Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018 Ingimundur var fríður sýn- um, bjartur yfirlitum og svo kvikur í hreyfingum að hann gekk aldrei, heldur hljóp jafnan við fót. Öllum kom það því jafn- mikið í opna skjöldu þegar hann var bókstaflega hrifinn frá okk- ur. Við stóðum hjálparvana í kringum hann, en með djúpri að- dáun. Við aðstæður sem buðu ekki upp á afrek, heldur upp- gjöf, tókst honum að skapa feg- urð og einstaka nánd á kveðju- stund, sem hafði djúpstæð og varanleg áhrif á ástvini hans. Kveðjurnar streyma til fjöl- skyldunnar hvaðanæva úr heim- inum, eftirminnilegum manni er þakkað, manni sem skildi eftir sig minnisstæð spor í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Vináttan fölskvalaus, ávallt örvandi og gefandi í senn. Svo margs er að minnast og sakna og við þökkum fyrir þá gjöf að hafa notið samferðar við Ingimund meginhluta ævi okkar, hafa upp- lifað hann síungan í leit að nýj- um frjóum lausnum, og ekki bara á hinum augljósu sviðum sem flestir tengja við hann, í við- skiptum og síðar í störfum sendiherrans. Heldur líka í öfl- ugu safnaðarstarfi fyrir Dóm- kirkjuna. Í áralöngu farsælu og árangursríku starfi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn á viðkvæmu sviði sem aldrei varð tilefni til gagn- rýni. Í leit að tækifærum fyrir Spánverja á Íslandi sem aðal- ræðismaður og sem áhugamað- ur um framgang leiklistar og margvíslegrar menningar- og menntunarstarfsemi alla tíð. Þá eru ótalin stórkostleg landgræðslustörf þeirra hjóna að Þingeyrum og Sigríðarstöð- um í Húnavatnssýslu og nú síð- ustu árin atorkumikil forysta og barátta fyrir rannsóknum og endurreisn fornrar virðingar Þingeyra sem eins af höfuð- klaustrum Íslands á sinni tíð. „Kólnar heitt ef köldu er á blásið“. Flestir menn sem berj- ast fyrir nýjungum reka sig á veggi, nýjungar kæfðar með því að tala þær niður eða sýna þeim áhugaleysi. Ekkert slíkt beit á Ingimund. Honum tókst með mýktinni að fá fólk á sitt band, stækkaði viðmælendur sína, kom eins fram við alla og áður en nokkurn varði, hafði hann náð markmiðinu og hækkað metnað- arstigið. Erfiðum málstað snúið í sigur – það var ekki aðferðin sem réði, heldur var það eðli mannsins sem kallaði fram hinn góða árangur. Samtalslistin var listgrein Ingimundar og fleytti honum langt og stuðlaði svo sannarlega að því að efla orðspor bæði hans sjálfs og þeirra verkefna sem hann vann að á hverjum tíma. Ingimundur sótti næringu í samtalið, fræddist, funi kveikt- ist af funa, ný sjónarmið komu fram sem leiddu til lausna. Alla ævi var hann yngra fólki verðug fyrirmynd, tók því sem jafningjum, gaf ráð og hlustaði á sjónarmið af fágætri ljúf- mennsku. Ingimundur var gæfumaður, hann fann tilgang með lífi sínu, fann að hann var hluti af heild, naut náinna tengsla við þá sem honum þótti vænt um, lifði í góðri sátt og kunni þá list að gleðja aðra og ekki síður að sam- gleðjast öðrum. En hvers vegna fetaði Ingi- mundur ekki bara venjulega leið, framfærði sína fjölskyldu við venjubundin störf í ábata- sömum viðskiptum? Hvers vegna leitaði hann alltaf út fyrir þægindahringinn og túlkaði hlutverk sitt langt umfram skyldu? Enginn sem þekkti Ingimund efaðist um það eitt andartak að hann taldi það hafa varðað mestu í lífi sínu og þroska að hafa kvænst Valgý, Valgerði Valsdóttur, fyrir 59 árum. Hún umbreytti venjulegu hversdags- lífi í ævintýri. Það er ótrúlegt hverju tveir einstaklingar geta áorkað saman, mikið afl sem við þekkjum og fleytir áfram lífi og list. Kærleikurinn sem þau um- vöfðu hvort annað var óþrjót- andi. Þar birtist meginstefið í persónu þeirra beggja. Þau voru einstök alls staðar þar sem þau lögðu saman hönd á plóg, hvort sem það var í rekstri veiðihúsa, forystu stórfyrirtæk- is eða sem fulltrúar Íslands