Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Qupperneq 24
HEILSA Þrátt fyrir að línuskautar séu skemmtilegir finnst mörgum ekkertskáka gömlu hjólaskautunum. Á Amazon má til dæmis kaupa gerðir
sem þessar, sem minna á þá sem voru vinsælir fyrir áratugum.
Nostalgískt hjólaskautasumar
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018
Zumba er kennt víða. Í Reebook fitness eru til
dæmis góðir tímar, annars vegar zumba og zumba
fitness sem eru hraðari tímar, með meiri líkams-
rækt í bland. Dans & Jóga Hjartastöðin er með bæði
zumba-tíma, fjörug zumba-partí og zumba fyrir
börn, í Hreyfingu eru líka opnir zumba-tímar, í
Sporthúsinu, Líkamsrækt JSB og í Kramhúsinu eru
sérstök zumba-námskeið.
Sjálf hef ég einkum farið í tímana í World Class
en þar eru zumba-tímar á hverjum degi og kenn-
arar allir góðir en mjög ólíkir. Þannig fer það svolítið
eftir skapi til hvers konar kennara ég vil fara, því ég
er farin að þekkja tónlistarsmekk þeirra og ríkjandi
áherslu í dönsum. Í þessum efnum hefur kennarinn
eiginlega allt að segja, hann drífur stuðið áfram, vel-
ur tónlistina og semur dansana. Ég mæli því með að
fólk prófi marga kennara, flakki milli tíma í byrjun til
að finna hvað hentar best. Þekkt er að fólk eltir
góðu kennarana. Skipti þeir um vinnustað, kaupa
aðdáendur sér kort í nýju líkamsræktarstöðinni sem
þeir kenna í.
Persónulega hentar mér afar vel orkubolti sem heit-
ir Alla Rún Rúnarsdóttir og kennir í Ögurhvarfi. Hjá
henni getur manni liðið eins og maður sé heimsins
besti dansari á leiðinni á svið að dansa í Fame og
hún hefur tónlistarsmekk sem fellur vel að mínum.
Í upphafi mætti ég 3 sinnum í viku en í dag mæti
ég 5-6 sinnum í viku. Ég fór líka á
Þorláksmessu, aðfangadag og
gamlársdag í zumba og fannst
það hápunktur hátíðanna.
Ástæðan er einföld, dag-
urinn verður alltaf betri
eftir dansinn og ég er
orkumeiri í vinnu. Vís-
indalega er það vissulega sannað að öll
hreyfing gerir manni gott en regluleg
líkamsrækt sem fær hjartað til að slá
hraðar og svitna almennilega bætir
einnig minnið og skerpir hugsun
(nýleg rannsókn British Columbia)
og það mun frekar en hægari
hreyfing sem vinnur með að
byggja sérstaklega upp vöðva-
massa og þjálfa jafnvægi.
Klæðnaður skiptir máli í
zumba þar sem manni verð-
ur ógurlega heitt í dans-
inum og svitnar mikið og
þar sem það er mikið um skopp og sveiflur er sér-
stakleg mikilvægt að skórnir styðji vel við og fjaðri
vel svo að góðir hlaupaskór eru málið. Til að komast
í virkilegan fíling getur verið gaman að klæða sig í
„dansleg“ föt, binda bol um mittið eins og pils og
vera í skærlitum bolum sem minna á suðlægari
lönd. Alls ekki gleyma vatnsbrúsanum, allir þurfa
vænan sopa milli lotna.
Ekki láta fæla þig frá þótt allir virðist kunna spor-
in nema þú. Allir voru einhvern tíman byrjendur.
Komdu þér fyrir þar sem þú sérð kennarann vel í
fyrstu tímunum, til að geta fylgt eftir og notaðu
bara fætur til að byrja með. Þegar þú hefur náð tök-
um á þeim sporum er hægt að bæta höndum við.
Í grunninn má segja að þetta séu mikil til sömu
sporin svo að þetta er fljótt að koma þegar þú hefur
náð grunninum.
Ef þú átt erfitt með að ná sporunum skalt bara
dansa eins og þú getur, það eru engar reglur í
zumba um að þú þurfir að gera nákvæmlega svona
eða hinsegin.
Tónlistin er hátt spiluð og þótt ég kunni vel að
meta það eru þeir sem eru viðkvæmir fyrir hárri
tónlist gjarnan með eyrnatappa á sér og nota í tím-
anum. Það er mikill misskilningur að í zumba sé
bara latínótónlist, þetta er blanda af nýrri popp-
tónlist, stundum jafnvel harðara rokki, ballöðum og
alls kyns skemmtilegum nýrri og eldri lögum. Marg-
ir kennarar eru svo góðir að hafa lagalistana sína
opna á Spotify og ég hef verið með nokkra þeirra í
eyrunum þegar ég skúra eða er í vinnunni, sumir
nota þá jafnvel til að æfa sig heima.
