Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Blaðsíða 16
M eðalmanneskjan eyðir fjórum klukkustundum á dag í sím- anum samkvæmt appinu Moment, sem fylgist með í hvað þú eyðir tímanum í símanum þínum. Þetta er byggt á gögnum frá fimm milljónum notenda. Tíminn fer kannski ekki allur í samfélagsmiðla því fólk les t.d. greinar í símanum en þessar upplýsingar koma samt margar í gegnum samfélagsmiðlana, og þá ekki síst Facebook. Þeir sem vilja nota tæknina til að hjálpa sér að ná tökum á símanotkuninni, eða að minnsta kosti til þess að átta sig á umfangi notkunar- innar ættu að prófa öpp á borð við fyrrnefnt Moment, Space og Mute. Stofnandi þess síðast- nefnda, Nick Kuh, hannaði Mute til þess að hvetja fólk til að nota símann sinn minna, minnka notkunina á samfélagsmiðlum og vera meira til staðar. Í appinu er hægt að setja sér takmörk um hámarks skjátíma og svokallaðan afeitrunartíma, þann tíma í einu sem síminn er algjörlega látinn í friði. Líka er hægt að sjá hversu oft síminn er tekinn upp á hverjum degi. Þarna er hægt að nota tæknina til að berjast við tæknina! Kuh vildi láta gott af sér leiða því hann veit að flest öpp hjálpa ekki til því öll möguleg öpp frá leikjum til samfélagsmiðla eru hönnuð til þess að láta okkur halda áfram að nota þau. „Mörg þessara fyrirtækja nota hegðunarsálfræðinga til þess að gera þetta; finna leiðir til að ná þér aftur inn. Ég hef unnið við öpp sem gera þetta og ég er ekki stoltur af því,“ sagði hann í samtali við Guardian. Tristan Harris, fyrrverandi vöruheimspek- ingur hjá Google, er sannfærður um að Kísildal- urinn sé að gera okkur háð símunum okkar og vill snúa við þessari þróun. Hann segir símann sinn vera ávanabindandi og líkir iPhone-inum sínum við það að vera með „happdrættisvél í vasanum“. Titill hans vísar til þess að undir lok- in í starfi sínu hjá Google var hann farinn að vinna við að rannsaka hvernig fyrirtækið gæti haft siðræna hönnun að leiðarljósi í öllu starfi en hann hætti hjá fyrirtækinu til að vinna að þess- um breytingum á víðari vettvangi, m.a. hjá sam- tökunum Time Well Spent. Einhverjir gera lítið úr símafíkn fólks og kenna veiklyndi um en Harris segir að forritunum sjálf- um sé um að kenna. Þau séu hönnuð til þess að gera fólk að fíklum og hann vill að tæknifyrirtæki axli ábyrgð til að hjálpa okkur að leggja símann auðveldar frá okkur. Hann vill að þeir sem hanni og þrói hugbúnað þurfi að sverja einskonar Hippokratesareið sem byggist á því að hætta að notfæra sér veikleika fólks. Botnlaus skál „Það er alltaf til leið til að hanna sem byggist ekki á fíkn,“ sagði hann í samtali við The Atl- antic. „Like“-hnappurinn eins og á Facebook og Instagram er dæmi um tækni sem hvetur til notkunar. Fólk gáir oft hvort að það séu ekki að bætast við „like“ og fær dópamínskot í heilann þegar það gerist. Sannað er að þegar verðlaun eru veitt með tilviljanakenndum hætti ýtir það enn frekar undir ákveðna hegðun. Til er fræg rannsókn sem leiddi í ljós að fólk borðaði 73% meiri súpu úr skálum sem fylltu sig sjálfar en þegar notast var við venjulegar skál- ar. Fréttayfirlitið (news feed) í Facebook minn- ir á þessar sjálffyllandi skálar, það kemur stöðugt meira og við áttum okkur ekki á því að við innbyrðum meira magn af upplýsingum en við ætluðum okkur. Stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, er meðvitaður um þessa umræðu og hefur sett sér það markmið að laga Facebook á þessu ári. Þetta er raunar áramótaheiti hans en fyrri ára- mótaheiti hafa verið m.a. að læra mandarín og lesa eina bók á viku. Hann vill m.a. standa vörð um andlega heilsu notenda samfélagsmiðilsins