hjá erlendum stórþjóðum. Um- hyggja þeirra og áhrif á um- hverfið voru svo langt umfram skyldu og væntingar. Þau komu stöðugt á óvart, sköpuðu ný við- mið, klifu hærri tinda, fengu meira út úr aðstæðum en aðrir í sömu sporum, áratugum á und- an sinni samtíð. Við kveikjum á kertum í minningu Ingimundar og horf- um á ótal myndir í albúmi, en bestu myndirnar voru aldrei teknar, þær lifa í hugskotinu og efla okkur til dáða. Við sendum Valgý, sonunum Val og Sigfúsi, Birgittu, eigin- konu hans og sonum þeirra tveim einlægar samúðarkveðj- ur. Guð blessi minningu Ingi- mundar Sigfússonar. Kjartan Gunnarsson og Sigríður Ásdís Snævarr. Fyrir rúmlega hálfri öld, fyrir sextíu og sex árum, lágu vegir okkar Ingimundar saman í Verslunarskólanum. Unglingar úr Vesturbænum. Indi á Melun- um, ég í Skjólunum. Foreldrar okkar voru vinafólk. Mömmur okkar skólasystur og pabbar okkar heildsalar. Sigfús í bíla- sölu og pabbi í ávöxtunum. Ingi- mundur vakti snemma athygli, brunandi á mótorhjóli í Versló á Grundarstígnum og seinna á Volkswagen og þau voru orðin kærustupar, hann og stúlkan af Hagamelnum, hún Valgí, sem hafði verið skólasystir mín frá því í Melaskólanum. Með öðrum orðum: Vinátta okkar var fram- lenging á vináttu foreldra okkar. Og var fram á síðasta dag. Við Ingimundur töluðum saman í símanum viku áður en hann dó, og það samtal var þrungið upp- rifjun og þakklæti fyrir liðnar stundir, vináttuna og samferð- ina. Ingimundur var séntilmaður í orði og hegðun. Kurteis og prúð- ur, heiðarlegur og sannur í fram- göngu og viðræðum. Alla tíð. Líka þegar ég var farinn úr flokknum hans. Einlægni og velvild, séntil- mennska, hlátur og einlægni voru viðbrögð Inda í hvívetna. Og það var alltaf hægt að treysta honum. Í blíðu sem stríðu. Við stunduðum lögfræðinám saman í Háskólanum og útskrif- uðumst cand. jur um sama leyti. Svo kom að pólitíkinni, þegar ég „gaf“ sæti mitt á alþingi og fyrstur manna bauð Indi mér vinnu. Með Herði Einarssyni (sem réð ferðinni hjá Vísi með Ingimundi) bauð hann mér að taka við ritstjórastarfinu hjá því blaði. Í janúar 1979. Og gaf mér strax ráð og stuðning og sjálfs- traust. Ég á honum margt að þakka og vinátta okkar hélt út öll hliðarsporin og það var stór ákvörðun sem Ingimundur tók, þegar honum bauðst sendi- herrastörf, sem hann sinnti með framúrskarandi frammistöðu og framkomu. Og alltaf stóð Valgí við hlið hans og það geislaði af þeim hjónum. Á síðustu árum hafa þau hjón- in haldið til með annan fótinn í Þingeyjarsýslu, norður í landi, og þar hafa þau unnið og unað. Stundum tókst Inda að mæta á fundum hjá skólasystkinum okkar, í seinni tíð, og þar hafa æskuárin verið rifjuð upp. Ingi- mundur breyttist aldrei, ekki í útliti, ekki í framkomu, ekki í frásögum og fyrirheitum og ætíð í krafti sinnar meðfæddu eðal- mennsku. Ég kveð hann með virðingu og velþóknun fyrir vin- áttu og vegferð gamalla félaga. Frá æsku til elli. Blessuð sé minning hans. Ellert B. Schram. Það var í janúar sem ég átti símtal við Inda vin minn og spurði hann hvort ég ætti að senda honum nýju bókina mína til Reykjavíkur eða Þingeyra. „Bernd, sendu hana norður, þar erum við flestum stundum.“ Allt leit út fyrir að vera í sóm- anum. Óvænt tilkynningin um veikindi hans og andlát er okkur Christinu, eiginkonu minni, þungbær og mikill harmur. Um miðjan tíunda áratug síð- ustu aldar var sendiráð Íslands í Þýskalandi enn starfrækt í Bonn, en þegar Indi sinnti störf- um sínum í Berlín, snæddi hann oft með konu sinni á veitinga- staðnum Paris Bar, en þangað vöndu listamenn jafnan komur sínar. Hann skrifaði mér kveðju sína á nafnspjald og stuttu síðar sat ég andspænis hjónunum glæsilegu, Ingimundi Sigfússyni og Valgerði Valsdóttur. Hann bar höfuðið hátt yfir gervilegum líkamanum og snöggklippt