Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Side 18
VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018 H inn skeggprúði Hjörtur Schev- ing er hugbúnaðarverkfræð- ingur að mennt en í dag eiga skegg hug hans allan. Ekki bara hans eigið, heldur skegg út um allan heim, en hann selur skeggvörur í 45 löndum undir vörumerkinu Fit for Vikings. Hjörtur býr í Noregi þar sem hann hefur opn- að tvær rakarastofur og fleiri eru á teikniborð- inu. Í vor mun hann svo stofna fyrsta rakara- skóla Noregs. Hjörtur segist bjóða upp á miklu meira en rakstur; að setjast í rakarastól- inn er víst líka gott fyrir sálina. Fékk leiða á stafrænum heimi Skeggævintýrið hans Hjartar hófst fyrir þremur árum en hann hafði áður unnið í við- mótshönnun og grafískri hönnun, fyrst á Ís- landi og svo í Noregi, en eftir hrun var hér ekkert að gera í þeim bransa. Hann flutti þá til Noregs þar sem hann hafði búið sem barn og fékk strax vinnu við sitt fag, en eftir nokkur ár við tölvuna ákvað hann að breyta til. „Ég fékk svo leiða á þessum stafræna heimi. Þar er ekkert sem endist og ekkert sem er áþreifanlegt, öllu er breytt svo fljótt aftur. Þannig að ég fór að skoða í kringum mig hvað ég gæti gert,“ segir Hjörtur. Þá fékk hann hugmynd að vinnu sem var ólík öllu sem hann hafði áður gert. „Ég hef verið með skegg í áratugi og nota mikið skeggvörur til að halda því almennilegu. Ég hafði kynnt mér skeggvörur og sá að þar voru engin geimvísindi á ferð. Stofnkostnaður við að búa til skeggvörur var ekki svo hár þannig að ég byrjaði fyrir þremur árum með línu sem heitir Fit for Vikings. Ég hanna allt sjálfur, vörurnar, allar uppskriftir og umbúð- irnar. Ég byrjaði heima í eldhúsinu og er nú með endursöluaðila í fimmtán löndum. Þetta hefur gengið mjög vel og ég hef verið að selja á netinu til 45 landa,“ segir Hjörtur. „Þetta er alltaf að vaxa,“ segir hann en hann lét ekki staðar numið þar. Rakarastofur voru næst á dagskrá. Skeggið er heilagt „Mér fannst passa mjög vel við vöruna að vera með rakarastofu, það gefur vörunni aukinn trúverðugleika. Ég opnaði fyrstu stofuna í Osló í maí á síðasta ári. Ég fann húsnæði sem ég féll algjörlega fyrir, og sá bara fyrir mér rakarastofuna þarna. Þetta er ekta rakara- stofa og við klippum bara herra og það er rak- að á gamla mátann og mikil skeggklipping,“ segir Hjörtur. Að sjálfsögðu eru þar einungis notaðar vörurnar úr línunni hans Hjartar. „Þetta eru allt náttúrulegar vörur og allt hand- unnið, það eru engar vélar sem koma nærri. Við erum líka með hárvörur, sjampó, olíur; í raun allt sem viðkemur stofunum okkar,“ segir hann. „Vörulínan mín er vel þekkt í Noregi og að- allega fyrir skeggvörur þannig að menn treysta okkur vel fyrir skegginu. Þú getur klúðrað hárinu á mönnum, en ef þú klúðrar skegginu, eru það endalok. Þetta er heilagt,“ segir Hjörtur og brosir. Svo er skegg í tísku í dag, það hefur kannski hjálpað? „Auðvitað hefur það hjálpað, það er mjög inn í dag og ég held það verði það áfram. Það er svaka sprenging í rakarastofum á heims- vísu, þær eru að poppa upp núna víða og það er fullt af nemum að læra,“ segir Hjörtur. Hann segir skeggolíur og skeggvörur sífellt vinsælli og hafa vörurnar hans unnið til al- þjóðlegra verðlauna. „Svo hef ég fengið mjög góða dóma fyrir hönnunina mína í erlendum fagtímaritum. Þar hafa verið sýndar myndir af stofunni og talað um að hún sé hin fallegasta í heiminum,“ segir hann og bætir við að hann sé að fara í samstarf við ítalskt hönnunarfyrirtæki um hönnun á sérstökum rakarahúsgögnum. Meðferð fyrir skegg og sál Hefurðu einhverja skýringu á þessari skegg- tísku? „Já, ég held það. Við lifum á stafrænni öld með öllum þessum samskiptamiðlum. Nú eru að dúkka upp alls konar míkró-ölsmiðjur og handverk er að verða meira metið. Þetta er visst afturhvarf til fortíðarinnar. Að láta raka sig hjá okkur tekur 45 