Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 23
Mozzarella- stangir ¼ bolli hveiti 1 bolli brauðrasp (sjá aðferð að neðan) 2 egg 1 msk. mjólk 450 g mozzarellaostur (best að kaupa hann í rúllunni) 1 bolli grænmetisolía að eigin vali 1 bolli sósa að eigin vali, pítsasósa, chilisúrsæt, majónes, salsa eða annað til að dýfa stöng- unum í ½ tsk. salt ½ tsk. svartur pipar ½ tsk. hvítlauksduft ½ tsk. oregano Að gera brauðraspið er ofureinfalt. Takið gamalt eða nýtt brauð, nokkrar sneiðar sem duga í mulning í a.m.k. einn bolla, setjið í ofn- skúffu og hitið við 60°C. Þetta getur tekið klst en þegar brauðið er orðið þurrt molnar það auðveldlega, sniðugt er að nota matvinnsluvél eða berja það í plast- poka með kökukefli. (Umframrasp geymist vel í loftþéttum um- búðum í nokkrar vik- ur.) Kryddið brauð- raspið með salti, pipar, hvítlauksdufti og oreg- ano. Pískið saman egg og mjólk. Skerið ostinn í lengur, svipaða að stærð og stuttar fransk- ar en aðeins þykkari. Setjið ostinn í plast- poka með hveitinu og hristið vel, þannig dreif- ist það vel yfir ostinn. Dýfið stöngunum í eggjablönduna og rúllið þeim síðan upp úr brauðmylsnunni. Dýfið stöngunum aftur í blönduna og veltið aðra umferð upp úr brauð- mylsnunni. Setið í frysti í klukkustund áður en þið steikið stangirnar. Hitið olíu á stórri pönnu og steikið stang- irnar um mínútu á hverri hlið, eða þar til þær eru gylltar en ekki það lengi að osturinn sé farinn að leka. Leggið þær til þerris á eldhús- pappír og berið fram með sósu að eigin vali. 11.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Slumpuborgari Ef þeir sem matreiða alltaf eins hamborgara og hafa ekki prófað að slumpa hinu og þessu milli brauðanna þannig að úr verður kaótískur turn eru að lesa þetta þá getur greinarhöfundur lofað að líf þeirra mun breytast. Hér gildir alls ekki að vanda sig og ekki þarf heldur að fara nákvæmlega eftir þess- ari uppskrift. Bananinn er til dæmis aðeins fyrir þá alla djörfustu. Svo má benda á að þótt það hljómi sem sóun að kaupa heilan poka af lauk- hringjum fyrir bara nokkur stykki á borgarann geymast þeir vel í frysti fyrir næstu hamborgaraveislu. Fyrir einn: hamborgarabrauð, helst brioche 120-140 g hamborgarakjötsneið hamborgarakrydd að eigin vali (hér var kryddblanda Jónasar Þórs úr Kjötkompaníi notuð) 3 skinkusneiðar 2 ananashringir (eftir smekk) nokkur kálblöð nokkrar mjög fínt skornar lauksneiðar 1-2 tómatsneiðar, þunnt skornar 2 msk. léttmajónes 1 msk. tómatsósa 1 tsk. sriracha-sósa 2 þykkar sneiðar af osti, til dæmis cheddar 3 laukhringir ½ vel grænn banani (má sleppa) Undirbúið allan skurð á grænmeti, pakkið brauðinu inn í álpappír og tak- ið til sósurnar. Setjið laukhringina inn í ofn og pakkið brauðinu inn í ál- pappír. Kryddið hamborgarann og steik- ið á báðum hliðum, leggið ostsneið á þegar seinni hliðin er steikt. Steik- ið skinkuna og ananassneiðarnar upp úr smjöri þegar þið eruð hálfn- uð með að steikja kjötið, skerið bananann langsum í tvær þykkar sneiðar og svo þversum, steikið einnig upp úr smjöri. Velgið brauðið á meðan í ofni við lágan hita. Leggið ost einnig ofan á bananann og látið bráðna meðan hann steikist. Raðið loks öllu á borgarann í þessari röð: majónes, tómatsósa og sriacha-sósa neðst, laukhringir, tómatsneið, kál, banani, lauk- hringir, skinka, meiri laukhringir og ananas, skinka, kjöt, ananas, skinka og aftur brauð. Stingið löngum pinna í gegn og berið fram. Sjóðheit steypujárnssending Framleiðsla er komin á skrið aftur í Lodge verksmiðjunni sem hefur legið í lamasessi undanfarið vegna frosthörku. Þetta gerist ekki oft í litla bænum Suður-Pittsburg þar sem fjórða kynslóð Lodge fjölskyldunnar framleiðir nú vörur úr steypujárni. Sjóðheit steypujárnssending er lent í Kokku á Laugaveginum og www.kokka.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.