hvítt hárið stóð lóðrétt upp og gaf honum einbeitt og þróttmikið yf- irbragð. Af honum stafaði hlýja og hluttekning og mildi skein úr augum hans. Hann og Valgerður voru afar samlynd og varð þessi fundur upphafið að náinni vin- áttu. Indi minnti mig á að ekki er til fegurð án sannleika. Og ekkert líf án vonar. Þegar ég leiði hugann að ferð- um mínum yfir Víðidalsá og Vatnsdalsá á komandi sumri birtist ásjóna Inda yfir sjón- deildarhringnum og við hlið sorgar minnar finn ég fyrir tak- markalausu göfuglyndi hans. Valgerði og fjölskyldu Inda votta ég mína dýpstu samúð. Bernd Koberling. Mikill og óvæntur mannskaði er orðinn við fráfall Ingimundar Sigfússonar. Þó að kominn væri nokkuð við aldur, þá var heilsan góð að því séð varð, en þá bloss- uðu veikindin upp. Hann átti mörgu eftir ólokið er hann féll frá og ber þar hæst Þingeyra- verkefnið um rannsóknir á klaustrinu forna og hugsanlega endurreisn. Vonandi halda aðrir því verkefni áfram. Hann vann mörg þjóðhagsleg störf um æv- ina, sem ég ætla ekki að telja upp hér, heldur minnast hans sem góðmennis og náttúruunn- anda. Fuglalíf var honum einkar hugstætt. Man ég að eitt vorið er við vorum að keyra götuna upp að Sigríðarstöðum og fórum út til að skoða gróður, þá flýgur spói framhjá með háu velli. Ingi- mundur varð alveg uppnuminn, snarast inn í bílinn, grípur sím- ann og hringir í Val son sinn, sem var í Sviss og segir fyrst orða: Veistu hvað, ég heyrði í spóa. Ekki veit ég hvort hann man eftir því, en mér fannst það sérstakt. Í annað skipti um svip- að leyti árs, þá hljóp þar á undan okkur rjúpa með marga litla unga. Allt í einu þá hljóp hún upp kantinn til hliðar og ungarn- ir á eftir, en sá síðasti og minnsti hafði það ekki. Þá rýkur minn maður út, tekur ungann með varfærni og hjálpar honum upp, segir svo er hann kom til baka. Ó, hvað þetta er fallegur fugl. Oft spurði hann er ég hafði sam- band við hann á vorin: Sástu hvort að álftin er komin á tjörn- ina? Svona umhyggju sýnir bara góður maður. Hann var ræktunarmaður mikill, sáði grasfræi í sandinn ofan á ásnum og gerði þar stórt tún. Utan með sáði hann lúpínu í tugi hektara, sem og á Þingeyr- um, þar sem þau hjón áttu heim- ili sitt mörg hin síðustu ár. Þau hjón gróðursettu fjölda trjáa þar og á Sigríðarstöðum, en þau voru mjög samhent í öllu rækt- unarstarfinu, m.a. fjölmargar aspir, birki og lerki. Ekki gekk vel með lauftrén, því að sauðfé, sem alltaf slapp inn, þótti þau girnileg og átu þau jafnharðan og tókst ekki að hindra það fyrr en eftir miklar vangaveltur, þeg- ar óvænt leið kindanna fannst niður Björgin. Þá lét hann sá melgrasfræi í sandana sem hærra lágu, til varnar sandfoki, en allt þetta starf hindraði sandfokið sem var orðið mikið. Blasa handarverk hans við okkur daglega úr gluggum héð- an, handan vatnsins. Dökkblá lúpínuflæmi á sumrum gefa sér- stöku landslagi undra- og töfra- svip. Margir melgrasgígar sem hann sáði til á kambinum út við hafið, eru tilsýndar sem nátt- úrulegir pýramídaminnisvarðar um hann. Frá mörgu er að segja sem ekki er tækifæri til hér. Ofar- lega er okkur þó í huga ómet- anleg hjálp hans, þegar útlend- ingaeftirlitið meinaði útlendri unnustu sonar okkar um land- vistarleyfi, er hún kom til að búa hér. Vorum við alveg ráðalaus og leituðum til Ingimundar um hjálp, sem hann veitti fúslega og kom í gegn með hjálp góðra manna. Við söknum Ingimundar sár- lega og vottum konu hans, son- um og fjölskyldum þeirra sem og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Hlíf og Agnar í Hrísakoti. Hjartahlýr og skemmtilegur séntilmaður eru orðin sem koma fyrst upp í hugann þegar við minnumst góðs vinar okkar, Ingimundar Sigfússonar. Hann lést eftir skamma baráttu við krabbamein. Baráttu sem hann háði í faðmi fjölskyldu og