Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 35
Viking Páska Bock
6,7%
Bjórstíll: dökkur lager
Viking Páska Bock bruggaður í
hefðbundnum bock-stíl, og þar af
leiðandi dökkur á litinn, heldur
dekkri en hinn náskyldi Viking
Páskabjór. Hann einkennist af
miklu maltbragði, mikilli fyllingu
og áberandi karamellu- og súkku-
laðitónum.
Sabbat
6,0%
Bjórstíll: öl
Sabbat nefnist páskabjórinn frá Bryggj-
unni brugghúsi. hann er brúnn að lit, í hon-
um er sætuvottur, fylling sem og beiskja í
meðallagi. Bragðið felur í sér ristað korn,
kaffi og kandís-tóna og passar þar af leið-
andi jafnvel með páskaegginu sem og með
páskalambinu, að sögn þeirra Bryggju-
manna.
Páskapúki
5,6%
Bjórstíll: öl
Viking sendir í fyrsta sinn frá sér
Páskapúka í ár, og hann er talsvert
frábrugðinn hinum tveimur páska-
bjórunum sem Viking framleiðir.
Ólíkt hinum dökku lager-bjórum þá
er hér á ferðinni öl í Belgian Blonde
stíl, ljós á litinn og auðdrekkanlegur
með hóflegri fyllingu og mildri
beiskju. Bragðið einkennist ekki síst
af negultónum sem eru tilkomnir af
því að sérstakt belgískt ger er notað
við bruggunina – öðrum kryddum
eða bragðgjöfum er ekki til að dreifa;
allt kemur bragðið úr gerinu.
Brothers Brewery Páskabjór
8%
Bjórstíll: Milk Stout
Páskabjórinn frá Vestmannaeyingunum er frá-
brugðinn öðrum í ár að því leytinu til að í hann er
notaður mjólkursykur – en hann er ógerjanlegur
sem gerir það að verkum að hann situr eftir í
bjórnum og gefur honum aukna mýkt og fyllingu.
Einnig var bætt út í hann stjörnuanís til að ná
fram lakkrístón ásamt vanillu, sem gerir hann
allnokkuð margslunginn á bragðið.
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 MORGUNBLAÐIÐ 35
Kryddin frá okkur
eru ómissandi
í eldhúsið hjá
Villijurtir
Lamb Islandia
Grískt lambakrydd
La
Kryddblöndur á páskalambið
Án allra aukaefna
Steðji Páskabjór
5,4%
Bjórstíll: öl
Páskabjór Steðja að þessu sinni er
dökkur hveitibjór, segir á heimasíðu
brugghússins. Bjórinn er bruggaður
meðal annars með súkkulaðibyggi sem
gefur tóninn í bjórnum.
Páskabjórinn frá Steðja er skýjaður og
í honum má greina malt bæði og kara-
mellu. Steðji býður upp á þá nýlundu
að málsháttur fylgir með hverri flösku.