Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 35
4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 21.-27. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 ÞorstiJo Nesbø
2 Þitt annað lífRaphaëlle Giordano
3 UppruniDan Brown
4 Það sem að baki býrMerete Pryds Helle
5 Iceland in a BagÝmsir höfundar
6 Elín, ýmislegt kiljaKristín Eiríksdóttir
7 Konan í glugganumA.J. Finn
8 BlóðmániMarkus Lutteman
9 Óþægileg ástElena Ferrante
10 NúvitundMark Williams
1 Hvolpasveitin LitabókNickelodeon
2
Lói þú flýgur aldrei einn
Styrmir Guðlaugsson/
Sigmundur Þorgeirsson
3
Stóra bókin um
Hvolpasveitina
Mary Tillworth
4 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson
5
Lærðu að láta þér líða vel
Judith M.Glasser Ph.D./
Kathleen Nadeau Ph.D
6 Saga tveggja töfraandaBoveda Spackman
7 Sönglögin okkarÝmsir höfundar
8 Hófí er fæddMónika Dagný Karlsdóttir
9
Skrímsli í vanda
Áslaug Jónsdóttir/Kalle
Güettler/Rakel Helmsdal
10 Vögguvísurnar okkarÝmsir höfundar
Allar bækur
Barnabækur
Ég var að lesa bókina Vefurinn eft-
ir Magnús Þór Helgason. Mér
fannst hún ljómandi fín og fléttan
skemmtileg. Hún
byrjar mjög þétt en
leysist pínu of hratt í
endann, hefði mátt
vera hundrað blað-
síðum lengri.
Svo á ég barn sem
er með kvíða og hef
verið að lesa bækur um kvíða. Ég
var þannig að lesa bókina Hvað get
ég gert við of miklar
áhyggjur? eftir
Dawn Huebner og
Ráð handa kvíðnum
krökkum eftir
nokkra höfunda.
Þær eru báðar
mjög gagnlegar til
að hjálpa börnum að eiga við
kvíða.
Svo hef ég verið með eina bók
fyrir framan mig
það sem af er ári,
Lífsbiblíuna eftir
Öldu Karen Hjalta-
lín. Ég fór á fyrir-
lestur hjá henni í
Hörpu og allir sem
sóttu fyrirlesturinn
fengu Lífsbiblíuna. Hún er með
fimmtíu ráðum sem maður getur
nýtt til að finna réttu leiðina í líf-
inu. Þetta er æðisleg bók og Anna
Karen er snillingur.
ÉG VAR AÐ LESA
Andrea
Ævarsdóttir
Andrea Ævarsdóttir er forstöðu-
maður Bókasafns Grindavíkur.
Í spennusögunni Konan í glugganum segir frá
sálfræðingnum Önnu Fox sem hefur ekki farið
úr húsi í tíu mánuði, en lætur nægja að fylgjast
með nágrönnum sínum út um gluggana. Þegar
ný fjölskylda flytur í húsið handan garðsins
heillast hún undireins, enda eru þau eins og fjöl-
skyldan sem hún átti. Eitt kvöldið rýfur óhugn-
anlegt óp næturkyrrðina og Anna verður vitni
að atviki sem enginn átti að sjá. En sá hún það í
raun og veru? Og mun einhver trúa henni? A.J.
Finn skrifaði bókina, Friðrika Benónýsdóttir
þýddi, JPV gefur út.
Í Norðlingabók I og II eru saman komnir á
einn stað sagnaþættir skáldsins Hannesar Pét-
urssonar, en jafnhliða ljóðlistinni hefur Hannes
samið fræðirit og greinar, ferðasögur og fengist
við þýðingar. Í fyrra bindinu eru frásagnir sem
áður birtust í þriggja binda safninu Misskipt er
manna láni og í síðara bindinu er Rauðamyrkur
og heimildaþættir og fróðleiksgreinar úr bók-
inni Frá Ketubjörgum til Klaustra. Þar hefur
Hannes líka bætt talsverðu við. Hannes hefur
einnig endurskoðað sagnaþættina, yfirfarið þá
og leiðrétt.
