Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Síða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Síða 36
SJÓNVARP Netflix-þættirnir Stranger Things hafa slegið í gegn og eru orðnir ein vinsælasta þátta- sería efnisveitunnar. Aðdáendur þáttanna vita að allt getur gerst og engin persóna er óhult en eitt er þó víst: Steve Harrington, sem Joe Keery leik- ur, mun ekki deyja! Þessu lofaði framleiðandinn Shawn Levy að minnsta kosti í viðtali við TVLine þar sem hann sagði: „Dagurinn sem Steve Harr- ington deyr er dagurinn sem ég segi mig frá þáttunum. Ég get einfaldlega ekki lifað í heimi þar sem Steve Harrington er ekki til. Og ég held að margir séu sama sinnis.“ Þáttaröð númer þrjú er væntanleg á næsta ári. Steve Harrington er per- sóna sem hefur þroskast mikið í þáttunum. AFP Karakterinn sem mun ekki deyja 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.4. 2018 LESBÓK KVIKMYNDIR Bill Nighy, sem hefur gert garð- inn frægan í myndum eins og Love Actually, Pride og Pirates of the Caribbean, viðurkenndi á dögunum að sér þætti leiðinlegt að leika. Í við- tali við RadioTimes magazine sagði hinn 68 ára gamli leikari að það liði ekki meira en vika á milli hugsana um að þetta væri leiðinlegt starf. „Þetta er kannski ekki alltaf leiðinlegt, ég hef unnið með frábæru fólki og er stoltur af sumu því sem ég hef gert,“ sagði Nighy en sagði að ferlið sjálft væri ekki ánægjulegt, ánægjulegt væri þegar það væri búið. En af hverju er hann þá leikari? Jú, honum datt ekki neitt annað í hug til að gera. Hatar að leika Bill Nighy horfir helst ekki á sjálfan sig á skjánum. AFP Einir vinsælustu sjónvarps-þættir allra tíma eru 40 ára ámorgun, 2. apríl. Frá 1978- 1991 fylgdist heimsbyggðin með fjöl- skyldunni á Southfork og vinum þeirra og óvinum kúrekast, olíubora, djúsa, plotta, elskast og rífast og nutu þættirnir fádæma vinsælda. Dallas átti í fyrstu aðeins að vera fimm þættir á CBS-sjónvarpsstöð- inni. Vinsældir komu framleiðendum stórlega á óvart og var ráðist í að halda áfram en sennilega hefur fáa grunað að áhorfendur ættu eftir að fylgja eftir ástum og örlögum Texas- fólksins í 13 ár. Í fyrstu áttu þættirnir fyrst og fremst að snúast um ástir og örlög Bobby Ewing og Pamelu, en fjöl- skyldur þeirra voru keppinautar í viðskiptum og svarnir óvinir. Fljót- lega kom í ljós að eldri bróðir Bobby, J.R. Ewing, yrði senuþjófur og þegar yfir lauk og síðasti þátturinn fór í loftið, 1991, var J.R. eina persóna Dallas sem hafði birst í hverjum ein- asta þætti. Atriði endursýnt í fréttum Þættirnir nutu ekki aðeins vinsælda í Bandaríkjunum heldur fóru þeir sig- urför um heiminn og í kringum 1980 voru áhorfendur um 300 milljónir. Í síðasta þætti annars hluta Dallas er J.R. skotinn og þá sáu um 30 millj- ónir Breta atriðið, helmingur þjóð- arinnar þá. Krár voru tómar og til- ræðisatriðið var meira að segja endursýnt í sjálfum fréttatíma BBC síðar um kvöldið. Það var þó ekki fyrr en 1981 sem íslenskir áhorfendur gátu séð þætt- ina og þrátt fyrir vinsældir meðal al- mennings urðu þeir strax þrætuefni vegna meintrar lágkúru þáttanna en svipuð umræða hafði einnig átt sér stað í Danmörku og Tyrkir vildu meira að segja banna þættina þar sem þeir væru atlaga að einingu fjöl- skyldna. Í dag er hægt að heimsækja Southfork-búgarðinn sem er til í alvörunni. Deilt um Dallas Dallas-þættirnir eiga stórafmæli en 40 ár eru liðin frá því að fyrsti þáttur af 357 var sýndur vestanhafs. Hérlendis fór fyrsti þáttur í loftið 1981 og urðu þeir þrætuefni þótt meirihluti Íslendinga teldi sig ekki geta verið án þáttanna. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Sex leikarar úr aðal Dallas-hópnum eru enn á lífi. Patrick Duffy lék Bobby. Linda Gray sem lék Sue Ellen er að nálgast áttrætt í dag. Bróðir þeirra Bobby og J.R., Ray Krebbs var leikinn af Steve Kanaly. Victoria Principal, sem er 68 ára í dag, lék Pamelu Ewing. Ættmóðirin, Ellie Ewing, sem Barbara Bel Geddes lék og Larry Hagman, sem lék J.R. eru látin. Charlene L. Tilton, sem lék Lucy, var tvítug þegar þættirnir hófust. Cliff Barnes, erkióvinur J.R. leikinn af Ken Kercheval er 83 ára í dag.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.