Morgunblaðið - 03.04.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2018
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
Ljósmyndir/Borgarbókasafn Reykjavíkur
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Við erum ekki bara aðverðlauna þá sem vinnaað barnamenningu held-ur einnig börnin sjálf og
þeirra framlag,“ segir Hólmfríður
Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá
Borgarbókasafni Reykjavíkur og
stjórnarmaður í verkefninu, Sögur
– verðlaunahátíð barnanna.
Hólmfríður segir að hátíðin sé
til þess ætluð að verðlauna og
upphefja íslenska barnamenningu
og efla áhuga almennings á barna-
menningu en aðalmarkmiðið sé að
efla læsi og ýta undir áhuga á bók-
lestri, skapandi skrifum og sköp-
un.
„Tilurð verðlaunahátíðar
barna má rekja til fésbókarsíð-
unnar Heimsyfirráð barna-
bókmennta. Á þeirri síðu er hópur
fólks úr ólíkum áttum sem á það
sameiginlegt að vilja sameina
krafta sína og gera eitthvað stórt
og veigamikið fyrir barnabók-
menntirnar og barnamenninguna.
Upp úr samtali og samvinnu kom
hugmyndin að Sögur – verð-
launahátíð barnanna í anda Kids’
Choice Awards en með ólíku yfir-
bragði. Við vildum ýta undir
áhuga á læsi og benda á nauðsyn
þess að auka framboð á bókum
fyrir börn og unglinga,“ segir
Hólmfríður.
Hún segir að verkefnið Sögur
- verðlaunahátíð barnanna hafi
staðið yfir frá því í október og
hafa fjölbreyttar íslenskar fyr-
irmyndir og krakkar sagt frá sög-
um sem áhrif hafa haft á þau á
Á sama stalli og
Eddan og Gríman
Sögur – verðlaunahátíð barnanna fer fram með viðhöfn í Hörpu 22. apríl og er
ætlunin að hún verði að árvissum viðburði. Aðstandendur hátíðarinnar segja
hana setta á sama stall og Eddu- og Grímuverðlaunin. Á hátíðinni verða börn
verðlaunuð fyrir verk sín og einnig fullorðnir sem vinna að barnamenningu. Það
eru börn 6-12 ára sem sjá um val á verðlaunaverkum fullorðinna.
Handritasmiðja Kátir krakkar sitja námskeið í handritagerð í Grófinni.
Verðlaunahátíð Hólmfríður Ólafsdóttir er í verkefnastjórn hátíðarinnar.
Bandaríski rithöfund-
urinn Willona Sloan
kennir í ritsmiðjunni
Life as Metaphor í
Borgarbókasafninu
Kringlunni kl. 16 - 18
á morgun, miðviku-
daginn 4. apríl.
Kennslan fram á
ensku, en þátttak-
endum er frjálst að
skrifa á íslensku eða
öðrum tungumálum.
Þáttakendur nota
eigið líf sem inn-
blástur til skapandi
skrifa. Þeir þjálfa sig í
því að nýta sér eigin
reynslu til þess að
skrifa texta með dýpi
og tilfinningu, þar
sem sjálfið kemur í
ljós. Með lestri, skrif-
æfingum og um-
ræðum munu þeir
kanna hvernig hægt
er að búa til sterka rödd sögumanns
og nota smáatriði og tilfinningar til
þess að höfða til lesenda. Ritsmiðjan
er öllum opin og engar kröfur eru
gerðar um að hafa skrifað áður.
Sloan hefur sent frá sér skáldsög-
ur og ljóð og skrifað greinar í tímarit.
Hún nýtur þess að kenna ritlist í
óhefðbundnum rýmum, t.d. á börum
og listasöfnum. Willona hefur áður
kennt á Íslandi, en hún leiddi rit-
smiðjur í samstarfi við Reykjavík
Bókmenntaborg á Bókmenntahátíð í
Reykjavík árið 2015.
Ritsmiðjan er haldin í samstarfi við
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
og Skrifstofuna, ritsmíðaverkstæði
Borgarbókasafnsins.
Hámarksfjöldi er 20 og nauðsyn-
legt að skrá sig í smiðjuna.
Ritsmiðja með Willona Sloan í Borgarbókasafninu í Kringlunni
Kennarinn Willona Sloan nýtur þess að kenna í óhefð-
bundnum rýmum eins og á börum og bókasöfnum.
Dýptin, tilfinningarnar og
sjálfið sem speglast í textanum
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt
íslenskrar menningar sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum
1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda
muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkost-
urinn fer sístækkandi og samanstendur að mestu leyti af nytjam-
unum og/eða skrautmunum.
Meðal muna á safninueru bein úr fisk-hausum, lím ogmálning saman í
kassa, sem er hönnunarverk
Róshildar Jónsdóttur. Innihald
kassans er ætlað sem föndurdót,
sem reynir á hugmyndaflug og
sköpunargáfu eigandans.
Í Hönnunarsafninu er grip-
urinn skráður með eftirfarandi
hætti:
Skepnusköpun
Róshildur Jónsdóttir (1972)
Skepnusköpun 2013
Bein úr fiskhausum, lím, málning
Hugdetta ehf.
Keypt 2014
Hér áður fyrr þekktist að nota
fiskbein í litla skrautmuni en
Skepnusköpun byggir á hug-
myndaauðgi og sköpunarþrá þar
sem efni sem fellur til við fisk-
vinnslu er nýtt til hlítar. Í kass-
anum eru hreinsuð bein úr fisk-
hausum, lím og málning. Beinin
má líma saman á ýmsa vegu og
skapa þannig allt frá englum til
geimskipa, skrímsla eða álfa.
Verkefnið var lokaverkefni Rós-
hildar við Listaháskóla Íslands
en hún ákvað að ganga með það
lengra og leitaði leiða til að
koma því í framleiðslu að námi
loknu. Hönnuðurinn horfir á
sjálfbærni og endurnýtingu í
þessu verkefni en Skepnusköpun
er ekki síst áminning um að
hægt er að búa til dót úr ekta
hráefni og nýta það sem við
finnum í umhverfi okkar með
ímyndunaraflið að verki.
Beinakassinn fæst í safnbúð
Hönnunarsafnsins við Garða-
torg.
Íslensk hönnun | Hönnunarsafn Íslands
2013 Skepnusköpun
Róshildar Jónsdóttur