Fréttablaðið - 11.06.2018, Blaðsíða 18
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Sigurgeir Hreggviðsson sigurgeir@frettabladid.is, s. 512 5658
Dagbjartur Pálsson og Magnús Pálsson, framkvæmdastjórar dk hugbúnaðar, segja að í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins verði margar spennandi nýjungar kynntar á þessu ári. MYND/ERNIR
dk hugbúnaður er leiðandi í viðskiptahugbúnaði hér á landi fyrir allar stærðir og
gerðir fyrirtækja, þróuðum á Íslandi
fyrir íslenskar aðstæður. Fyrirtækið
var stofnað þann 1. desember 1998
og fagnar því tuttugu ára afmæli á
þessu ári,“ segir Dagbjartur Pálsson,
en hann er framkvæmdastjóri hjá
fyrirtækinu ásamt bróðir sínum,
Magnúsi Pálssyni.
Fyrirtæki ársins 2018
Nýlega var dk hugbúnaður valið
eitt af Fyrirtækjum ársins 2018 í
flokki stórra fyrirtækja af VR. Litið
var til níu lykilþátta við valið, m.a.
stjórnunar, starfsanda, launakjara,
vinnuaðstöðu og jafnréttis. „dk
hugbúnaður er eina fyrirtækið í
hópi stórra fyrirtækja sem fær fjóra
í einkunn í öllum þessum níu lykil-
þáttum,“ segir Dagbjartur, sem er
að vonum ánægður með þennan
glæsilega árangur.
„Það er ákaflega ánægjulegt og
mikil viðurkenning fyrir dk hug-
búnað og starfsfólk þess að bera
þessa nafnbót. Að fá svona jákvæða
endurgjöf frá starfsfólki gegnum
vinnumarkaðskönnun VR gerir
niðurstöðuna mjög marktæka og
gefur okkur gott tækifæri til að vinna
áfram með niðurstöðurnar,“ segir
Dagbjartur og bætir við að þessi
viðurkenning hafi mikið gildi fyrir
fyrirtækið út á við.
„Við gleðjumst líka yfir því að nú
á 20 ára afmælisárinu er dk hug-
búnaður meðal bestu fyrirtækja á
Íslandi að vinna fyrir. Á síðasta ári
fluttum við úr Orkuveituhúsinu
hingað á Smáratorgið og það er
engin spurning að starfsfólkið hefur
tekið því mjög vel.“
Nýjungar á afmælisári
Í tilefni af tuttugu ára afmælinu
kynnir dk hugbúnaður nokkrar
nýjar og spennandi lausnir, svo-
kallaðar Léttlausnir. „Um er að
ræða Snjalllausnir og Veflausnir
sem segja má að séu framlenging
á bókhaldskerfi fyrirtækja,“ segir
Dagbjartur en dk hugbúnaður
býður upp a margs konar smá-
forrit, eða öpp, og veflausnir sem
tengjast við dk bókhaldskerfið.
Smáforritin eru fáanleg í App Store
frá Apple og Google Play.
Léttlausn fyrir verkbókhald
og tímaskráningu – dk Verk
„Á meðal nýjunga er Verkbók-
halds-Léttlausnin sem er hag-
kvæmur og þægilegur kostur fyrir
íslensk þjónustufyrirtæki þar sem
starfsmenn þurfa að skrá sína tíma.
Með lausninni er hægt að skrá
tímana beint úr símanum, tölv-
unni eða spjaldtölvunni. Tímarnir
færast síðan beint inn í verkbók-
haldshluta dk bókhaldskerfisins
og með því eykst nákvæmni tíma-
skráninga starfsmanna til muna,“
segir Dagbjartur.
Léttlausn fyrir sölureikninga,
sölupantanir og sölutilboð –
dk Sala
„Léttlausn fyrir sölureikninga,
sölupantanir og sölutilboð er
einföld og örugg leið til að gera
sölureikninga, sölupantanir og
sölutilboð í síma eða spjaldtölvu.
Þetta er þægileg leið fyrir þá sem
eru mikið á ferðinni eða þurfa
einfalt viðmót við reikningagerð.
Lausnin er beintengd dk bók-
haldskerfinu,“ segir Dagbjartur en
þessi leið hentar t.d. lítilli smásölu,
heildsölu og verktökum.
Léttlausn fyrir verslun,
veitingahús og þjónustu –
dk iPOS Snjalltækjalausn
Dagbjartur segir að dk iPOS snjall-
tækjalausnin henti mjög vel fyrir
verslun, veitingahús og þjónustu.
„Einfaldleikinn er í fyrirrúmi og
kerfið hentar margvíslegri starf-
semi, svo sem veitingastöðum,
fataverslunum og ýmiss konar
þjónustu. Hægt er að fá kerfið
annars vegar sem pantanakerfi
fyrir veitingastaði eða sem fullgilt
afgreiðslukerfi tengt strikamerkja-
lesara, prentara og posa,“ segir
hann.
Léttlausn fyrir stjórnborð,
skýrslur og greiningar –
dk Stjórnborð
dk Stjórnborð er fyrir úrvinnslu
gagna og miðlun verðmætra upp-
lýsinga úr dk bókhaldskerfinu til
stjórnenda fyrirtækja. „Notandinn
getur auðveldlega breytt framsetn-
ingu gagna, vistað og veitt öðrum
aðgang að kerfinu,“ segir Dagbjartur.
Léttlausn fyrir meðhöndlun
kostnaðarreikninga, skjöl og
skönnun – dk Samþykktir
Veflausn fyrir meðhöndlun kostn-
aðarreikninga frá dk býður upp á ein-
falda leið til að yfirfara og samþykkja
kostnaðarreikninga. „Í veflausninni
er hægt á einfaldan máta að skanna
inn eða taka mynd af reikningi frá
lánardrottni, t.d. með farsíma, og
senda á fyrirfram skilgreint netfang.
Þannig stofnast nýr lánardrottn-
areikningur með skannaða skjalinu
sem viðhengi,“ segir Dagbjartur.
Nánari upplýsingar: dk hugbúnaður,
Smáratorgi 3, 210 Kópavogi. s. 510
5800. www.dk.is
2 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . j Ú N í 2 0 1 8 M Á N U DAG U RBóKHALDSREKStuR OG RÁÐGjöF
1
1
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
1
8
-2
8
B
C
2
0
1
8
-2
7
8
0
2
0
1
8
-2
6
4
4
2
0
1
8
-2
5
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K