Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.04.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2018
DÝPR I OG BE TR I SVEFN
Með því einu að snerta takka getur þú stillt
rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum
færð þú nudd. Saman hjálpa rúmið og dýnan
þér að ná hámarksslökun og dýpri og betri
svefni. Svo vaknar þú endurnærð/ur og til
búin/n í átök dagsins.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
HEILSURÚM
AFSLÁTTUR
25%
KOMDU NÚNA!
STILLANLEGIR DAGAR
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR
DAGAR
Þ Á AUS FJARSTÝRINGR
LEDvasaljós
Klukka
Vekjaraklukka
Upp/niður höfðalag
Upp/niður fótasvæði
Rúm í flata stöðu
2 minni
Nudd
Bylgjunudd
STILLANLEGU HEILSURÚMIN FRÁ C&J:
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo dýnur
færist ekki í sundur
Tilboð 427.350 kr.
STILLANLEG RÚM – VERÐDÆMI
Með tveimur Serta Therapist heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 569.800
Tilboð 577.350 kr.
Með Tempur Contour eða Cloud heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 769.800
Verðlaunatónlist Jóhanns Jóhannssonar úr kvikmyndinni The
Theory of Everything frá 2014 verður gefin út á blárri vínylplötu
í næsta mánuði en fyrir tónlistina hlaut Jóhann Golden Globe-
verðlaunin 2015 og var einnig tilnefndur til Óskarsverðlaunanna
fyrir hana. Myndin sjálf var einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna
sem besta myndin og Eddie Redmayne var verðlaunaður fyrir
bestan leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Stephen Hawking.
Endurútgáfan verður einungis fáanleg í 1.500 eintökum og er
þetta í fyrsta sinn sem tónlistin er gefin út aftur eftir að hún kom
upphaflega út.
Jóhann Jóhannsson lést í febrúar síðastliðnum en fyrir stuttu
var greint frá því að þýska útgáfufyrirtækið Deutsche Grammo-
phon hefði gefið út tvöfalt albúm með tónlist Jóhanns sem nefn-
ist Englabörn & Variations. Að tónlistin skuli vera á blárri
vínylplötu ljær henni mikið söfnunargildi.
1.500 eintök á vínyl
Theory of Everything fjallar um ævi Stephens Hawk-
ings. Hér er Hawking með aðalleikurum myndarinnar.
AFP
Tónlist Jóhanns Jóhannssonar úr The
Theory of Everyting endurútgefin.
Jóhanns Jóhannssonar
hefur víða verið minnst
síðustu vikur, erlendis og
hér heima, fyrir framlag
sitt til tónlistarinnar.
„Ef veður ekki hamlar“ var eitt
af því fyrsta, sem menn ráku
augun í þegar dagskrá 11. Skíða-
móts Íslands, sem haldið var á
Akureyri dagana 27. til 29. mars
1948, var skoðuð. „Það er orð-
inn svo sjálfsagður liður í skíða-
mótum Íslands að veðrið geri
ókleift að halda þar áætlun að
mótsstjórnin hefur ekki sjeð sjer
annað fært en slá þennan var-
nagla. Það var þó alveg óþarfi í
þetta sinn. Veðrið var hið ákjós-
anlegasta, sólskin og blíða allan
tímann,“ sagði í frétt Morgun-
blaðsins.
Blaðamanni þótti mjög áber-
andi, hve framfarirnar höfðu
orðið miklar hjá kvenfólkinu.
„Hafa þær aldrei á landsmóti
fengið eins erfiðar brautir og
sýnt jafn mikla leikni.“ Ingibjörg
Árnadóttir, ÍBR, varð Íslands-
meistari, bæði í bruni og svigi.
Brunbraut karla var að þessu
sinni ,,sú skemmtilegasta, sem
lögð hefur verið á Íslandi“, eins
og einn keppandinn komst að
orði. Magnús Brynjólfsson frá
Akureyri bar þar af. Í brun-
keppninni slasaðist Jónas Ás-
geirsson frá Siglufirði það illa, að
flytja varð hann í sjúkrahús.
Marðist hann allmikið á baki.
GAMLA FRÉTTIN
Ef veður
ekki hamlar
Skíðakonurnar Helga Júníusdóttir (til vinstri) og Björg Finnbogadóttir frá
Akureyri óska Magnúsi Brynjólfssyni til hamingju með sigurinn í bruni.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Cyndi Lauper
dægurlagasöngkona
Páskaungi
krúsídúlla
Donald Trump
forseti Bandaríkjanna