Fréttablaðið - 11.06.2018, Síða 4

Fréttablaðið - 11.06.2018, Síða 4
ÍSLENSK - BANDARÍSKA EHF • UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR SÍMI: 534 4433 • WWW.RAMISLAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR FRÁ 16. JÚNÍ TIL OG MEÐ 5. ÁGÚST HÖRKUTÓL SEM ENDIST RAM PALLBÍLADAGAR 12. - 13. JÚNÍ GLÆSILEG RAM PALLBÍLASÝNING. TIL SÝNIS RAM 3500 PALLBÍLAR ÓBREYTTIR OG MEÐ 40” BREYTINGU. SÝNUM EINNIG 7 MANNA DODGE DURANGO GT LÚXUSJEPPA. OPIÐ TIL KL 21:00 BÁÐA DAGA. EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX. Ferðaþjónusta Ríkisstjórnin hefur samþykkt að setja 64 milljónir í hert eftirlit með heimagistingu, á borð við leiguvefinn Airbnb. „Aðalatriðið er að það er ekki til of mikils mælst að fólk spili eftir reglunum. Þótt við viljum auðvitað almennt hafa eftirlit í lágmarki þá þarf að gera átak í þessum efnum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráð- herra ferðamála. Í skýrslu Íslandsbanka um stöðu ferðaþjónustu frá því í apríl kemur fram að um 3,2 milljónir gistinátta hafi verið seldar í gegnum Airbnb í fyrra, af alls 11,6 milljónum gisti- nátta sem seldar voru á árinu. Til samanburðar seldu hótel lands- ins um 4,3 milljónir gistinátta árið 2017. Airbnb er þannig orðin næst- umfangsmesta gistiþjónusta lands- ins, með 30 prósenta hlutdeild, og um þrisvar sinnum stærri en sú þriðja umfangsmesta, gistiheimilin. Þá kemur fram að gistinóttum hafi fjölgað um 2,1 milljón á síðasta ári, en af þeirri fjölgun hafi Airbnb tekið til sín 76 prósenta hlutdeild. Þórdís segir að markmiðið með átakinu sé að fleiri skrái sig og standi skil á réttum gjöldum, en tekjur Airbnb-leigusala námu 19,4 milljörðum króna í fyrra og jukust um 109 prósent frá fyrra ári samkvæmt sömu skýrslu um stöðu ferðaþjónustunnar. „Gert er ráð fyrir að um leið og eftirlit með heimagistingu verður sýnilegra og virkara, muni það hafa hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína. Einnig verður auðveldara að halda utan um þá leigu sem með réttu ætti að fara til atvinnurekstrar.“ Sýslumaðurinn á höfuðborgar- svæðinu kemur til með að útfæra heimagistingarvaktina og hefur metið það sem svo að átta starfs- manna sé þörf til þess að herða eftirlitið. Lagt er upp með að hlut- verk starfsmanna verði að fram- kvæma vettvangsrannsóknir í kjölfar kvartana eða ábendinga frá almennum borgurum og á grund- velli upplýsinga úr frumkvæðis- eftirliti samkvæmt upplýsingum frá ferðamálaráðuneytinu. – ósk Ráðherra segir ekki til of mikils mælst að menn spili eftir reglunum 64 milljónir verða settar í hert eftirlit með heimagistingu. Heilbrigðismál Sérfræðilæknar hafa óskað upplýsinga frá Svandísi Svav- arsdóttur heilbrigðisráðherra um hvað hún hyggist gera í málefnum sérfræðilækna en samningur þeirra við Sjúkratryggingar Íslands rennur út um næstu áramót. Einstaklingar sem fara í aðgerð í sumar gætu þurft á endurkomu að halda eftir áramót. Verði engir samningar á borðinu gæti kostnaður sjúklinga hækkað gríðarlega. Þrír valkostir eru í boði þann 1. janúar næstkomandi. Sá fyrsti er að gera nýjan samning við sérfræði- lækna en ráðherra segir það alveg ljóst að það yrði ekki opinn ramma- samningur. „Sá samningur yrði mun skýrari um hvað ríkið kaupir af sér- fræðilæknum,“ segir Svandís. Annar möguleikinn er að núgildandi samn- ingur yrði framlengdur meðan unnið væri að breytingum. Þriðji og síðasti möguleikinn er sá að samningurinn rynni út og enginn samningur væri í gildi. Svandís telur mikilvægt að ákvarð- anir um skipulag heilbrigðisþjón- ustu séu ekki teknar til að takast á við tilfallandi uppákomur. Heildar- hugsun þurfi í málaflokknum. „Ég vil sjá heildstætt kerfi. Við erum með brotakennt kerfi sem sam- kvæmt úttektum, nú síðast frá Ríkis- endurskoðun, er ekki að öllu leyti hagkvæmt. Að hluta til eru að fara peningar út úr kerfinu í lækningar sem við þurfum ekki á að halda. Við þurfum að stíga stór skref í átt að heildstæðara kerfi og efla opinbera heilbrigðiskerfið,“ segir Svandís. „Þetta er heilmikið verkefni sem er fyrir höndum. Íslenskt heilbrigðis- kerfi þarf á því að halda að ákvarð- anir séu teknar með heildarstefnu í huga en ekki sem svar við tilfallandi uppákomum í kerfinu.“ Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, stofnunar sem heyrir beint undir ráðherra heil- brigðismála, hefur verið gagnrýninn á hugmyndir Svandísar og aðstoðar- manns hennar, Birgis Jakobssonar, fyrrverandi landlæknis. Birgir hefur látið hafa eftir sér að sérfræðingar sem vinni að hluta til á Landspítala og að hluta á einka klíník út í bæ séu ekki af heilum hug sem starfsmenn spítalans og hefur gagnrýnt „hið tvö- falda kerfi“ afar mikið. „Það er ekki einu sinni verið að stilla þessu upp vegna kostnaðar því á sama tíma er verið að auka kostn- aðarþátttöku hins opinbera í sjúkra- þjálfun til að mynda,“ segir Stein- grímur Ari. „Þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta bara spurning um forgangsröðun.“ Átta sérfræðilæknar hafa kært íslenska ríkið fyrir að heimila þeim ekki að taka þátt í rammasamningn- um við ríkið. Gísli Guðni Hall er lög- maður læknanna. Að hans mati snýst mál læknanna um hvort íslenska rík- inu sé ekki skylt að standa við gerða samninga. „Við erum að gera kröfu um að ákvörðun Sjúkratrygginga, að hleypa þessum læknum ekki inn á ramma- samninginn, verði felld úr gildi. sveinn@frettabladid.is Algjör óvissa uppi um framtíð samninga við sérfræðilækna Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands við sérfræðilækna rennur út um áramótin. Framtíð ramma- samningsins hefur ekki verið ákveðin. Ljóst er að heilbrigðisráðherra vill breyta kerfinu í stórum dráttum. Rammasamningur hins opinbera mun taka gagngerum breytingum á næstu misserum. FRéttablaðið/Vilhelm Steingrímur ari arason. slYs TF-GNÁ og TF-SÝN, þyrlur Land- helgisgæslunnar (LHG), voru kallaðar út með stuttu millibili á þriðja og fjórða tímanum í gær. Í tilkynningu frá LHG segir að sú fyrri hafi verið kölluð út vegna norsks sjómanns sem hafði veikst um borð. Skip hans var að veiðum suðvestur af landinu. Síðara útkallið varð vegna meiðsla í knattspyrnuleik hjá 3. flokki karla milli Víkings Ólafsvíkur og Víðis/ Reynis. Leikið var á Hellissandi vegna framkvæmda á Ólafsvíkurvelli. Leik- maður varð fyrir því óláni að lenda utan vallar og lenti höfuð hans á grjóti við það. Þetta var ekki eina óhappið sem varð í leiknum en tveir leikmenn vönkuðust er höfuð þeirra skullu saman í baráttu um boltann. – jóe Tvö útköll með stuttu millibili Dómsmál Íslenska ríkið var í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í liðinni viku sýknað af kröfu þriggja rækjuút- gerða um endurgreiðslu á sérstöku veiðigjaldi vegna fiskveiðiársins 2012-13. Útgerðirnar töldu að gjaldtakan hefði verið ólögmæt og falið í sér óeðlilega mismunun. Máli sínu til stuðnings bentu þær á að vegna veiðigjaldsins hefði framlegð verið neikvæð á tímabilinu meðal annars vegna gjaldsins. Þá var einnig byggt á því að um ólögmætt framsal skatt- lagningarvalds hefði verið að ræða. Dómurinn féllst ekki á sjónarmið útgerðanna. Um einföld og skýr viðmið gjaldtökunnar hefði verið að ræða þó það hafi leitt til þyngri skattbyrði á rækjuútgerð en veiðar annarra tegunda. Öðrum ástæðum var einnig hafnað. Útgerðirnar þurfa að greiða ríkinu óskipt 1,2 milljónir í málskostnað. – jóe Vildu fá endurgreiðslu á veiðigjaldi 1 1 . j ú n í 2 0 1 8 m á n u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :2 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 1 8 -1 E D C 2 0 1 8 -1 D A 0 2 0 1 8 -1 C 6 4 2 0 1 8 -1 B 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.