Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Síða 26
Það voru samt allir mættir á sýn-ingarnar í þessari allt í einuhvítu borg. Við Vera Pálsdóttir
ljósmyndari fórum á tvær sýningar, hjá
Dior og Chloé. Báðar voru mjög fal-
legar. Persónulega var ég hrifnari af
Dior þar sem Maria Grazia Chiuri er
listrænn stjórnandi. Hún er ítölsk og var
áður hjá Valentino. Chloé er með nýjan
hönnð sem heitir Natacha Ramsey-Levi
sem hefur verið að vinna með Nicolas
Ghesqiere, hönnuði Louis Vuitton.
Báðar þessar sýningar voru inn-
blásnar af tímanum um 1970, og það
tímabil virðist verða eitt af trendunum
næsta vetur.
Að auki bætti Dior metoo-hreyfing-
unni inn í sýninguna, bæði í nokkrum
flíkum og eins í sviðsmynd úti og inni.
Á báðum þessum sýningum var mikið
af frægu fólki, mætt þrátt fyrir kulda og
snjó. Það má segja að enginn sé svo
frægur eða ríkur að hann eða hún þiggi
ekki boð á tískusýningu hjá Dior eða
Chanel.
Við náðum myndum af nokkrum
stjörnum, sem var nokkuð vel af sér vik-
ið, þar sem fólk var óvenju fljótt að koma
sér inn og út.
Í París er mjög sérstakt andrúmsloft á
hinni svokölluðu tískuviku. Hún fer fram
tvisvar á ári, og þá er allt fullt af gestum
og ferðamönnum í borginni. Blaðamenn,
sýningarstúlkur og innkaupaaðilar koma
og sjá hvað borgin hefur upp á að bjóða.
Þetta er eins og hátíð í nokkra daga.
Flestar sýningar fara fram í kringum Sa-
int-Honoré-götu, rétt hjá Louvre-
safninu. Oft hafa sýningar verið í stórum
tjöldum í Tuileries-görðunum, rétt þar
hjá.
Nú brá svo við að það voru engar sýn-
Kanadíska toppmódelið
Winnie Harlow. Hún er 23
ára sýningarstúlka og
aðgerðasinni. Hún þjáist af
húðsjúkdómnum vitiligo, sem
lýsir sér þannig að húðin er
mislit og skellótt. Winnie
Harlow er mjög þekkt og
meðan hún stillti sér upp fyr-
ir okkur var einhver annar að
reyna að ná mynd af henni
hínum megin frá.
Það var ískalt í þessum febrúarmánuði í París. Sumar nætur var 10 stiga frost og
það kyngdi niður snjó. Ljósgrá borgin er búin að vera enn ljósari út af snjónum.
Tískusýningarnar fyrir vetur 2018-19 fóru því fram í óvenjulegum kulda.
Ljósmyndir: Vera Pálsdóttir Texti: Sigrún Úlfarsdóttir
Eitthvað Fellini-legt við þessar jap-
önsku stúlkur sem voru að fara á Dior.
ingar í görðunum vegna kulda. En allt í
kring, í upphituðum höllum og hótelum,
var mikið að gera. Yngri hönnuðir og
minni fyrirtæki sýna líka í kringum eða
á Saint-Honoré. Þeir sem koma alls
staðar að úr heiminum til að kaupa inn
fyrir verslanir hafa lítinn tíma svo hag-
stæðast er að vera nálægt miðpunkt-
inum.
Þessi tískuvika varir svo stutt og það
gerist svo mikið í einu að það er mikil
orka í borginni. Biðraðir geta myndast á
skemmtilegustu kaffihúsin og veitinga-
staðina. Aðkomufólkið sem kemur til að
vinna er einnig allt í sínu besta pússi og
það gefur skemmtilegan blæ.
Það kemur mikið af Japönum, sem
hafa verið meðal dyggustu stuðnings-
manna franskrar tísku í nokkra ára-
tugi. Þeir hafa líka komið með sitt
framlag í að móta hana, með öllum sín-
um þekktu hönnuðum. Yohij
Yamamoto, Kenzo,
Issey Miake og Rei
Kawakubo vinna
öll í París og
hafa haft mikil
áhrif.
Japönsku
gestirnir bera
oft af í glæsi-
legum og frum-
legum klæðaburði
og við tókum því
nokkrrar myndir af
þeim.
Það er gaman að vera í París á þessum
tíma. Og þótt fólk sé ekki að vinna í tísku
getur það sest inn á Hótel Costes og
fengið sér kaffibolla á 500 krónur og virt
fyrir sér þátttakendur í þessu samblandi
af glamúr og bissness …
Glæsileg götutíska í París
Þessi flotta kona var á
leiðinni á Chloé-sýninguna.
Hún var klædd á svo einfaldan
en elegant hátt að okkur
fannst hún standa vel fyrir
franskan stíl. Og þótt það
væri sex stiga frost og snjór
á köflum var hún í litlum
hælaskóm.
Gestur á
sýningunni. Eins og Lísa í
Undralandi, enda má
segja að við höfum farið
til Undralands við að
fara á þessa
sýningu.
Algeng sjón í París eru
Austurlandabúar í versl-
unarferðum. Þeir kaupa mikið; oft
eru þeir með pöntunarlista frá
vinum og ættingjum, til dæmis í
Kína. Franskur lúxusiðnaður
verður æ háðari þessum kúnnum.
Kína og aðrar Austurlanda-
þjóðir eru auðvitað meiri-
háttar markaður.
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
Fimmtudaginn 15. mars á milli klukkan 10.00 og 17.00 verður sýningin HAV
opnuð á Kjarvalsstöðum. Sýningin veitir innsýn í skandinavíska fatahönnun sem
unnin er úr umhverfisvænum sjávartextíl. Sýningin stendur til 18. mars 2018.
Textíll á Kjarvalsstöðum
Lou Doillon, dóttir
Jane Birkin og systir Char-
lotte Gainsbourg, var mætt á
sýninguna hjá Chloé. Að sjálf-
sögðu er hún í gervipels. Ekta
pelsar og skinn eru eiginlega
búið spil í Frakklandi. Og þeg-
ar Stella McCartney var yfir-
hönnuður hjá Chloé var tek-
ið fyrir notkun allra
dýraafurða.
Emmanuelle Alt,
núverandi ritstjóri
franska Vogue.