleiri verðlaunum. Sannað þykir að þetta lík- amseinkenni veiti umtals- vert forskot. Áætlað er að reglurnar taki gildi í nóv- ember. »1 Þeirri bestu gert erfitt fyrir? „Eftir meiðslin í fyrra hef ég verið einbeittari á handboltann, en ég get ekki beint sagt að ég sé búin „að velja“ ennþá. Mig langar að spila fót- bolta í sumar ef ég get það, en miðað við hvernig fór í fyrra þá var eigin- lega sjálfvalið fyrir mig að taka hand- boltann fram yfir,“ segir Díana Dögg Magnúsdóttir, nýliði í kvennalands- liðinu í handbolta, en hana langar líka til að halda áfram í fótboltanum. »1 Nýliðinn á enn eftir að velja endanlega grein „Ef maður ætti að leggja pening und- ir á það hvaða lið myndi vinna bikar- meistaratitilinn þá myndi ég leggja peninginn á Framara. Fram er líkleg- ast, en lið ÍBV er líka gríðarlega sterkt og vel mannað, og svipaða sögu má segja með Hauka,“ segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, sem spáir í spilin fyrir undanúrslitin í bik- arkeppni kvenna í handbolta. »4 Ég myndi leggja peninginn á Framara ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sjónvarpsþátturinn Heimilislíf, sem hóf göngu sína á Smartlandi Mörtu Maríu, vinsælasta undirvef mbl.is, á liðnu sumri hefur slegið í gegn og í dag fer 20. þátturinn í loftið. Þættirnir eru fimm til átta mín- útna langir. Marta hefur gert lengri sjónvarpsinnslög en segir að þessi lengd henti best fyrir vefsjón- varp. „Þetta eru viðtalsþættir þar sem heimilið er í forgrunni, hvernig umgjörð viðmælandinn hverju sinni vill hafa í kringum sig og hvað skiptir hann máli í lífinu,“ segir Marta. Marta er þekktasti lífsstíls- blaðamaður landsins. Frá því hún var krakki segist hún hafa haft áhuga á fólki og heimilum og þætt- irnir beri þess merki. „Ég hef gam- an af því að sjá hvernig fólk raðar hlutum í kringum sig og færi mikið til húsgögn heima hjá mér, er stöð- ugt að breyta og laga. Fólk og heimili þess er helsta áhugamál mitt fyrir utan vinnuna. Hjarta mitt slær á þessu sviði.“ Gaman heima Arnar Steinn Einarsson tekur þættina upp og klippir þá. „Fram- leiðslan hefur gengið hnökralaust hjá okkur. Ég hef lengi fundið fyrir áhuga almennings á heimilum en samt kemur mér á óvart hvað við- brögðin við þáttunum hafa verið mikil og góð,“ áréttar hún. Smartland verður sjö ára í maí nk. og hefur verið í stöðugri þróun. Að meðaltali eru um 40.000 innlit á vefinn á dag. Marta segir að til- gangurinn hafi alla tíð verið að skemmta fólki. „Smartland er pása frá lífinu,“ útskýrir hún. „Þú ferð inn á Smartland þegar þú vilt fá innblástur, lesa eitthvað áhugavert. Við níðum ekki skóinn af fólki, er- um ekki rætin, heldur erum sem sumarleyfisstaður, þar sem þú get- ur gleymt öllu sem gengur á í líf- inu.“ Á þessum tíma hafa m.a. verið fluttar fréttir af fasteignavef mbl.is. Marta segir að til að byrja með hafi hún verið gagnrýnd fyrir að „auglýsa“ tilteknar fasteignir, en nú sé komið annað hljóð í strokk- inn og mikil ásókn sé í að fá slíka umfjöllun. Hún verði því að velja og hafna og framúrskarandi heimili hafi forgang. „Aðalatriðið er að sýna áhugaverð heimili, hvort sem þau eru til sölu eða ekki,“ segir Marta. „Fólk sækir innblástur í fal- legar myndir og þjóðin virðist hafa ótrúlega mikinn áhuga á heimilum. Hugmyndir verða til við að sjá eitt- hvað nýtt eða öðruvísi, fallegt eða sniðugt.“ Heimilislífsþættirnir hafa vakið Mörtu til umhugsunar um lífið á heimilinu. „Heimilishald er oft eitt mesta þrætueplið í parasambandi og ég hef lært heilmikið við gerð þessara þátta,“ segir hún. Í því sambandi bendir hún á að einn við- mælandi hafi sagt að fjölskyldan sameinaðist um verkin í 20 mín- útur. Þá væri tónlistin sett í botn og allir tækju til hendi. „Það geng- ur ekki að ein manneskja á heim- ilinu geri öll húsverkin,“ áréttar hún. Annar viðmælandi hafi nefnt að hjónin væru hætt að fara út að borða en legðu þess í stað mikið upp úr sérstökum notalegum sam- verustundum heima. „Þá væru börnin sett snemma í rúmið, borð dekkað og umhverfi skapað eins og þau væru á fínum veitinga- stað. Það þarf ekki alltaf að fara út af heimilinu til þess að gera eitthvað skemmtilegt.“ Heimilislíf Mörtu slær í gegn  Smartland með 20. sjónvarpsþáttinn um mál málanna Morgunblaðið/Hari Heimilislíf Fólk og heimili þess er helsta áhugamál Mörtu Maríu Jónasdóttur sem er stöðugt að breyta og laga.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.