Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 2
HönnunarMars er framundan og há- tíðin er nú haldin í tíunda skiptið. Er haldið sérstaklega upp á afmælið? Þetta er fyrst og fremst þátttökuhátíð arkítekta og hönnuða þannig að þeir búa til dagskrána, en auðvitað erum við kannski að blása extra hátt í lúðrana. Á DesignTalks ráðstefnunni, sem markar upphaf HönnunarMars, erum við með svolítið „confetti“ prógramm. Það eru fleiri fyrirlesarar en áður og við erum svolítið að horfa yfir síðustu tíu ár og horfa til framtíðar á þessum tímamót- um. Eru einhverjar stjörnur að koma? Hingað kemur fjölskrúðugur hópur framúrskarandi hönnuða úr alþjóða- samfélaginu, t.d. Henrik Vibskov, Reiulf Ramstad og Tekla Severin. Hvar er hægt að sjá hönn- unina? Hönnunin er úti um allan bæ og allar upplýsingar má finna á Hönn- unarmars.is. En ef maður er alveg týndur og veit ekki hvar maður á að byrja myndi ég mæla með að mæta á opnun HönnunarMars sem er á fimmtu- dag í næstu viku klukkan 17.15 í Hafn- arhúsinu. Hvað finnst þér vera mest spenn- andi í ár? Það er svo margt spennandi. T.d. 1+1+1 í samstarfi við handverksfólk í Sierra Leone. Svo er sýningin #endurvinnumálið í Hafnarhúsinu. Kron by Kronkron er í Hönnunarsafninu, PopUp Verzlun á jarðhæð KEX, Inspired by Aalto í Norræna húsinu og óteljandi stakir við- burðir og uppákomur t.a.m. strætóferðir með borgarstjóra um nýju Reykjavík á laugardeginum. Það er um að gera að fylgjast vel með. Verður eitthvað sem kemur á óvart? Það kemur alltaf eitthvað á óvart, en það er jú partur af töfrum há- tíðarinnar. Morgunblaðið/Eggert SARA JÓNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Blásið í lúðra á tíu ára afmæli Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Samræmdu könnunarprófin sem leggja átti fyrir nemendur níunda bekkj-ar í vikunni voru eitt stórt klúður. Eiginlega er ekki hægt að nota neittannað orð yfir þessa próftörn. Verkefnið sem Menntamálastofnun fékk í hendur var að leggja fyrir þrjú próf. Það lukkaðist að leggja eitt próf sæmilega vandræðalaust fyrir en tvö prófin mislukkuðust alveg. Það þarf ekkert töl- fræðiséní til að meta árangur verkefnis með svona niðurstöðu. Þetta er einfald- lega ekki í lagi. Fjölskyldur fjögur þúsund ungmenna þurfa nú að glíma við eftirköst sam- ræmdu prófanna sem ýmis náðist að klára, hálfklára eða varla byrja á. Ráð- herra menntamála hefur lýst því yfir að framkvæmd þessara prófa sé óásætt- anleg og að sjálfsögðu, eins og vaninn er með viðlíka klúður, þá „harmar“ stofnunin sem stóð fyrir prófunum þetta mjög. En hver eru viðbrögðin, önnur en þau að segja að þetta sé allt saman harmað, óásættanlegt, leitt, óheppi- legt og annað í þeim dúr? Jú, það á víst að halda fund. Eðli- lega. Ekki þó strax. Ekki daginn sem klúðrið kom upp, ekki daginn sem enn meira klúður kom upp. Ekki daginn eftir próflok. Nei, það á að bíða þar til í næstu viku með að halda fund! Menntamálaráðherra ætlar að hitta hlutaðeig- andi og ræða þetta mál á miðvikudaginn í næstu viku. Einni viku eftir að ófarir unga fólksins hófust. Þótt opinberlega eigi það ekki að vera þannig þá er staðreyndin sú að meira og minna allt nám vetrarins hjá 9. bekk, að minnsta kosti vorannar, miðast við að undirbúa nemendur fyrir þessi próf. Leynt eða ljóst eru krakkarnir í raun með þau í huga nær allt skólaárið. Þegar svona allsherjar klúður verður síðan við framkvæmd prófanna þá skyldi maður ætla að yfirmenn menntamála í landinu gætu sýnt unga fólkinu smá virðingu eftir alla vinnuna sem það hefur lagt á sig í vetur. Jafnvel að einhverjir gætu skammast sín nógu mikið til að leggja það á sig að mæta á fund með stuttum fyrirvara til að geta gefið skýr svör og útskýringar fljótt og vel. En nei, unga fólkið á bara að bíða. Eftir þessar hrakfarir þá er ekki nóg að heyra: „Já, þetta var klúður, við látum ykkur vita í næstu viku hvernig við leysum það…“ Það á enginn að þurfa að fara inn í helgina með svo loðin skilaboð og án þess að fengist hafi svör við því hvert framhaldið verður. Þessir fjögur þúsund ein- staklingar og fjölskyldur þeirra eiga betra skilið. Það er nokkuð öruggt að þau „harma“ virðingarleysið við sig og þessi óásættanlega hægu viðbrögð. Ekki er ýkja langt síðan próf voru tekin með frumstæðum áhöldum á borð við blýanta og blöð. Þá frusu engin kerfi. Morgunblaðið/Eyþór Já, þetta er klúður … bíðið samt í viku! Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Jú, það á víst að haldafund … Einni vikueftir að ófarir unga fólksins hófust. Pétur Magnús Pétursson Ég ætla til Frakklands um páskana, til Parísar, ég og nokkrir vinir mínir. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að fara eitthvað um páskana? Sigríður Birgisdóttir Í sumarbústað með fjölskyldunni. Ég vona bara að það verði gott veð- ur svo hægt verði að njóta útivistar. Jakob Róbertsson Nei, ég verð örugglega bara í bænum. Kristín Helga Gunnarsdóttir Ég fer á skíði um páskana, alltaf norður á Tröllaskaga. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Sara Jónsdóttir er stjórnandi HönnunarMars, uppskeruhátíðar hönnuða og arkitekta. HönnunarMars, sem fagnar tíu ára afmæli í ár, stendur yfir dagana 15.-18. mars. Allar upplýsingar er að finna á honnunarmars.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.