og koma í veg fyrir að hann sé misnotaður. Von- andi tekst honum þetta. Justin Rosenstein, hönnuður „like“- hnappsins á Facebook er búin að loka á Reddit í tölvunni sinni, banna Snapchat og takmarka notkun sína á Facebook. Hann er ósáttur við að netið sé farið að snúast að þörfum auglýsinga- iðnaðarins. Honum finnst mikilvægt að taka þessa umræðu nú því hann sé í síðustu kynslóð- inni sem muni hvernig lífið var fyrir snjall- símabyltinguna. Það er nefnilega erfitt að átta sig á því ná- kvæmlega hvað þessi mikla símanotkun er að koma í veg fyrir. Það er til dæmis mikilvægt að láta sér leiðast en þannig verður til pláss fyrir nýjar hugmyndir. Það er ekki hægt ef síminn er tekinn upp um leið og hægist um og hann er alltaf notaður til að dreifa huganum. Það er ólík- legt að maður hugsi á dánarbeðinum: „Ég vildi að ég hefði verið meira á Facebook!“ Það eru til skemmtilegri ævintýri en þau sem byrja með skrolli. Upp úr kanínuholunni Sífellt fleiri eru að átta sig á því hvað síminn þeirra og samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á líf þeirra og sumir ákveða í kjölfarið að takmarka notkun sína eða hætta alveg. Hugbúnaðurinn er hannaður til að vera ávanabindandi. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is ÚTTEKT 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018 Atli Bollason byrjaði á Facebook haustið2007 en ákvað að hætta á samfélags-miðlinum 1. nóvember síðastliðinn. Af hverju gerðirðu það? „Það voru í rauninni margar ástæður. Sú fyrsta og einfaldasta er bara hvað þetta tekur mikinn tíma frá manni. Mér fannst ég svo oft lenda í því að ég ætlaði að gera eitthvað annað en svo bara hurfu mínútur og klukkustundir þarna inni, sem var alltaf tími sem ég sá eftir. Mér fannst alltaf eins og ég hefði eiginlega ver- ið að gera eitthvað af mér,“ segir hann en það er vissulega óþægileg tilfinning að sjá eftir tíma. „Þetta var tilfinning sem ég upplifði frekar oft,“ segir hann og lenti eins og svo margir í því að í stað þess að lesa í klukkutíma í bókinni á náttborðinu fyrir svefninn hvarf tíminn í Face- book. „Aðeins að kíkja“ verður oft að einhverju meira, sem er áreiðanlega nokkuð sem margir kannast við. Önnur ástæða fyrir því að hætta er honum ekki síður mikilvæg. „Ég vildi hætta að styðja að allt efni, sama hvort maður er til dæmis blaðamaður eða lista- maður að gera eitthvað, sama hvað maður er að gera þarf það allt að vera sniðið að þessu face- bookformati. Það þarf allt að vera deilanlegt. Það þýðir að það þarf allt að vera stutt, gríp- andi og einfalt og mér fannst það orðið pirrandi. Ég vildi ekki taka þátt í að allt þyrfti að vera steypt í þetta mót,“ segir hann. Samræðurnar ekki uppbyggilegar Þetta eru ekki einu ástæðurnar fyrir því að hann hætti. „Þetta er samskiptamiðill en mér fannst aldrei neitt uppbyggilegt koma út úr samræð- um þarna. Fólk er fljótt að fara í einhverjar skotgrafir og það er ótrúlega auðvelt fyrir hluti að misskiljast og hægt að snúa út úr þeim. Mér fannst Facebook líka bregðast svolítið þessu hlutverki sínu sem samskiptamiðill,“ segir hann. „Það sem er ekkert endilega bundið við Facebook eru þessar sífelldu uppfærslur, þessi svakalegi flaumur af upplýsingum, sem gerir það að verkum að ekkert lifir. Eitthvert lag er heitt í dag en það er í alvörunni gleymt á morg- un. Þessi svakalega hröðu umskipti sem Face- book ýtir svo undir er nokkuð sem mig langaði bara ekki að vera með í,“ segir Atli. Hvernig er lífið fyrir utan? „Það er bara verulega fínt,“ segir hann og hlær. „Að sumu leyti sakna ég Facebook minna en ég hélt. Ég hélt það yrði meiri löngun til þess að