Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Blaðsíða 11
4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð Pressed Petal Heart Wood ColourFutures2018 Við höfum síðustu vikur fyllst hluttekningumeð föngunum í þáttum Jóns Ársæls sem af-plána dóma sína í fangelsi. Líklega óskum við þess flest að öll þau sem við er rætt fái annað tækifæri. Þau hafa tekið út refsingu sína, málum þeirra er lokið og við teljum okkur tilbúin að taka aftur við þeim. Það er nefnilega mannlegt að gera mistök. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir þeim og ég efast um að ég þekki nokkurn sem ekki hefur einhverntím- ann gert eitthvað á hlut annars. Í síðasta mánuði gerðist það að rifjaðar voru upp fréttir af Sif Konráðsdóttur, nýráðnum aðstoðar- manni umhverfisráðherra. Hún hafði fyrir rúmum áratug verið réttargæslumaður barna sem áttu að fá bætur við 18 ára aldur og greiðsla þeirra hafði dregist. Það er alvarlegt að skila ekki bótum á rétt- um tíma til þolenda, en Sif var ekki kærð til lög- reglu og ekki dæmd. Miðað við svör hennar hefur hún ekki verið á góðum stað á þessum tíma og sennilega misstigið sig á einhvern hátt. Samkvæmt fréttum greiddi hún bæturnar hálfu ári síðar og sátt tókst um skuldina. Þar með lauk málinu. Svo líða árin og Sif er ráðin sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra, að því að mér sýnist á grund- velli þekkingar hennar og áhuga á umhverfismálum. En þá koma þessar fréttir aftur. Málið er rifjað upp í frétt eftir frétt og nær hámarki með viðtali við fyrrverandi skjólstæðing hennar. Ráðherra lætur undan þrýstingnum og segir henni upp. (Til að allr- ar nákvæmni sé gætt var því líka haldið fram að Sif gæti valdið vanhæfi ráðherra síns vegna línulagn- ingar og jarðar sem hún á norður í landi, en til eru reglur sem taka á slíkum tilvikum. Það sést best á því að eftir að Sif lét af störfum var öðrum ráðherra í ríkisstjórninni falið að leysa úr nokkrum málum sem tengdust fyrri störfum umhverfisráðherra og aðstoðarmannsins fyrrverandi hjá Landvernd.) Það er líklega rétt að nefna að ég þekki Sif ekki neitt. Hef aldrei hitt hana og aldrei talað við hana. Ef ég gúgla Sif Konráðsdóttur sé ég að hún hefur barist fyrir réttindum barna og kvenna sem hafa orðið fyrir ofbeldi og látið þessi mál til sín taka. En svo hefur hún gert mistök. Fyrir tíu árum. Margir hafa fagnað þessari niðurstöðu og litið á hana sem réttlæti. Þarna hafi unnist einhverskonar sigur. Ég tek það fram að ég tel að ákveðin brot séu þess eðlis að sá sem þau fremur fyrirgeri með því ákveðnum réttindum. Sumt getur verið tímabundið en annað varanlegt, eins og til dæmis það að tryggja að dæmdir barnaníðingar vinni aldrei störf sem veita þeim aðgang að börnum. En það sem mig langar samt að vita er hvar við ætlum almennt að draga mörkin. Við hvað má Sif vinna? Hver á að ákveða það? Ætlum við að búa til kerfi þar sem við fyrirgefum ekkert og gleymum engu? Hvað ætlum við að gera við allt það fólk sem hefur í breyskleika sínum framið afbrot? Ekið undir áhrifum áfengis, stolið, unnið öðrum líkamstjón, skemmt eigur eða gert einhver önnur mistök sem hafa mögulega komið til kasta dómstóla. Ég skil reiði brotaþola og aðstandenda þeirra. Þau viðbrögð eru að minnsta kosti jafn mannleg og það að verða á. En við höfum búið okkur til kerfi sem er ætlað að leiða mál til lykta. Ef við ætlum að hafna því kerfi og taka málin í okkar eigin hendur erum við komin á hættulega braut. Á sama hátt og okkur hefur í gegnum tíðina verið sagt að það sé mannlegt að skjátlast – að gera mis- tök – hefur okkur verið kennt að það sé mikilvægt að fyrirgefa. Stundum er ekki hægt að fyrirgefa, en þá er nauðsynlegt að reyna að sleppa. Við getum ekki bannfært fólk og ætlast til þess að það lifi áfram utan samfélags, án vonar um annað tækifæri. Bara af því að okkur líður þannig. Þá verða engir eftir nema þeir flekklausu. Samfélag hinna flekklausu Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Ég skil reiði brotaþola og aðstandenda þeirra. Þau viðbrögð eru aðminnsta kosti jafn mannleg og það að verða á. En við höfum búið okkurtil kerfi sem er ætlað að leiða mál til lykta. Ef við ætlum að hafna því kerfiog taka málin í okkar eigin hendur erum við komin á hættulega braut. Engan hitt svo aðlaðandi „Ég hef hitt marga forsætisráðherra um dag- ana en engan svona ungan, fáa svona vel gefna og engan svona aðlaðandi.“ Ástralski fréttamaðurinn Charles Wooley um Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja- Sjálands. Viðtal sem Wooley tók við Ar- dern vakti mikla athygli í vikunni enda þótti mörgum hann spyrja óviðeigandi spurninga, svo sem um getnað barnsins sem Ardern ber undir belti. Var hálfskjálfandi „Þetta var ótrúlega skemmtilegt, en líka mjög stressandi. Ég var hálf- skjálfandi í forkeppninni. En svo mundi ég bara hvað þetta er skemmtilegt og gefandi að vera með.“ Hafdís Sigurðardóttir sem snéri aftur á frjálsíþróttavöllinn eftir barnsburð og varð Íslandsmeistari í langstökki. Kærara en allt nema ástvinir „Síðan hefur Liverpool verið mér kærara en allt nema ástvinir.“ Sigurður Sverrisson sem flytur nú til bítla- borgarinnar eftir að hafa haldið með hinu nafntogaða fótboltafélagi í hálfa öld. Forsenda virkrar þátttöku „Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í lýð- ræðissamfélagi og nauðsynleg til að hver og einn geti nýtt hæfileika sína til fulls samfélaginu öllu til góða. Samkeppnishæfni landsins í framtíðinni mun ráðast af því hvort fólk getur lesið sér til gagns.“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra. Mæta með alvæpni „Mér finnst hreyfingin þurfa að ná vopnum sínum og mæta með alvæpni til næstu samninga.“ Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ um kjaraviðræðurnar sem eru framundan. Martin dró vagninn Martin Hermannsson fór mikinn þegar íslenska landsliðið í körfubolta vann tvo mikilvæga sigra á Finnum og Tékkum í Laug- ardalshöllinni um liðna helgi. Fyrir vikið er liðið komið í vænlega stöðu í undankeppni HM. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon AFP VIKAN SEM LEIÐ UMMÆLI VIKUNNAR ’Það þarf enga lagabreytingu tilað banna mönnum að valdabörnum líkamsmeiðslum. Ákvæðium þetta eru nú þegar í lögum. Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður um hug- myndir um að banna umskurð barna á Íslandi. Trump kemur á óvart Donald Trump Banda- ríkjaforseti kom mörgum í opna skjöldu á miðvikudags- kvöld þegar hann viðr- aði hugmyndir um að ganga lengra í að tak- marka byssueign og aðgang að skotvopn- um en repúblikanar hafa viljað til þessa.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.