ást- vina. Baráttu sem hann taldi einfaldlega vera hluta af því góða lífi sem hann hafði átt. Hann var sáttur við það líf sem Guð og gæfan hafði úthlutað honum og tókst á við krabba- meinið af fádæma æðruleysi. Margar bjartar og skemmtileg- ar minningar koma upp í hugann við leiðarlok. Ingimundur með lokuð augun að keyra jeppa í stórum sandhólum á Sigríðar- stöðum og Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, í farþega- sætinu sem átti að segja til um beygjur til hægri, vinstri eða beint. Ingimundur skemmti sér konunglega og við í aftursætinu líka, sennilega Sigfús og Baldur með mér þar, en Kjartan var að mig minnir ekki alveg eins spenntur. Önnur minning, Ingi- mundur takandi á móti mér á Tjarnargötunni í gamla daga, á menntaskólaárunum að heim- sækja Sigfús vin minn, hann í náttfötum og náttslopp. Kyssti mann og knúsaði. Og þrátt fyrir að vera unglingur á þeim tíma þá þótti manni þetta eðlilegt og gott að fá svona kossa og knúsa. Ingimundur kom til dyranna eins og hann var klæddur og var óhræddur við að sýna væntum- þykju. Knúsa fólk. Ingimundur var sendiherra í Þýskalandi og Japan í 10 ár og dvöldu þau Valgý erlendis vegna þessa. Samskiptin urðu minni á þeim tíma en síðustu ár fluttu þau lögheimili sitt norður á Þingeyrar og þar var þeirra heimili. Síðustu tvö þrjú ár kom ég alloft við hjá þeim á Þingeyr- um á leið minni norður á Hall- gilsstaði. Spjall, vatnsglas og færði þeim gæsabringur og tengdar afurðir. Mér þykir mjög vænt um þessar stundir nú þeg- ar Ingimundur er farinn og minnist ég þeirra með miklu þakklæti. Þá er eftirminnileg heimsókn okkar hjóna til þeirra á Þingeyrum síðasta sumar með þýskum vinahjónum. Þar var fyrrverandi sendiherrann í ess- inu sínu. Gestrisinn með af- brigðum og talaði auðvitað reip- rennandi þýsku. Þótti Þjóðverjunum mikið til þessarar heimsóknar koma. Við vottum Valgý, Sigfúsi, Val, barnabörnum og öðrum að- standendum okkar dýpstu sam- SJÁ SÍÐU 20 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN HILDUR S. THORSTENSEN Lilla áður til heimils í Gullsmára 10 og Granaskjóli 9, lést miðvikudaginn 28. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Örn Thorstensen Guðbjörg Grétarsdóttir Ágúst Thorstensen Helga Linda Gunnarsdóttir Rikard Thorstensen Sigríður Steinunn Sigurðard. Ölver Thorstensen Kristín Eggertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR VALUR ÓLAFSSON, Stapavöllum 10, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu sunnudaginn 11. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ragnheiður I. Halldórsdóttir Halldór Reinhardtsson Þóranna Andrésdóttir Anna Bjarnadóttir Ted Wahoske Eiríkur Bjarnason Andrés, Ragnheiður, Jake, Jessica Júlíanna, James, Kolfinna og barnabarnabörn KRISTÍN ÞÓRVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR lést á sjúkrahúsinu á Húsavík 19. mars. Jarðarförin fór fram í kyrrþey miðvikudaginn 28. mars. Aðstandendur Okkar ástkæra, JÓRUNN GUÐRÚN ODDSDÓTTIR, Melhólum 8, Selfossi, lést mánudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. apríl klukkan 13. F.h. aðstandenda, Haukur Árnason Kolbrún Hannesdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ÓLAFUR BJÖRNSSON frá Læk, Skagaströnd, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 2. apríl. Björn Helgason Ásta Harðardóttir Sigrún Helgadóttir Alfred G. Matthíasson Anna Helgadóttir Gunnar Kristófersson Jóhann Helgason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín og amma, RÓSA SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, sjúkraliði, Skipholti 15, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 31. mars. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Þrúða Sif Einarsdóttir Bjartur Logi Indíönu-Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.