Zumba hefur marga kosti, þeir sem vilja léttast
mega vita það að á fáum stöðum fær fólk meiri
brennslu en í góðum zumba-tíma er brennslan upp
á 500-600 hitaeiningar. Um leið styrkjast allir vöðva-
hópar, liðleiki eykst og þetta er góð æfing fyrir jafn-
vægið.
Teygjur eru ekki langar eftir zumba-tíma þar sem
hann er nýttur vel í dansinn. Það eru mikil mistök
að teygja ekki einn sjálfur betur eftir tímann.
Ekki vera feimin/n. Í fyrstu er maður upptekinn af
því að ná sporunum en þegar á líður snýst þetta um
ýkjur. Draga fram allt það ýktasta í manni sjálfum og
láta eins og maður sé stórstjarna, syngja með lög-
unum og hreyfa sig eins og maður sé í inntökuprófi
fyrir söngleik.
ER ZUMBA FYRIR ÞIG?
Fyrir rétt rúmum áratugheyrði ég fyrst af zumba. Þávoru þetta „nýju“ tímarnir í
nokkrum líkamsræktarstöðum og í
kynningu var þessum tímum lýst
þannig að í tímunum hljómaði suð-
ræn stuðtónlist og við hana dans-
aði fólk og skemmti sér en zumba
snýst um að þjálfun eigi að vera
fjörug og skemmtileg.
Zumba er blanda af dansi og lík-
amsrækt og það var kólumbíski
dansarinn og hjólreiðamaðurinn
Alberto Perez, jafnan kallaður
Beto ofurpedali í heimalandi sínu
sem var upphafsmaður þess. Í dag
er zumba vörumerki, í eigu Zumba
Fitness, með sérstakan alþjóð-
legan sendiherra sem er brasilíska
popptónlistarkonan Claudia Leitte.
Dansspor zumba eru meðal annars
sótt í hipp-hopp, samba, salsa og
mambó og inn í þetta blandast
stundum hnébeygjur og ýmiss
konar æfingar sem finna má í
hefðbundnari tímum. En dansinn
er alltaf ofan á.
Aðgengilegt
En það var sem sagt fyrir
nokkrum mánuðum sem ég
sætti mig við að mér þætti
líkamsrækt leiðinleg. Leið-
inlegt að hlaupa, leiðinlegt
í skíðavélinni, leið-
inlegt í tækjasaln-
um, leiðinlegt að
hoppa eins og frosk-
ur í eróbikktímum. Í
mér bjó hins vegar
gamall dansari, ball-
erína til nokkurra
ára, og ég vissi að
mér þætti gaman að
dansa.
Dansinn yrði hins
vegar að vera að-
gengilegur og þá rakst
ég á þetta zumba. Í mörgum lík-
amsræktarstöðvum voru þetta
opnir tímar, oft í viku og því að-
gengilegt að geta dottið inn þegar
manni hentaði.
Fyrsti tíminn er eftirminnilegur,
ég átti fullt í fangi með að fylgja
kennaranum eftir og mér fannst
fólkið svolítið skrýtið þarna inni,
eins og allir væru búnir að anda að
sér gleðilofti á fæðingardeild, kátir
og hressir. Sporin komu fljótlega
og í dag, 5 mánuðum síðar, er há-
punktur dagsins að fara í zumba,
því þar verð ég glaðari sem er svo
sem vísindalega sannað að dans
geri. Það er því ekki laust við að
undirrituð vilji aðeins útbreiða
fagnaðarerindið og hér til hliðar
eru nokkur atriði sem vert er að
deila með þeim sem íhuga hvort
zumba sé fyrir þá.
Getty Images/iStockphoto
Gleðigjafinn
zumba
Í mörg ár hefur undirrituð leitað að líkamsrækt sem
er ekki orðin leiðigjörn eftir nokkrar vikur. Sú hreyf-
ing fannst fyrir nokkrum mánuðum og nú verður
ekki aftur snúið. Zumba er hamingjustund dagsins.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Tæp 20 ár eru frá því að fólk
byrjaði að dansa zumba, þá
fyrst í Kólumbíu.
Zumba er orðið heimsþekkt
fyrirbæri, hér tekur Michelle
Obama nokkur zumbaspor.
AFP
Það góða við Zumba er að þar
er leyfilegt að hafa allar dans-
hreyfingar ýktar og svakalegar.