Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018
Synd ef eitthvað kæmi
fyrir mömmu hennar
„Þetta er falleg lítil stúlka. Það væri
synd og skömm ef eitthvað kæmi fyr-
ir mömmu hennar.“
Þetta fullyrðir klámmyndaleikkonan
Stormy Daniels, sem heldur því fram
að hún hafi sængað hjá Donald Trump
Bandaríkjaforseta árið 2006, að
ókunnugur maður hafi sagt við hana
og unga dóttur hennar árið 2011.
Kippti sér sjálfur í lið
„Þetta sló mig aðeins út af laginu en ég var
fljótur að ná áttum og hélt sýningunni
áfram.
Leikarinn Jóel Sæmundsson var að leika einleik-
inn Hellisbúann í Keflavík þegar hann fór úr axl-
arlið. Hann lét það ekki á sig fá, kippti sér í
lið og hélt sýningunni áfram.
Kornið sem fyllti mælinn
„Viðbrögð rússneskra stjórnvalda hafa ekki verið
sannfærandi og þau hafa ekki verið tilbúin að
starfa með Efnavopnastofnuninni og breskum
stjórnvöldum til að upplýsa málið. Það má segja að
Salisbury-málið sé kornið sem fyllti mælinn.“
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra en Ís-
land mun ásamt fleiri vestrænum ríkjum taka þátt í
þvingunaraðgerðum gegn Rússum.
Enginn á HM
„Enginn sem spilaði í dag fer á HM.“
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í
knattspyrnu. Ósáttur við frammistöðu liðsins í
vináttuleiknum gegn Perú.
Sá netta birnu
„Ég leit út um gluggann og sá þá eina netta
birnu en fyrir aftan hana var stór björn.“
Bjørn Naustervik Myklebust sem starfar á
Svalbarða.
Reuters
VIKAN SEM LEIÐ
Ég fékk vinabeiðni um daginn á Facebook frá henniEmilíu. Ég þekki hana ekki neitt en ég er svosem
vanur að fá svona beiðnir frá fólki sem ég kannast
ekki við, enda mjög ómannglöggur. Það var samt eitt-
hvað undarlegt við þetta.
Í fyrsta lagi átti hún bara þrjá vini fyrir. Þeir voru all-
ir miklir útlendingar og ekki í neinum tengslum við Ís-
land. Hvað þá mig. Í öðru lagi var bara ein mynd af
henni á síðunni. Það var greinilega gott veður hjá henni
því hún var léttklædd. Hún var svosem ekki að segja
mikið frá högum sínum, utan þess að hún væri einhleyp,
en maður gat komist að meiru með því að taka niður
eitthvert forrit til að skoða myndirnar hennar. Pínu
undarlegt.
Nú gæti maður spurt sig: Af hverju ætti ókunnug út-
lensk kona að vilja gera mig að fjórða vini sínum á Fa-
cebook? Gæti mögulega verið að hér væri einhver að
spila með mann?
Ég þekki mann sem fékk tölvupóst um að hann
hefði unnið í happdrætti í Frakklandi. Hann trúði því.
Jafnvel þó að hann væri alveg handviss um að hann
hefði aldrei keypt miða og reyndar aldrei komið til
Frakklands. Honum fannst það ekki skipta svo miklu
máli. Hann sá bara upphæðina sem hann vann og
fannst svosem ekkert tiltökumál að senda reiknings-
númer til baka. Sem betur fer gekk það ekki svo langt.
Er það ekki ólíklegt að maður vinni í happdrætti þeg-
ar það er algjörlega öruggt að maður hefur ekki keypt
miða?
Af og til fæ ég tölvupóst frá einhverjum sem ég þekki
ekki um að fjarskyldur ættingi minn hafi fallið frá. Svo
merkilega vill til að svo virðist sem eingöngu efnaðir
ættingjar mínir geispi golunni, gjarnan í útlöndum.
Kannski er stórhættulegt að vera ríkur.
En það merkilega við þessi skilaboð er að þetta er
aldrei neinn sem ég þekki. Jafnvel mamma, sem er allra
manna ættvísust, hefur aldrei heyrt um þetta fólk. Eins
og þegar Luther Bergmann fórst í þyrluslysi í Argent-
ínu. Það var vissulega hræðilegt. En hefði verið enn
hræðilegra ef ég hefði vitað hver það var.
En til að dempa sorgina get ég alltaf huggað mig við
að mín bíður vissulega myndarlegur arfur. Jafnvel þó að
ég fái það ekki til að passa, með þrjá bræður mína full-
fríska, að ég sé alltaf eini erfinginn, einhver sé alltaf
með netfangið mitt og það eina sem ég þurfi að gera sé
að senda þeim kennitöluna mína og bankaupplýsingar.
Þetta er stórmerkilegt.
Og ef kortafyrirtækið þitt sendir þér póst um að kort-
ið þitt sé lokað, er þá ekki líklegra að hann líti út eins og
Íslendingar hefði skrifað hann?
Þegar kemur að tölvumálum eru bara fjórar reglur.
Hugsaðu í smástund áður en þú svarar. Ef það hljómar
of vel til að vera satt þá er það ekki satt. Ekki treysta
neinum sem þú þekkir ekki. Og aldrei fara með tölvuna í
bað. (Hér erum við samt aðallega að tala um fyrstu
þrjár reglurnar.) Ef þú fylgir þeim þá er netið frábær
staður.
Reglur netsins
Á meðan ég man
Logi Bergmann Eiðsson
logi@mbl.is
’Eins og þegar Luther Bergmann fórst í þyrluslysi í Argentínu. Það var vissulegahræðilegt. En hefði verið enn hræðilegra ef ég hefði vitað hver það var.
UMMÆLI VIKUNNAR
’Ef ekki væri fyrir Þóri þá hefðiég kastað inn handklæðinu. Norska handboltakonan Nora Mörk sem er
þakklát þjálfara sínum, Þóri Hergeirssyni, fyrir
stuðning á erfiðum tímum.
VETTVANGUR
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
VOR 2018
COLOUR 5
Atvinna