mínútur; þar er dekrað við þig. Þetta er eini staðurinn þar sem ég fer þar sem ég er ekki að tékka á póstinum eða í símanum. Við erum miklu frekar að selja upp- lifun heldur en nokkuð annað,“ segir hann og segir að þarna sé góð tónlist og hægt að spjalla við rakarann sinn um daginn og veginn. Er þetta spa fyrir skeggið? „Já, spa fyrir skeggið og spa fyrir sálina í rauninni! Nándin á milli rakarans og kúnnans er mikil. Kúnninn segir oft rakaranum meira en öðrum,“ segir Hjörtur en hann er í sam- vinnu við breskt góðgerðarfélag sem heitir The Lions Barber Collective sem vekur at- hygli á andlegri heilsu karlmanna og rennur ágóðinn af einni vörulínu Hjartar til samtak- anna. „Rakarinn finnur oft hvað er að gerast hjá kúnnanum; hefur kannski þekkt hann í gegn- um árin. Þeir geta lesið í hann og ef þeir verða varir við eitthvað erum við í beinu sambandi við félög, t.d. við eitt sem vinnur gegn sjálfs- vígum. Við erum ekki sálfræðingar en reynum að leiðbeina fólki áfram.“ Vantaði rakaraskóla í Noregi Hjörtur segir að núorðið sé viðurkennt að karlmenn snyrti sig og noti snyrtivörur. „Hellisbúaútlit er ekki lengur inn,“ segir Hjörtur og bætir við að Norðmenn með skegg séu í auknum mæli að koma til að láta snyrta skeggið. Blaðamaður segist sjá fyrir sér norskt mót- orhjólagengi, tattúveraða leðurklædda gaura með rytjulegt skegg ryðjast inn á stofuna. Eru þessir menn að mæta? Hjörtur hlær. „Já, þeir eru einmitt að mæta! Við fáum alls konar menn úr öllum stéttum og sumir koma langt að.“ Í Noregi hefur ekki verið nein rakara- menning að sögn Hjartar og enginn skóli til sem kennir rakarafræðin. „Ég er að byggja upp hefðina, þessa bresku hefð, hér í Noregi. Vegna þess að námið hefur aldrei verið kennt hér fékk ég til mín erlenda rakara til að vera með í upphafi, en rakarar geta fengið vinnu hvar sem er í heiminum,“ segir Hjört- ur sem ákvað að það væri ekki nóg. Næst þurfti að opna aðra stofu og í kjölfarið rak- araskóla. „Svo opnuðum við aðra stofu í desember í Drammen, í 40 mínútna fjarlægð frá Osló. Þar er húsnæðið öðruvísi, í 150 ára gamalli blikk- smiðju þannig að við reynum að halda stílnum upp að vissu marki. Þetta er fyrsta rakara- stofan í Drammen,“ segir hann. „Við ætlum svo að setja þar á stofn rakara- skóla. Málið er að ég get án efa opnað rakara- stofur um allan Noreg, en ég fæ ekki rakara. Eina lausnin var í raun að opna skóla og þjálfa upp sjálfur rakara sem ég get svo boðið vinnu. Við opnum núna í apríl, maí og verðum með pláss fyrir átta manns,“ segir Hjörtur en nám- ið tekur fjóra mánuði. „Nemendur verða þá öruggir með vinnu eftir námið og það er hægt að þéna vel yfir hálfa milljón á mánuði sem rakari. Og það eru störf um allan heim fyrir rakara, nefndu það bara.“ Ert þú sjálfur liðtækur í rakstrinum? „Ég kann ekkert, hef aldrei snert skærin. Mig langar að læra raksturinn, mér finnst það spennandi, það er eins og falleg listgrein.“ Ætlar í skeggútrás Hjörtur á fyrirtækið einn og segist ráða sér sjálfur, hvert hann fari og hvað hann geri. Íslenskur víkingur í skeggútrás Hjörtur Scheving býr í Noregi og rekur tvær nýstárlegar rakarastofur, selur skegg- vörur sínar á netinu og hyggst opna fyrsta rakaraskóla Noregs. Hann hefur sjálfur hvorki snert skæri né rakhníf en lætur það ekki aftra sér frá því að færa út kvíarnar og opna griðastaði fyrir skeggjaða menn víða um heim. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í Drammen hefur Hjörtur opnað rakarastofu í 150 ára gamalli blikk- smiðju. Hönnunin er gamaldags í stíl við bygginguna. Innan skamms verður opnaður þar fyrsti rakaraskóli Noregs. ’Vörulínan mín er vel þekkt íNoregi og aðallega fyrirskeggvörur þannig að menntreysta okkur vel fyrir skegginu. Þú getur klúðrað hárinu á mönn- um, en ef þú klúðrar skegginu, eru það endalok. Þetta er heilagt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.