Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
VETTVANGUR
Miklir
yfirburðir
Our choice verður framlag Ís-
lands í Eurovision 2018 en Ari
Ólafsson vann keppnina eftir
dramatískt einvígi við Dag
Sigurðsson en Ari fékk 5.000
atkvæðum meira en Dagur.
Sérsveitin í 107
Lögreglan hafði töluverðan viðbúnað
þegar hún lokaði Ægisíðunni í lög-
regluaðgerð og handtók sjö manns í
aðgerðum á Ægisíðu og Grettisgötu. Í
ljós kom að málið tengdist líkamsárás
nóttina áður. Fimm mannanna verða
ákærðir fyrir að vera með fíkniefni á
sér og tveir fyrir líkamsárásina.
Minnst
á Óskarnum
Tónskáldsins Jóhanns Jóhannssonar
heitins var minnst á óskars-
verðlaunahátíðinni sem fram
fór í Los Angeles í vikunni.
Formaður á leikskóla
Sólveig Anna Jónsdóttir, starfsmaður á
Nóaborg, var kjörin formaður Eflingar
með yfirburðum í vikunni.
Morgunblaðið/Eggert
VIKAN SEM LEIÐ
ÍFréttablaðinu í vikunni var frétt um að nú væri byrjaðað plasta neftóbak í dósum. Það er gert vegna „frá-viks sem hefði átt sér stað“. Við lestur fréttarinnar
kemur svo í ljós að „frávikið“ er að dæmi eru um að ein-
hver hafi komist í dósir, tekið úr þeim tóbak og jafnvel
sett eitthvað annað í staðinn. Til dæmis kaffi. Skýringin er
líklega sú að neftóbak hefur hækkað gríðarlega mikið síð-
ustu ár.
Það, að rukka neftóbaksfíkla alltaf meira og meira, er
örugglega nóg til að pirra marga. Ég á hins vegar í meiri
vandræðum með þetta orð: Frávik. Hvaðan kemur það?
Af hverju segjum við ekki bara hvað þetta er? Er það
kannski ákvörðun ÁTVR, sem heitir ekki ÁTVR lengur
heldur Vínbúðin.
Ég skil svosem að ÁTVR vilji ekki tala um að það sé
einhver að fikta í dósunum og setja alls konar dót í þær og
vilji nota svona orð. En við hin þurfum ekkert að gera
þetta. Gallinn er sá að við erum sífellt meira að láta ein-
hverja skilgreina hvernig við tölum eftir því sem þeim
hentar. Ef þið fáið bréf frá hinu opinbera um hækkanir á
gjöldum, sem koma alltaf reglulega, þá heitir það alltaf
„verðskrárbreyting“ en ekki hækkun. Vissulega er verið
að breyta verðskránni en er ekki í lagi að kalla hluti rétt-
um nöfnum?
Nú eru allir þjónustufulltrúar eða eitthvað álíka. Ég
hringdi í tryggingafélag og fékk ekki samband við sölu-
mann heldur tryggingaráðgjafa, sem er mjög virðulegur
titill. Hann reyndi að sjálfsögðu selja mér eins margar
tryggingar og hann gat, hjá tryggingafélaginu sínu. Er
hann þá ekki sölumaður? Eigum við ekki bara að kalla
hann það? Það er heldur enginn lengur stór eða feitur eða
lítill í hefðbundinni merkingu. Fólk er hávaxið og lágvax-
ið, sem eru svo sem ágætis orð, og stór þýðir núna að vera
feitur. Merkingin skilar sér alveg og hugsanlega er þetta
tilraun til að tala af meiri virðingu um samborgara sína,
en það er örugglega ekkert langt þangað til fólk verður
ekki lengur lágvaxið – eða stórt í nýrri merkingu – heldur
eitthvað allt annað, af því að þessi orð hafa þá líka tapað
virðingarstöðu sinni.
Við erum föst í að búa til orð og orðasambönd sem lýsa
ekki fólki heldur launaflokkum. Við tölum um teymi við-
bragðsaðila og í kjarasamningum er samið um „launalið-
inn“. Ekki laun. Miðjumenn í fótbolta eru ekki til lengur.
Þeir eru á miðsvæðinu. Og línuverðir hafa frekjast í að
láta kalla sig aðstoðardómara. Það er reyndar efni í heilan
pistil!
Mér finnst alveg glatað að geta ekki notað orðið fóstra.
Mér finnst það fallegt orð og lýsa starfinu af miklu meiri
alúð en leikskólakennari. Og flugfreyja varð flugliði. Hefði
það drepið karlmenn að fá eitt starfsheiti í kvenkyni? Það
er líka stórmerkilegt að ljósmæður hafi fengið að halda
því nafni en séu ekki fæðingartæknisérfræðingar.
Það er eins og allt sé gert til að búa sér til ímyndaða
virðingu. Starfsmannastjórar urðu mannauðsstjórar, hús-
vörður er orðinn umsjónarmaður fasteigna og ganga-
vörður er skólaliði. Baðvörður er sennilega sérfræðingur
á sviði vatns í rými sem ætlað er til fatnaðarskiptinga.
Mér finnst ekki langt í það að við hættum að tala um
fólk í bílum og förum að tala um aðila í farartækjum og
hljómum öll eins og amerískir liðsforingjar í bíómynd.
Ég hef nefnilega ekki svo miklar áhyggjur af slettum í
málinu. Frekar að við séum að missa tökin á því hvernig
við tölum eðlilega og segjum það sem við viljum segja.
Frávik íslenskunnar
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’Ef þið fáið bréf frá hinu opinbera um hækkanir á gjöldum, sem koma alltaf reglu-lega, þá heitir það alltaf „verðskrárbreyting“ en ekki hækkun. Vissulega er veriðað breyta verðskránni en er ekki í lagi að kalla hluti réttum nöfnum?
UMMÆLI VIKUNNAR
’Þetta eru börn og niðurstaðaþeirra einstaklinga semverða fyrir svona truflun í prófigerir það að verkum að próf-
takan er algjörlega ómarktæk.
Það á bara hreinlega að gleyma
þessu segi ég. Gleyma því að
þetta próf hafi átt sér stað.
Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjóra-
félags Íslands um samræmdu prófin.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
SKÝR
hugsun
Clear Brain töflurnar eru ríkar af næringarefnum fyrir
heilann og hafa góð áhrif á andlega getu og vitræna
starfsemi eins og minni, eftirtekt og einbeitingu.
Inniheldur:
L-theanín • Valhnetuþykkni • Granatepli • Furubörkur • Pipar • B-vítamín
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu