Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 36
Morgunblaðið/Jim Smart
Krúttin Páskakanínur í
krúttlegri bastkörfu þar
sem gul slaufa gerir
gæfumuninn.
Morgunblaðið/Ásdís
Pappaeggin Á Norðurlöndum og víðar í Evrópu er algengt að gefa páskaegg úr
pappa, enda eru þau bæði margnota og falleg að sjá.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hátíðarblær Hér er vel í lagt, páskastellið á borðum, fallegur dúkur breiddur út og
punkturinn yfir i-ið fagurlituð páskaegg. Nú mega páskarnir koma!
Morgunblaðið/Kristinn
Þýskaland Þessi gull-
fallegu handmáluðu egg
eru ættuð frá Þýskalandi
og þó að litasamsetn-
ingin sé ekki dæmigerð
fyrir páska þá kemur það
síður en svo að sök.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hávaxnir Þessir
háfættu og reffi-
legu páskaungar
eru sérstakir að
sjá en engu að
síður tímlausir.
Páskaskrautið
fyrr og nú
Páskahátíðin er á sinn hátt alltaf og aldr-
ei sú sama; tímarnir breytast og menn-
irnir með, og meira að segja páska-
skrautið dregur dám af tíðarandanum
frá ári til árs. En í grunninn snýst hátíðin
sem fyrr um að njóta lífsins í kyrrð og
ró, hitta þá sem standa manni næst –
og auðvitað gæða sér á páskaeggi.
Náttúrulegt Þessi líflegi páskaliljukrans
er með allra náttúrulegasta móti.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018