Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 29
Þjóðverja meðan Rauði herinn beið
utan við borgarmörkin án þess að
aðhafast neitt. Um 150.000-200.000
óbreyttir borgara létust og þeir sem
lifðu af voru allir reknir út úr borg-
inni eða teknir í stríðsfangabúðir. Á
safninu má sjá borgina eins og hún
var stuttu eftir að hún var brennd til
grunna.
● Mikið af alls kyns kirkjum,
höllum, virkjum og setrum, frá
ýmsum sögutímabilum í bygging-
arstíl eru í göngufæri við miðju
borgarinnar. Má nefna Jóns-
dómkirkjuna frá 14. öld, Maríu-
kirkjuna frá 1411, konunglega kast-
alann Curia Maior frá 15. öld og svo
er mjög athyglisvert raðhús sem
byggt var fyrir Burbach-fjölskyld-
una á 14. öld. Bygging sem kallast
„Svertinginn“ og Salwator-
fjölbýlishúsið eru frægar byggingar
frá endurreisnartímabilinu. Í gamla
bænum má finna Konunglega kast-
alann frá 16. öld og og Jesúítakirkj-
una. Þetta er aðeins brotabrot af
merkilegum byggingum borgar-
innar og vert að kynna sér þá sögu á
internetinu og ákveða hvað fólk vill
skoða áður en lagt er af stað.
● Þótt gera megi ráð fyrir að það
taki heilan dag að heimsækja fyrr-
verandi útrýmingarbúðirnar í
Auschwitz, þegar farið er frá
Varsjá, er heimsóknin þess virði. Að
keyra þangað sjálfur tekur tæpar 4
klukkustundir en góð ferðaþjónustu-
fyrirtæki í Varsjá sjá um skipulagð-
ar ferðir þangað. Má sérstaklega
mæla með AB Poland Travel, sem
skipuleggur alls kyns dagsferðir út
fyrir borgina.
● Í Varsjá er fremur ódýrt að
versla og heilar 13 verslunarmið-
stöðvar með öllum helstu tísku-
vörumerkjum heims. Sérstaklega
má mæla með Arkadia-verslunar-
miðstöðinni sem er bæði björt, falleg
og með mjög fínum verslunum. Veit-
ingastaðirnir eru þó það sem mörg-
um þykir standa upp úr af því sem
borgin býður upp á, og það er nánast
allt í boði enda 70 taílenskir veit-
ingastaðir í borginni, 40 kínverskir
og 60 ítalskir. Má sér-
staklega mæla með
Tel Aviv, ísraelskum
veitingastað, en ís-
lenskir gestir hafa
lýst matnum þar
sem besta mat í
heimi. Vilji fólk þjóð-
lega rétti Pólverja eru
Specjaly Regionalne og
Polska Rozana mjög huggu-
legir staðir, með frábæran mat.
Þá hefur veitingastaðurinn N31
verið kosinn besti veitinga-
staður borgarinnar á Tripadvisor.
● Það er ekkert mál að fá gistingu í
Varsjá fyrir
nánast ekki
neitt en að
fara alla
þessa leið
og gista ekki
í svolitlum
lúxus er synd.
Enda eru lúx-
ushótel Varsjár
ekki dýr á okkar
mælikvarða.
Hótelið Bristol
við Gamla mark-
aðstorgið er mjög skemmtilegt, má
segja það sé fíneríis D’angleterre-
hótel þeirra Pólverja, og stendur í ein-
um af fáum byggingum borgarinnar
sem lentu ekki eyðileggingaröflum
síðari heimsstyrjaldar, byggt árið
1901. Á hótelinu hafa merkismenn
dvalið í gegnum tíðina, Margrét
Thatcher valdi til dæmis alltaf að
gista á hótelinu þegar hún var í er-
indagjörðum í borginni. Annað hótel
sem er eilítið ódýrara og í nýrri bygg-
ingu og þykir afar gott er H15 Bouti-
que.
● Að lokum má geta þess að Var-
sjárbúar eiga líka kattakaffihús sem
margir vilja helst heimsækja tvisvar
í einni og sömu ferðinni!
Hjarta borgarinnar slær á gamla markaðstorginu en þar voru gamlar teikningar notaðar til endurbygginga.
matthewshaw.co.ukNotalegur heimilislegur andi er á Polska Rozana veitingastaðnum.
Tel Aviv er einn af vinsælli veitingastöðum borgarinnar.
Margrét Thatcher var
aðdáandi Hótel Bristol.
Bristol hótelið er und-
urfagurt og nóttin ekki
dýr miðað við lúxusinn.
11.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp film
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægu
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari u
uh
m v
pplýsingum um áh
us
s.
kra.is.
töku, Panodil Br
fyrir notkun lyfsin
Panodil H
ga upplýsi
ættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjas
ot mixtúruduft,
ngar á umbúðum
lausn til inn
og fylgiseðli
úðaðar töflur, P
erkjum. Hitalækka
anodil Junior mixtúra, dreifa,
ndi. Til inntöku. Lesið vandle
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi