Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 11

Morgunblaðið - 04.04.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018 VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 NÝTT Í POWERCELL LÍNUNNI: AUGNKREM sem vinnur eins og PRIMER yfir daginn en er uppbyggjandi yfir nóttina, auk þess að draga úr baugum og þrota. Létt NÆTURKREM og húðin er endurhlaðin, þéttari og ljómandi að morgni. ANTI-POULLUTION EXFOLIATING BALM maski sem djúphreinsar á 5 mín. og húðin verður jafnari og heilbrigðari. AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HR KREMUM20% HELENA RUBINSTEIN KYNNING MIÐVIKUDAGTIL FÖSTUDAGS GLÆSILEGUR KAUPAUKI EF ÞÚ KAUPIR TVÆR EÐA FLEIRI HR VÖRUR. THE VEGETAL WEAPON FOR A HEALTHY SKIN #keepfighting NÝTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að taka nýtt veitinga- hús í notkun við Geysi í Haukadal í júní. Það verður á endurbyggðu Hótel Geysi sem verður opnað í vetur. Framkvæmdir utanhúss eru langt komnar. Húsin eru viðar- klædd og vekja athygli á svæðinu. Sigríður Alma Mábilardóttir, móttökustjóri á hótelinu Litla Geysi, segir stefnt að því að opna veitingastað á nýja hótelinu um miðjan júní. Hluti af veitinga- rýminu muni snúa að hverasvæð- inu. Síðan sé áformað að taka hótelið í notkun í vetur og svo ráð- stefnusali næsta vor og hveraspa þar á eftir. Verkið sé unnið í áföngum af heimamönnum. Sigríður Alma segir að á nýja hótelinu verði 77 stærri herbergi. Þau verði frá 30 fermetra her- bergjum upp í 80 fermetra svítur. Hún segir að líkt og á veitinga- staðnum Glímu, suður af fyrirhug- uðu hóteli, verði haldið upp á sögu staðarins í nýbyggingum. Skír- skotað verði til fyrsta íþróttaskóla landsins sem stofnaður var af Sig- urði Greipssyni glímukappa. Byggt utan um íþróttasalinn „Í nýja veitingasalnum miðjum verður íþróttasalurinn frá fyrsta íþróttaskóla Íslands. Það er í raun verið að byggja utan um hann aft- ur. Í veitingasalnum Glímu sýnum við sögu glímunnar á skjám allan daginn. Þar er líka falleg glímu- stytta í miðjum salnum. Við höld- um í söguna. Áður en endurbygg- ing á Hótel Geysi hófst voru hér uppi á vegg nöfn og myndir af nemendum sem hafa gengið hér í skóla. Það var gaman að vera hér í fyrrasumar og hitta karlana sem komu hér inn og sáu nöfnin sín. Þeir sögðu allir sömu söguna. Hér hefðu þeir komist til manns. Mér fannst þetta svolítið merkilegt. Þeir voru ánægðir og stoltir að sjá nöfnin sín uppi á vegg og söguna af Sigurði Greipssyni og Sigrúnu Bjarnadóttur og fjórum sonum þeirra hjóna. Það er lítil fjölskylda sem rekur þetta með góðu fólki,“ segir Sigríður Alma en þriðja kyn- slóðin, Mábil og Sigurður Másbörn, rekur nú hótelið og veitingastað- inn. „Framkvæmdastjóri Glímu heitir Kristján Traustason. Hann fæddist á Einiholti í Biskups- tungum. Hann flutti úr sveitinni til að mennta sig en sneri aftur með konu sinni og þremur dætrum til að reka veitingastaðinn,“ segir Sig- ríður Alma. Gisting í öllum flokkum Sigríður Alma segir að þegar framkvæmdum lýkur verði boðið upp á gistingu í öllum flokkum. Þannig geti gestir valið um tjald- stæði, 14 smáhýsi, 22 hótelherbergi á Litla Geysi og 77 herbergi á nýja Hótel Geysi. Samanlagt munu gististaðirnir hýsa á annað hundrað manns, auk tjaldstæð- anna. „Það er ekki verið að stækka veitingastaðina til að geta tekið á móti fleiri viðskiptavinum. Það er verið að breyta og stækka til að koma til móts við viðskiptavini. Hvort sem það eru hvatahópar, einstaklingar eða ferðamenn á skemmtiferðaskipum heyrir maður að fólk vill meiri gæði og upplifun. Það vill skemmtilega og góða þjón- ustu og mikil gæði í matnum.“ Nýtt Hótel Geysir senn tilbúið  Nýr veitingastaður opnaður um miðjan júní  Hluti snýr að hverasvæðinu  Vísað í íþróttasalinn  Hótel með 77 herbergjum verður opnað í vetur  Ráðstefnusalir og spa bætast svo við þjónustuna Morgunblaðið/Baldur Dökkir litir Mikið útsýni verður frá mörgum herbergjanna á hótelinu. Lokafrágangur Hér er horft í átt til hverasvæðisins við Hótel Geysi.Horft frá hverasvæðinu Nýi veitingastaðurinn verður opnaður í júní. Gamli og nýi tíminn Nýtt Hótel Geysir er í forgrunni en í bakgrunni eru núverandi verslunar- og veitingahús. Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir með sjúkrabíl á Landspít- alann um klukkan hálffjögur í gær eftir að hafa fallið af baki í reiðtúr hjá hestaleigu í nágrenni Hafnar- fjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgar- svæðinu er ekki talið að fólkið sé al- varlega slasað, en farið var með það á sjúkrahús til skoðunar. Sjónarvottur sem mbl.is ræddi við segir þetta vera fjórða slysið sem hann hefur orðið vitni að á þessum slóðum frá því á miðviku- dag í síðustu viku, þar sem fleiri en einn detta af baki við það að ókyrrð kemst á hestahóp sem er þarna á ferð með ferðamenn. Fjögur reiðslys á innan við viku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.