Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 35
Viking Páska Bock 6,7% Bjórstíll: dökkur lager Viking Páska Bock bruggaður í hefðbundnum bock-stíl, og þar af leiðandi dökkur á litinn, heldur dekkri en hinn náskyldi Viking Páskabjór. Hann einkennist af miklu maltbragði, mikilli fyllingu og áberandi karamellu- og súkku- laðitónum. Sabbat 6,0% Bjórstíll: öl Sabbat nefnist páskabjórinn frá Bryggj- unni brugghúsi. hann er brúnn að lit, í hon- um er sætuvottur, fylling sem og beiskja í meðallagi. Bragðið felur í sér ristað korn, kaffi og kandís-tóna og passar þar af leið- andi jafnvel með páskaegginu sem og með páskalambinu, að sögn þeirra Bryggju- manna. Páskapúki 5,6% Bjórstíll: öl Viking sendir í fyrsta sinn frá sér Páskapúka í ár, og hann er talsvert frábrugðinn hinum tveimur páska- bjórunum sem Viking framleiðir. Ólíkt hinum dökku lager-bjórum þá er hér á ferðinni öl í Belgian Blonde stíl, ljós á litinn og auðdrekkanlegur með hóflegri fyllingu og mildri beiskju. Bragðið einkennist ekki síst af negultónum sem eru tilkomnir af því að sérstakt belgískt ger er notað við bruggunina – öðrum kryddum eða bragðgjöfum er ekki til að dreifa; allt kemur bragðið úr gerinu. Brothers Brewery Páskabjór 8% Bjórstíll: Milk Stout Páskabjórinn frá Vestmannaeyingunum er frá- brugðinn öðrum í ár að því leytinu til að í hann er notaður mjólkursykur – en hann er ógerjanlegur sem gerir það að verkum að hann situr eftir í bjórnum og gefur honum aukna mýkt og fyllingu. Einnig var bætt út í hann stjörnuanís til að ná fram lakkrístón ásamt vanillu, sem gerir hann allnokkuð margslunginn á bragðið. FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 MORGUNBLAÐIÐ 35 Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá Villijurtir Lamb Islandia Grískt lambakrydd La Kryddblöndur á páskalambið Án allra aukaefna Steðji Páskabjór 5,4% Bjórstíll: öl Páskabjór Steðja að þessu sinni er dökkur hveitibjór, segir á heimasíðu brugghússins. Bjórinn er bruggaður meðal annars með súkkulaðibyggi sem gefur tóninn í bjórnum. Páskabjórinn frá Steðja er skýjaður og í honum má greina malt bæði og kara- mellu. Steðji býður upp á þá nýlundu að málsháttur fylgir með hverri flösku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.