Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Page 28
● Þekki maður lítið til sögu Póllands
er þægilegt að láta pakka mörg
hundruð ára sögu landsins og borg-
arinnar inn í góðan og stuttan leið-
sögutúr. Einkum má mæla með
Adventure Warsaw sem er með
samnefnda heimasíðu.
● Stundum er talað um að Dres-
den hafi orðið verst úti í spreng-
ingum seinni heimsstyrjaldar en þá
er fólk að gleyma Varsjá, þar sem 9
af hverjum 10 byggingum voru
sprengdar upp.
Það er því ótrúlegt að heimsækja
borgina og verða þess ekki var að
hún hafi farið svo illa enda var ráðist
í enduruppbyggingu hennar, sem
margar þjóðir komu að, með því að
notast meðal annars við gamlar
teikningar þar sem því varð við kom-
ið.
Borgin er vissulega marg-
breytileg og mikill bræðingur af
aldagömlum byggingum í sjarm-
erandi gamla bænum, nýrri gler-
hýsum auk þess sem sovésk áhrif
sjást víða.
● Það sem mörgum finnst mikill
kostur er að stór hluti borgarinnar
er græn svæði, eða um 40 prósent
borgarinnar. Hægt er að gleyma
sér í göngutúrum í fallegum lysti-
görðum, svo sem í Łazienki-
lystigarðinum sem Stanislaw Aug-
ust Poniatowski konungur byggði á
18. öld. Þar er Łazienki-höllin,
Vatnshöllin, umlukin síkjum og
tjörnum. Á sunnudögum hljómar
tónlist heiðursborgarans Chopin í
lifandi flutningi, frá miðjum maí
fram í september og páfuglar og fas-
anar ganga frjálsir um. Raunar eru
almenningsgarðar borgarinnar alls
82 og með þeim þekktari eru Saxa-
garðurinn og garðarnir við hallirnar
Krasiñski og Królikarnia.
● Áin Visla liggur nokkurn veginn
við miðju borgarinnar en miðjan
miðast við sjarmerandi miðalda-
markaðstorgið, sem er umkringt
byggingum frá endurreisnar- og
barrokktímanum. Þar í námunda
eru einar elstu leifar borgarinnar,
miðaldavirkið Barbican.
● Ef hæglætislíf á alls kyns söfn-
um er ferðalöngum að skapi er nóg
af slíku að hafa í Varsjá. Söfnin eru
af öllum toga og gerðum, listasöfn og
söguleg en ekki má gleyma að nefna
kirkjugarð borgarbúa, Powazki,
sem er eins konar safn. Margir fara
með leiðsögumanni í gegnum garð-
inn en þar eru þeir frægu og ófrægu
grafnir og mikill sögulegur fróð-
leikur. Pólverjar leggja mikið upp úr
að heiðra þá borgarbúa sem létu lífið
í síðari heimsstyrjöld og minnast
þeirra með fallegum minnis-
merkjum. Garðurinn er risastór og
fróðleg friðarstund að ganga í gegn-
um hann.
● Til að öðlast dýpri skilning á
sögu Varsjár, ekki síst í seinni tíð, á
lifandi og sérstöku safni, má mæla
með Muzeum Powstania Warszaws-
kiego, eða Rísandi safni Varsjár.
Safnið var upphaflega stofnað til að
minnast þess sem breytti borginni
til frambúðar; Varsjáruppreisnar-
innar 1. ágúst 1944, sem lauk eftir 63
daga en heimamenn börðust þá við
Thinkstock/iStockphoto
Lystigarðarnir eru magnaðir. Hér má sjá útileikhús í Łazienki-lystigarðinum.
Borgin sem var
endurbyggð
Varsjá er iðandi af lífi og Íslendingar eru farnir að fara þangað í meira mæli
en áður. Borgin á merkilega og líka mjög sorglega sögu en er ekki bara fyrir
áhugafólk um liðna tíma heldur nautnaseggi sem vilja góðan mat og ljúft líf.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Varsjá er blanda ólíkra byggingarstíla
en eftir síðari heimsstyrjöld þurfti að
endurbyggja hana nær frá grunni.
Menningarhöll borgarbúa, fyrir miðju
myndar, gaf Stalín borgarbúum.
FERÐALÖG Víða í Varsjá er gyðinga minnst en nasistar útrýmdu gríðar-stóru samfélagi þeirra í borginni í seinni heimsstyrjöld. Sérstaktsafn tileinkað menningu þeirra er í borginni og minnismerki
um gettóið sem var það stærsta á þýsku yfirráðasvæði.
Gyðinga minnst
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
32.500kr
HILLA MEÐ SNÖGUM
24.900kr
GLERBOX
3.600kr
BEKKUR