kíkja þarna inn því það er í rauninni erf- itt að hætta. Ef ég myndi logga mig inn núna er eins og ég hefði aldrei hætt,“ segir hann en það eru tvær leiðir til að hætta á Facebook. Annars vegar er hægt að gera reikninginn óvirkan. Eftir það getur enginn séð prófílinn og maður finnst ekki í leitinni en sumar upplýsingar eins og skilaboð send til vina sjást ennþá. Hægt er að byrja aftur hvenær sem er. Hins vegar ef ætlunin er að hætta alveg er hægt að óska eftir því að prófílnum verði eytt út en það getur tekið 90 daga. Áður en þetta er gert er hægt að fá afrit af upplýsingunum sem Facebook hefur að geyma um viðkomandi. „Ég tala miklu meira í síma en ég gerði áður sem þýðir að ég heyri meira í vinum mínum. Spjall eins og í messenger er mjög fínt, maður hefur greiðan aðgang að fólki en á sama tíma getur það verið svo óskilvirkt. Það getur tekið allan daginn að taka einfaldar ákvarðanir.“ Áður en Atli hætti lét hann rækilega vita af því á samskiptamiðlinum en það var ekki síst gert fyrir vini erlendis. „Ég kallaði eftir kon- taktupplýsingum, og fann líka leið til að geta keyrt út kontaktlistana mína úr Facebook,“ segir hann. Áður notaði hann miðilinn til að kynna við- burði fyrir sjálfa sig eða aðra. Núna er hann að skipuleggja hliðardagskrá við tónlistarhátíðina Sónar sem tengist ljósum og myndum en í stað- inn hefur hann sent tölvupósta og haft samband beint við fólk. „Þegar Facebook kom fyrst var þetta þannig að þú gast sett inn viðburð eða auglýsingu og það vissu allir af viðburðinum. En eftir því sem áreitið varð meira var allt það sem Facebook gerði svo vel í byrjun farið að gefast miklu verr.“ Talar meira við vini sína Hvaða áhrif finnst þér facebookleysið hafa haft á samskipti við vini? „Ég heyri heldur í vinum mínum í síma sem ég hefði kannski áður ekki heyrt í í nokkrar vik- ur þótt ég hefði verið með þá eitthvað á spjall- inu. Þá fæ ég meiri upplýsingar frá þeim og get, sem skiptir miklu máli, lesið í tón; ég get greint hvort þeim líður vel eða ekki,“ segir hann. „Fólk í kringum mig virti þessa ákvörðun og sendir mér tölvupóst eða hringir í mig ef það er verið að bjóða í eitthvert partí sem er annars bara boðið í á Facebook,“ segir hann. Atli er hins vegar á Instagram. „Það er ann- ar hlutur. Ég finn samt að ég nota Instagram ekki nærri því eins mikið og einu sinni en mér finnst gaman að fara þangað inn annað slagið.“ Finnurðu mun á líðan eftir að þú hættir? „Ég get ekki sagt að það hafi verið komið á það stig að Facebook hafi verið kvíðavaldandi, ég myndi ekki taka svo djúpt í árinni, en ég finn að ég er glaðari. Þessi tími sem ég ætlaði áður að nota til að lesa en fór svo á Facebook, núna hef ég getað notað hann á einhvern hátt sem mér finnst hafa meira gildi þannig að mér líður miklu betur með það. Ég er ekki lengur með þetta samviskubit yfir glötuðum tíma,“ segir hann. Það er samt hægt að eyða tíma í margt annað á netinu. „Netið í heild sinni er byggt upp á þennan hátt; það er alveg hægt að týnast inni á Wikipedia eða Guardian-síðunni. Þetta er ekki töfralausn þannig en þetta hjálpaði mér, bara það að taka einhverja svona ákvörðun er leið til að fá sig til að hugsa um hvernig maður nýtir tímann.“ Atli saknar Facebook minna en hann hélt að hann myndi gera. Allt verður steypt í sama mót Atli Bollason heyrir frekar í vinum sínum í síma eftir að hann hætti á Facebook og finnst hann hafa grætt tíma til að gera uppbyggilegri hluti. ’Þessi svakalega hröðu um-skipti sem Facebook ýtir svoundir er nokkuð sem mig langaðibara ekki að vera með í. Morgunblaðið/Hanna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.