Blóðmáni heitir spennubók eftir sænska rit-
höfundinn og blaðamanninn Markus Lutteman
sem segir frá því er sænsk rokkstjarna á ystu nöf
flækist inn í óhugnanlegan heim alþjóðlegra
glæpahringja sem selja illa fengin nashyrnings-
horn. Svo hafa glæpagengin sótt í sig veðrið á
síðustu árum að nashyrningar eru í útrýmingar-
hættu, munu hverfa á næstu áratugum ef svo
fer fram sem horfir, m.a. vegna orðróms um að
horn þeirra hafi lækningarmátt. Ugla gefur bók-
ina út, Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
NÝJAR BÆKUR
Undanfarin rúm tuttugu ár hefur Magnús Þor-kell Bernharðsson verið að kenna nútímasöguMið-Austurlanda hér á landi og vestur í
Bandaríkjunum. Hann segir að bók sín, Miðaust-
urlönd — Fortíð, nútíð og framtíð, sé byggð upp eins
og ein kennsluönn, þar sem hver kafli sé eins og ein
vika. „Mér finnst ég hafa upplifað bókina mjög oft og
hef gengið með hana í maganum í meira en tuttugu
ár, en ég ákvað líka að skrifa bók fyrir okkar tíma,
tíma Google og upplýsinga á netinu, bók sem væri
ekki uppflettirit heldur gæfi lesanda einskonar
ramma eða forsendur til að túlka sjálfur hvað er að
gerast á þessu svæði.“
Mörgum finnst eflaust sem bók Magnúsar sé tíma-
bært rit í ljósi ástandsins þar um þesar mundir, en
Magnús segir að þegar litið sé til þessa landshluta þá
hafi slíkt rit alltaf verið tímabært. „Núna, hinsvegar,
virðast tímarnir sérlega slæmir, óveðursskýin hrann-
ast upp og það er óvenju slæm veðurspá núna.“
— Í bókinni Seven Pillars of Windom lýsir T.E.
Lawrence því þegar Bretar og Frakkar hlutast til um
löndin fyrir botni Miðjarðarhafs. Voru menn ekki þá
að sá til þessa ófriðar?
„Við erum að sjá betur og betur hvað tímabilið í
kringum heimsstyrjöldina fyrri skiptir gífurlega
miklu máli. Ég var á ráðstefnu í Tyrklandi fyrir
stuttu og kom mér á óvart hversu sterkar skoðanir
menn höfðu á því að nauðsynlegt væri að endurskoða
og endurskilgreina þær ákvarðanir sem voru teknar
akkúrat á þessum tíma.“
— Verður það gert nema með vopnavaldi?
„Þegar þessar ákvarðanir voru teknar voru
ákveðnar elítur settar á valdastólana sem eru búnar
að koma ár sinni vel fyrir borð og munu ekki gefa það
eftir, eins og við sjáum í kjölfar arabíska vorsins. Það
eru margir á því að það sé nauðsynlegt að taka þess-
ar ákvarðanir upp, verði beinlínis að gera það, enda
sé ekki hægt að lifa í núverandi ástandi. Það er nú
eða aldrei.
Það eru að komast til valda nýir hópar, fólk er að
skipuleggja sig á nýjan hátt, það er tilkall til þess að
ný sjónarmið komi fram, nýjar raddir og ný tegund af
skipulagi. Áður fyrr týndust menn í goðsögninni um
þjóðerni og samstöðu en nú er fólk að velta því fyrir
sér af hverju það ætti að vera í ferðalagi með öðrum
og hvort það ætti ekki að búa til sitt eigið lið, enda
skiluðu fyrirheit um sjálfstæði og sjálfstjórn litlu.“
— Hlutfall ungs fólk er gríðarhátt meðal íbúa Mið-
Austurlanda. Lítur það ekki á hlutina allt öðruvísi og
öðruvísi á hugmyndir um samstöðu Araba?
„Draumurinn um sameinaða Araba er löngu fyrir
bí, en þó sá draumur hafi snúist um sameiningu þá
veitti hann þá ákveðna von, ákveðna bjartsýni um að
ef Arabar væru sterkir og sameinaðir gætu þeir leyst
eigin mál á eigin forsendum. Þann draum heldur fólk
enn í. Ungt fólk þar, eins og ungt fólk annar staðar,
er búið að fá nóg af gömlu stjórnmálamönnunum,
gömlu klisjunum og gömlu leiðunum. Orðræða er þó
eitt og valdatæki er annað og gamla elítan hikar ekki
við að beita valdatækjum sínum eins og hún getur.“
Sérlega slæmir tímar
Í nýrri bók rekur Magnús Þorkell Bernharðsson nútímasögu Mið-Austur-
landa, eins mesta átakasvæðis okkar tíma í hundrað á́r
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Magnús Þorkell Bernharðsson sagnfræðingur.
Morgunblaðið/Hanna
„Nú vakna ég útsofinn og hv
Skúli Sigurðsson
Minnkar óþægindi við þvaglá
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað
fyrir karlmenn sem þjást af
einkennum góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli.
Rannsóknir hafa sýnt að með
þriggja mánaða inntöku á Brizo™ hefur
blöðruhálskirtill minnkað töluvert.
™
t
íldur“