Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 11. MARS 2018 Heida Reed, eins og leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir kallast úti í heimi, sagði frá því á dögunum að hún hefði séð ummæli á netinu um líkamsvöxt sinn, hún hefði til dæmis verið gagnrýnd fyrir að vera ekki nógu grönn en Daily Mail greindi frá því að þrátt fyrir að leikkonan væri augsjáanlega í góðu formi hefði hún lesið ummæli á netinu þar sem stóð að hún væri falleg en hefði „óheppilega“ stór læri. „Af hverju er það óheppilegt? Eftir að hafa lesið nokkur fáránleg ummæli um Iskru Lawrence í morgun vil ég bara segja að við þurfum konur eins og hana,“ sagði Heiða en Lawrence er þekkt svokölluð „fyrirsæta í yfirstærð“. Heiða bætti við: „Ég get ekki sagt hvað það er yndislegt að sjá ungar konur sáttar og ánægðar með sinn vöxt og líkama af því að þær hafa einhvern eins og Lawrence til að líta upp til.“ Heida Reed hefur átt mikilli velgengni að fagna í Poldark. Lawrence mikilvæg fyrirmynd Iskra Lawrence á tískuvikunni í New York í febrúar síðastliðnum. AFP Það eru ekki bara módel í yfirstærð sem fá glósur um vöxt sinn heldur einnig grannar leikkonur á við Heidu Reed. Hún segir Iskru Lawrence mikilvæga fyrirmynd fyrir ungar konur. Náttúrugripasafn Íslands eign- aðist uppstoppaðan geirfugl í mars árið 1971. Fuglinn var þá löngu útdauður en talið er að einungis séu til tæplega 80 upp- stoppaðir geirfuglar í heiminum. Fuglinn var boðinn upp hjá Sotheby’s í London og það var einungis viku áður að Valdimar Jóhannesson, blaðamaður á Vísi, las um uppboðið og datt í hug að þetta væri líklega síðasta tæki- færi Íslendinga til að eignast ein- tak af þessum útdauða fugli. Fram fór sérstök söfnun og á örfáum dögum söfnuðust um tvær milljónir kr. sem voru á þeim tíma um það bil andvirði þriggja herbergja íbúðar í Reykjavík. Geirfuglinn (Pinguinus imp- ennis) var mjög algengur á Norð- ur-Atlantshafi á öldum áður, m.a. við Ísland, talið er að stofninn hafi verið margar milljónir en of- veiði var meginástæða þess að fuglinn dó út. Talið er að síðustu tveir fuglarnir hafi verið veiddir á Íslandi; í Eldey, í byrjun júní 1844. Valdimar og doktor Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur, héldu til London með féð sem safnaðist. Vert er að geta þess að borgarstjóri, menntamálaráð- herra og Seðlabankastjóri höfðu gefið vilyrði fyrir allt að fjórum milljónum til viðbótar ef þyrfti en til þess kom ekki. „Ég er mjög ánægður. Þetta var afskaplega skemmtilegt og spennandi upp- boð. Ég er hérna með hann í stof- unni, þar sem ég tala við þig,“ sagði dr Finnur við Morg- unblaðið. Geirfuglinn er varðveittur á Náttúruminjasafni Íslands. GAMLA FRÉTTIN Íslendingar keyptu sér geirfugl Dr. Finnur Guðmundsson og geir- fuglinn prýddu forsíðu Morgun- blaðsins daginn eftir uppboðið. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Benedikt Gröndal forsætisráðherra 1979-1980 Donald Trump forseti Bandaríkjanna Theresa May forsætisráðherra BretlandsSkeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða fleiri litir Verð frá 17.900,- TAKE Borðlampi – margir litir Verð 10.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 19.900,- KAY BOJESEN Söngfugl Verð frá 10.750,- Góðar gjafir í fermingarpakkann LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.890,- VITA - SILVIA Borðlampi Verð frá 19.900,- ARCHITECTMADE Önd andarungi Verð frá 8.450,- SIMPSON Bolli Verð 1.590,- stk. MR.WATTSON LED LAMPI Verð 16.990,- KAY BOJESEN Api lítill Verð 17.850,- stk CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- LOUIS GHOST Stóll, til í fleiri litum Verð 36.900,- GHOST BUSTER Náttborð Verð frá 47.900,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.