Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 18
Stíllinn á heimilinu er líflegur, listrænn,kósí og afslappaður,“ útskýrir Sigurlaug.„Við viljum frekar nýta það sem til er og
gera eitthvað skemmtilegt úr því en að kaupa
endilega nýtt.“ Þá segir parið jafnframt notalegt
að hafa í kringum sig hluti sem eiga sér ein-
hverja sögu.
Aðspurð hvað þau leggi áherslu á við innrétt-
ingu heimilisins segja þau að þægindi og gott
skipulag í bland við huggulegt útlit sé mikil-
vægt.
Sigurlaug og Stígur segjast helst kaupa inn á
heimilið í Ikea og Von og björgum. „Svo grípum
við stundum í einn og einn hlut á ferðum er-
lendis,“ útskýrir Sigurlaug og bætir við að þau
sæki helst innblástur inn á heimilið úr blöðum,
bíómyndum og listaverkabókum.
Fjölskyldan kann vel við sig í miðbænum.
„Bakaríið Brauð og co. er í miklu uppáhaldi,
þangað förum við um helgar og nælum okkur í
rjúkandi nýbakað súrdeigsbrauð, einnig eru
mörg kaffihús í nágrenninu sem notalegt er að
hanga á þegar tími gefst til. Ekki má gleyma
nýuppgerðri Sundhöll Reykjavíkur, sem er
dásamlegur staður til þess að slaka á og njóta,“
útskýra þau og bæta við að á heimilinu sjálfu
eigi fjölskyldan bestu stundirnar við eldhús-
borðið.
Sigurlaug Arnardóttir, kennari og söngkona, og Stígur Steinþórsson leikmynda-
hönnuður búa ásamt börnum sínum í einstöku einbýlishúsi í miðbænum.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Listrænt heimili í
miðbænum
Morgunblaðið/Eggert
Bakkelsi frá Brauði og co. er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni.
Á heimilinu er nostrað við hvern krók og kima.
Stígur Steinþórsson og Sigurlaug Arnardóttir hafa komið sér vel
fyrir í gömlu einbýlishúsi í miðbænum.
Eldhúsið tók parið nýverið
í gegn. Blái liturinn setur
svo sannarlega skemmti-
legan svip á rýmið.
HÖNNUN Laugardaginn 10. mars verður lager- og sýnishornasala barnafataversl-unarinnar iglo+indi, skartgripahönnunarinnar Hring eftir hring og skó-
búðarinnar Flóar opin frá klukkan 12-16 í Auðbrekku 10, 200 Kópavogi.
Lager- og sýnishornasala iglo-
+indi, Hring eftir hring og Fló
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018