Morgunblaðið - 03.04.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.04.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2018 Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert umhyggjusamur um aðra en þarft að vera vandlátari í vali á vinum þínum því sumir kunna ekki að leggja vináttu sína á móti. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert eitthvað annars hugar í vinnunni og verður að taka þig á áður en allt fer í hund og kött. Það hjálpar ótvírætt að sjá jafnan skoplegu hliðarnar á tilverunni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú leggur starfsheiður þinn að veði, þegar þú mælir fyrir ákveðnu máli. Siðferðileg álitaefni eru ekki bara í svörtu og hvítu í þessu tilviki og þú veist rétta svarið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Sýndu samstarfsmönnum þínum skilning þegar vinnuáætlanir þeirra falla ekki alveg saman við þínar. Láttu ekki tilfinning- arnar blinda þér sýn í ágreiningi þínum við aðra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft á öllu þínu að halda til þess að ljúka við það stóra verkefni sem þú hefur tekið að þér. Biddu einhvern að kenna þér það sem þú vilt læra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að gæta þess að grípa ekki til of ódýrra bragða til að koma málstað þínum á framfæri. Vertu rólegur þegar þú tekst á við aðra sem eiga hlut að máli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú tekur öllum hlutum mjög persónulega í dag og því gæti komið til óvenju harkalegra deilna á milli þín og þinna nánustu. Reyndu að halda aftur af þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gættu þess í öllum samskiptum við aðra, að frelsi þitt takmarkast við frelsi þeirra. Sýndu ákveðni en gættu samt fyllstu varkárni á öllum sviðum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð tækifæri til þess að lag- færa hnökra í erfiðum vináttusamböndum í dag. Þú þarft að hafa það á hreinu hvað til þíns friðar heyrir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú verður þú að hrökkva eða stökkva því ekkert annað getur þokað málum þínum áfram. Ef þú segir já við of mörgum nýj- um kvöðum á það bara eftir að íþyngja þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það bætir og kætir að grípa til ný- stárlegra vinnuaðferða, þótt einhvern tíma taki að komast upp á lagið með þær. Gleymdu samt ekki hvaða áhrif þínar gjörðir hafa á aðra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Dropinn holar bergið svo þú skalt ekki gefast upp á að berjast fyrir málstað þínum. Vissulega er vinnan mikils virði, en meiru skiptir þó góð heilsa og heilbrigt hugarfar. Helgi R. Einarsson lét þrjárlimrur fylgja lausninni á gát- unni á laugardag. Fyrst er N 1: N úr stónni rís 1 efnilegur sveinn. Nú hann skal hengja við hneyksli tengja. Ekki neitt má neinn! Síðan er „endaslepp limra“: „Þórhildur, það get ég svarið þjófarnir tóku af skarið.“ Henni um varð og ó, eldurinn dó og því lítið í limruna varið. Og svo „Þver“: Ragnhildur reglurnar brýtur og reiðist ef um þær hnýtur. Því er nú ver, er væflast um hér til vinstri og hægri ei lítur. Anton Helgi Jónsson yrkir á Boðnarmiði: Það blæs nú af ruddaskap rokið svo reyndar er mér öllum lokið; hér skelf ég sem strá og skiljanlegt þá að skuli í mig geta fokið. Símon Dalaskáld orti um Grím Thomsen: Grímur klingir gæðaþurr góma bjöllu sinni, er á þingi ónýtur, Álftnesinga meinvættur. En gerði síðan bragarbót: Grímur klingir góðsamur góma bjöllu sinni, er á þingi ágætur Íslendinga bjargvættur. Ármanni Þorgrímssyni nægir ekki að líta til sveitarstjórna held- ur vill líka skoða aldur þing- manna: Eigin götur ganga í hring gömlum dögum hrósa eftir sextugt inn á þing engan skyldi kjósa. Hjálmar Freysteinsson orti að loknum landsfundi Sjálfstæðis- manna: Af rússneskri kosningu valdsvið þitt vex; vita það heimsbyggðin skal öll. Af hundraði Pútín fékk sjötíu og sex, sem þætti lélegt í Valhöll. Guðmundur Arnfinnsson leikur listir sínar á Boðnarmiði: Reyksala-Gísli í kollinum klár kveikir í rettunni glaður laus við allt nöldur og leiðindafár og lamandi þraskvenna blaður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þrjár limrur og einni betur Í klípu „ÉG HÉLT AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI HÆGT AÐ VERA OF GRANNUR – EN ÞÁ SÁ ÉG HAGNAÐARHLUTFALLIÐ ÞITT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG TÓK UPP ANDARDRÁTT KATTARINS.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara út í búðir bara til þess að vera með henni. EKKI SNERTA ÞESSA SKÍFU! ÓKEI, ÉG LOFA OG HVAÐ ER SKÍFA? HVAÐA FÓLK ERUM VIÐ AÐ RÁÐAST Á? ÞAÐ ER MJÖG LÍKT OKKUR! GOTT! ÞÁ VITUM VIÐ AÐ MINNSTA KOSTI AÐ ÞAÐ ER EKKI GOTT FÓLK! LÁNADEILD Víkverji er í tómum vandræðummeð sambýlinga sína, eiginkonu og dóttur, í þeim skilningi að þær þekkja ómögulega muninn á fata- hengi og matarborði. Hversu oft hefur Víkverji ekki komið glorsolt- inn að borðinu og þurft að byrja á því að ryðja yfirhöfnum af öllum stærðum og gerðum í burtu? Vík- verji hefur reglulega orð á þessu en allt kemur fyrir ekki. „Æ, ég veit það,“ ljúka mæðgurnar sundur ein- um munni en svo gerist ekki neitt. Næst þegar sultur sverfur að Vík- verja svignar matarborðið undan yf- irhöfnum. Líklega er fullreynt með þetta og Víkverji verður bara að láta það yfir sig ganga. Til allrar ham- ingju búa mæðgurnar að allmörgum kostum sem vega upp á móti þess- um galla. x x x Víkverji tengir Óttar Proppé, fyrr-verandi heilbrigðisráðherra, einkum og sér í lagi við miðborg Reykjavíkur og kættist því óskap- lega þegar hann kom auga á kapp- ann undir stýri á hringtorgi í Mos- fellsbæ á dögunum. Ráðherrann fyrrverandi var óvenju einbeittur að sjá; sat á stólbrúninni í bílnum, ein augu. Af því tilefni hafði ferðafélagi Víkverja á orði að þetta þyrfti ekki að koma á óvart; Óttarr hefði líklega aldrei komið svona langt út á land. x x x Það er örugglega tómt kjaftæði enÓttarr er bara svo miðborgar- legur að Víkverji getur ekki á sér setið að láta þessa sögu flakka. x x x Víkverji gladdist fyrir hönd Ótt-ars, að hann skyldi sjálfur aka bílnum, enda kom fram í viðtali skömmu eftir að hann lét af ráð- herraembætti að Óttari hefði þótt óþægilegt að vera með einkabíl- stjóra. Það sést raunar langar leiðir á Óttari að hann er ekki maður sem vill láta hafa fyrir sér. x x x Eigi að síður má velta fyrir sér, íljósi svipsins á Óttari þarna á hringtorginu, hvort einkabílstjórinn hefði ekki komið að gagni í þessari svaðilför út á land. vikverji@mbl.is Víkverji Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna. (Sálm.: 36.8)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.