Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Qupperneq 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þegar ég festi kaup á húsnæði í Grundarhverfi á Kjalarnesi var ég full-vissaður um að Sundabrautin væri handan við hornið; yrði komin eigisíðar en að fimm árum liðnum. Þetta var fyrir bráðum sextán árum og enn bólar ekkert á þeirri ágætu braut. Á íbúafundi um samgöngumál á Kjal- arnesi í síðustu viku kom fram að borgaryfirvöld hefðu talað digurbarkalega um Sundabrautina þegar Kjalarneshreppur sameinaðist Reykjavík fyrir tuttugu árum og þótti einhverjum fundarmönnum lítið um efndir. Á þeim tíma sáu menn fyrir sér að upplagt væri fyrir borgina að nýta hið nýja land við Esjurætur til frekari uppbyggingar borgarsamfélagsins og fasteignaverð myndi í sviphendingu rjúka upp úr öllu valdi. Til að gæta sanngirni þá var Sundabrautin lengi vel í umræðunni, eins og sagt er, og búið að máta hana hér og þar, ofansjávar og neðan. Hver man ekki eftir umræðunni um Sunda- göng? Árið 2000 sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, þáverandi borg- arstjóri, um Sundabraut á hverfafundi í Grafarvogi: ,,…og fljótlega í haust verður tekin ákvörð- un um eina lausn og ef allt gengur að óskum ættu framkvæmdir að geta hafist á næsta ári“. Eitthvað stóðu þær framkvæmdir á sér og áfram var aggast um málið næstu árin. Þegar blaðað er í greina- safni Morgunblaðsins kemur til dæmis í ljós að umræðan var lífleg framan af ári 2008. Um haustið hrundi heimurinn hins vegar yfir okkur og Sundabrautin var með því fyrsta sem sópað var út af borðinu. Og núna, áratug síðar, er ekkert sem bendir til þess að hún verði á dagskrá í bráð. Alltént þótti samgönguráðherra, borgarstjóra og fulltrúa Vegagerð- arinnar það ekki líklegt á téðum borgarafundi í liðinni viku. Það er mér svo sem að meinalausu. Ég er löngu hættur að horfa til Sunda- brautarinnar. Hverfið mitt er ennþá eins friðsælt og rólegt og það var fyrir sextán árum og ég get alveg trúað ykkur fyrir því að mér liggur ekkert á því að auka við byggðina. Eina breytingin á þessum sextán árum er sú að Arnar- holt er ekki lengur útibú geðsviðs Landspítalans, heldur búa þar núna al- mennir leigjendur og hælisleitendur. Hið prúðasta fólk. Eins og staðan er núna er Kjalarnes hin fullkomna sveit í borg. Miklu meira liggur á endurbótum á Vesturlandsveginum og á fyrr- nefndum fundi kom fram að framkvæmdir geta hafist innan skamms við breikkun vegarins sem verður fyrst 2+1 og síðar 2+2. Því ber að fagna. Sundabrautina geta menn svo bara lagt seinna. Eða ekki! Sundabraut: In memoriam Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Til að gæta sanngirniþá var Sundabrautinlengi vel í umræðunni,eins og sagt er, og búið að máta hana hér og þar, ofansjávar og neðan. Rögnvaldur Bragi Ertu að meina keppnina hver á flesta vini? Ég sá seinni undanúrslit- in með strákunum mínum og af þrem sem komust í úrslit gat bara einn sungið og hann söng svo mikið að ég hélt að hann myndi springa. SPURNING DAGSINS Fylgist þú með Söng- keppninni í sjónvarp- inu? Og heldur jafnvel með ein- hverjum? Jóhannes Valgeirsson Fylgist lítið með. Þrátt fyrir að mik- ilvægt sé að nýtt fólk fái tækifæri til að sýna sig finnst mér gæði og flutn- ingur margra laganna ekki upp á marga fiska og skemmtanagildið ekki nægt til að vekja áhuga minn. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gerður Jónsdóttir Nei, ég tilheyri þeim (líklega) fá- menna hópi sem fylgist ekki með keppninni. Þetta er örugglega ágætt sjónvarpsefni en höfðar bara ekki til mín. Ragnheiður Júlíusdóttir Ég fylgist alltaf með keppninni. Mér finnst Dagur flytja lagið sitt, Í stormi, frábærlega og hann fær mitt atkvæði. Ari er einnig frábær söngv- ari en mér finnst lagið ekki alveg eins spennandi. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Hvernig er stemningin fyrir lokakvöldinu? Hún er rosalega góð, RÚV-hópurinn er orðinn rosa þétt- ur og góð stemning, keppendur eru orðnir spenntir og það getur allt gerst. Við hverju megum við búast í söngvakeppninni? Mikið af óvæntum atriðum í bland við flotta og skemmtilega út- sendingu. Hvert er besta Eurovision-lag allra tíma? Í síðasta skipti með Friðriki Dór. Nú ert þú með einkar skemmtileg innslög í söngvakeppninni, hefur eitthvað eftir- minnilegt komið upp á í ferlinu? Þetta er búið að ganga ótrúlega vel, keppendur hafa verið ánægðir með að sýna sig í nýju ljósi. Kannski ekki eitt- hvað eitt sem stendur upp úr annað en að það er búið að vera ótrúlega gaman að fá að vera fluga vegg með kepp- endum í þessu ferli. Hvað er skemmtilegast við að vinna í sjónvarpi? Hvað starfið getur verið fjölbreytt, stundum er maður fyrir framan myndavélina og hina dag- ana er maður í einhverju allt öðru eins og að klippa, taka upp eða undirbúa eitthvað nýtt. Svo náttúrlega allt skemmtilega fólkið sem vinnur með manni. Ertu mikill Eurovision- aðdáandi almennt? Var það ekki fyrr en ég byrjaði að vinna í kringum keppnina, fyrst árið 2013 ef ég man rétt, og einhverntíma gerðum við Benni klukkutímalangan upprifjunarþátt sem hét Hraðfrétta- rútan þar sem við fórum í gegnum nán- ast allt sem tengist íslensku hliðinni á Eurovision og eftir það varð ég mikill aðdáandi. Svo er líka svo skemmtileg stemning í kringum forkeppnina hérna heima. Hvað skiptir mestu máli svo atrið- ið nái áfram? Að atriðið í heild sé grípandi, þarf ekki endilega að vera besti söngvari í heimi bakvið lagið eða flink- asti lagahöfundurinn, heldur einhver „X-Factor“ sem gefur atriðinu líf. FANNAR SVEINSSON SITUR FYRIR SVÖRUM „X-Factor“ gefur atriðinu líf Morgunblaðið/Hari Forsíðumyndina tók Hanna Laugardaginn 3. mars ráðast úrslit um hvaða lag kemst áfram og keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision í Lissabon. Úrslitakvöldið verður haldið í Laugardalshöll og sjónvarpað beint á RÚV kl. 19.45.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.