Morgunblaðið - 03.04.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2018
Leifur Eiríksson bifvélavirki átti 90 ára afmæli í gær. Hannfæddist í Reykjavík og er næstelstur fimm systkina. Foreldrarhans voru Eiríkur Þorsteinsson og Bára Ingibjörg Magdalena
Pálsdóttir.
Leifur lærði bifvélavirkjun og hefur starfað sem bifvélavirki alla
sína tíð og gerir enn, og vinnur fjóra til fimm tíma í senn. Hann byrj-
aði hjá Vélaverkstæðinu Kistufelli árið 1952 og hefur verið þar allar
götur síðan og þeir eru ófáir lærlingarnir sem hann hefur kennt í
gegnum tíðina.
Bíladellan hjá Leifi er viðvarandi og keypti hann sér nýjan Land
Cruiser í janúar, eftir að hafa prófað að keyra jeppa sonar síns upp
Kambana, en sá jeppi er af sömu tegund.
Eiginkona Leifs er Una Sigurðardóttir og eiga þau fjögur börn,
Báru, Ástu, Sigurð og Eirík. Fjölskyldan hefur alltaf verið honum
kær, sem og barnabörn og barnabarnabörn. Hann hefur stutt þau
með ráðum og dáð og kom þeim í hestumennskuna, en hún hefur átt
hug hans og gefið honum mikið.
Leifur og Una eiga sumarhús í landi Kálfhóls á Skeiðum og eru þar
mikið á sumrin. Þar sinnir hann viðhaldi sem og heima hjá sér, en
hann er nýbúinn að skipta um klæðningu í bílskúrnum.
Leifur hefur alltaf haft yndi af að ferðast bæði innanlands og er-
lendis. Hann þekkir landið vel og hefur farið víða. Hann stundaði
sundknattleik á yngri árum og keppti fyrir Íslands hönd.
Leifur hélt upp á afmælið með konu og börnum á páskadags-
morgun í sumarbústaðnum sínum og einnig var haldið boð fyrir hann
á vélaverkstæðinu Kistufelli í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bifvélavirkinn Leifur hefur unnið hjá Kistufelli í rúm 65 ár.
Mætir enn í vinnuna
Leifur Eiríksson varð níræður í gær
E
inar Sveinsson fæddist
3. apríl 1948 í Reykja-
vík og ólst þar upp í
foreldrahúsum að
Miklubraut 52. Frá 8
ára aldri var Einar í sveit næstu sex
sumrin í Litlu Sandvík í Flóa hjá Al-
dísi og Lýð Guðmundssyni sem hann
minnist með mikilli hlýju. Á ung-
lingsárunum var hann í bygging-
arvinnu og síðar frá 1967 fjögur sum-
ur á planinu í Hvalstöðinni. „Þetta
var erfið vinna en jafnframt þrosk-
andi og ekki síst skemmtilegur fé-
lagsskapur.“
Skólagangan hófst í Ísaksskóla,
síðan Austurbæjarskóla og svo
landspróf frá Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar. Einar lauk stúdentsprófi
frá MR 1968 og var við nám við DTH
og HÍ næstu árin og síðar við nám og
störf árið 1974 í London í vátrygg-
ingum, einkum endurtryggingum.
Einar hóf störf hjá Sjóvátrygging-
arfélagi Íslands hf. 1972. Frá árinu
1984 var hann framkvæmdastjóri fé-
lagsins, sem frá 1989 varð Sjóvá-
Almennar og gegndi hann for-
stjórastöðu til ársins 2004. Nánasti
samstarfsmaður og meðforstjóri hjá
Sjóvá-Almennum til 2002 var Ólafur
B. Thors. „Okkur Ólafi gekk af-
skaplega vel að vinna saman svo
aldrei féll skuggi á. Undir stjórn okk-
ar Ólafs varð félagið stærsta og öfl-
ugasta vátryggingarfélag landsins á
sínum tíma.“ Einar vann því við vá-
tryggingar í 32 ár og var forstjóri fé-
lagsins í 20 ár. Einar segir það að
vinna við vátryggingar afskaplega
skemmtilegt og gefandi starf. „Ég lít
á mig fyrst og síðast sem vátrygg-
ingamann þótt ég hafi komið víðar
við á starfsferlinum.“
Einar var formaður Verslunarráðs
Íslands, nú Viðskiptaráð, 1992-96.
Frá 1991-2007 sat hann í stjórn Ís-
landsbanka, síðar Glitnis, og var for-
maður 2004 til 2007. Auk þess hefur
Einar setið í stjórnum fjölmargra
fyrirtækja, einkum tengdra fjár-
málum, sjávarútvegi og flutningum. Í
dag er hann stjórnarformaður í Alfa
ehf. sem er meginhluthafi í Kynn-
isferðum og Tékklandi bifreiða-
skoðun.
Einar hefur gaman af lestri góðra
bóka. Bækur með sögulegum fróð-
Einar Sveinsson, fv. forstjóri Sjóvár-Almennra trygginga hf. - 70 ára
Fjölskyldan Einar og Birna ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnunum átta þann 24. mars síðastliðinn í
fermingu Helgu Margrétar Jónsdóttur sem stendur fyrir framan afa sinn.
Er fyrst og fremst
vátryggingamaður
Á góðri stund Einar og Birna.
Hólmavík Hilmar Gauti
fæddist 9. mars 2017 kl.
3.15. á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Selfossi.
Hann vó 3.180 g og var 50
cm langur við fæðingu.
Foreldrar hans heita Hjör-
dís Inga Hjörleifsdóttir og
Jón Þór Gunnarsson.
Nýr borgari
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.