Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 18
Charles og Ray Eames hönnuðu fjöldann allan af vel heppnuðum hús- gögnum sem þykja enn í dag nútíma- leg og falleg. Plaststóllinn þeirra endurspegl- aði hugmyndafræði hjónanna einkar vel, en það vakti fyrir þeim að búa til stól sem væri í senn fallegur og ódýr, sem allir ættu að hafa efni á. Úr varð að gera setu úr plasti, sem myndi ekki kosta mikið að fjöldaframleiða, og láta hana sitja á fíngerðum teinum til að gefa hús- gagninu meiri léttleika. Kosturinn við plastið er að það getur haft nánast hvaða lit sem er, og jafnvel ef gulur verður fyrir valinu þarf bara að renna yfir stólbakið rökum klút til að fjarlægja óhreinindi. Gulur plaststóll eftir Eames 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Ómótstæðileg egg og gul geggjun fyrir páskana Acqua di Parma Colonia Pura Þegar kemur að vor- legum ilmum má stóla á Acqua di Parma. Skemmir ekki fyrir að guli lit- urinn fær að njóta sín á umbúðunum og gerir hvaða baðher- bergisskáp sem er páskalegri. Colonia Pura-ilmurinn bættist nýlega við úrvalið; leik- andi léttur og bjartur, með kröftugum sí- trónutónum og upplagður fyrir þá sem vilja mæta hækkandi sól með ilm við hæfi. Súkkulaði-gosbrunnur frá Tristar Þennan sígilda danska hæg-indastól þarf varla að kynna lesendum Morgunblaðsins. Egglaga formið er fram- úrstefnulegt en passar samt í flest rými, og skemmir ekki fyrir að flestum þykir stóllinn fjarska þægilegur. Það má alveg örugglega fá Eggið með gulu áklæði, en hætt við að mundi ganga erfiðlega að halda því hreinu. Í staðinn má t.d. velja ljósbrúnt leður, eins og á stólnum á myndinni. Eggið, og önnur húsgögn eftir Arne Jacobsen, má fá hjá Epal. Eggið eftir Arne Jacobsen Guli skórinn frá Timberland Sagt er að þessi vinsæli kuldaskór frá Timberland sé sá skór sem fatafals- arar eru hrifnastir af að herma eftir. En upp- runalega varan er vita- skuld best, heldur tásl- unum hlýjum og lífgar um leið upp á hversdag- inn með skærum litnum. Guli kuldaskórinn er jafn klassískur í dag og þegar hann kom fyrst á markað árið 1973, og kjörinn í páskalega gönguferð í góða vorveðrinu. Flestir eru á svo miklum þönum á morgnana að þeir verða að gera sér að góðu morgunverð sem hella má í skál í hvelli, eða jafnvel kjamsa á beint út úr ísskápnum. En á rólegu dögunum er gott að nostra við morgunverð- inn, og fá sér þó ekki væri nema eitt soðið egg. Þeir sem vilja fara alla leið í eggjaátinu ættu að skoða þennan eggjabikar frá Asprey. Um er að ræða sett, með bæði bikar og skeið, sem búið er að skreyta með skemmtilegum smáatriðum eins og litlum ungafótum. Bæði hafa ver- ið húðuð með silfri, og að auki er búið að gylla skeiðina. Fæst hjá MrPorter.com á 780 dali. Eggjabikar frá Asprey Á þessum tíma árs hafa margir það fyrir sið að lífga upp á heimili sín með einhverju gulu og páskalegu. Sumir taka fram úr geymslunni kassa fullan af gömlum páskaeggja-ungum með hatta í öllum regnbogans litum, á meðan aðrir dusta rykið af pappírs- og postulíns- skrauti í formi eggja og héra. En það má gera heimilið páskalegt á fleiri vegu, og ef að er gáð er enginn skortur á eigulegum heimilisbúnaði sem ætti að falla vel að páskaþemanu. ai@mbl.is Súkkulaði, súkkulaði og meira súkkulaði. Það kemst enginn í gegnum páskana án þess að klára eins og eitt súkkulaðiegg, og gott ef sumir þurfa ekki hreinlega að fá sér súkkulaðibita með hverri máltíð. Ef að fólki þykir vanta meira súkkulaði í lífið þá er upplagt að fjárfesta í Tristar súkku- laðigosbrunni. Mætti jafnvel, þó það sé nánast syndsamlegt, athuga hvort það kemur vel út að setja páskaeggja- molana undir bununa og fá sér súkku- laðihúðað súkkulaði. Með súkkulaðigosbrunn við höndina er raunar ekkert sem ekki er hægt að súkkulaði-væða, hvort sem fyrir valinu verða ávaxtabitar og ber, sykurpúðar, kökubitar eða karamella. Tristar gosbrunnurinn fæst hjá Rafha á 2.990 kr. Það er til nóg af fagur- gulum pennum, og jafnvel pennum úr heiðgulu skíragulli. En gult blek er ekki auð- velt að finna. Þeir sem vilja nota páskana til að munda lindarpennann, æfa skrautskriftina, og senda ástvinum hátíðlegt bréf eða kort ættu að fjárfesta í eins og 30 ml. af gulu bleki frá Montblanc. Blekið er ekki skærtgult heldur hefur á sér dökkt og gullið yfirbragð, og er því vel læsi- legt á hvítum pappír. Gula blekið fer örugglega best með sér- hönnuðu bréfsefni frá Reykjavik LetterPress. Gula blekið má finna hjá Amazon á 19 dali. Gult blek frá Montblanc )553 1620 Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum upp á úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið höfð að leiðarljósi. Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Við bjóðum m.a. upp á: Súpur Grænmetisrétti Pastarétti Fiskrétti Kjötrétti Hamborgara Samlokur Barnamatseðil Eftirrétti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.