Morgunblaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2018
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þrír fræðimenn við Félagsvísinda-
svið Háskóla Íslands og norrænir
samstarfsfélagar þeirra hafa fengið
rúmlega 120
milljóna króna
styrk frá Nord-
forsk til að rann-
saka áhrif hryðju-
verkaógnar á
borgara og einnig
áhrif lagasetning-
ar gegn hryðju-
verkum á viðhorf
fólks til lýðræðis
og trausts á
stjórnvöldum. Af
heildarstyrknum til verkefnisins
koma 32,5 milljónir króna í hlut Há-
skóla Íslands.
Íslensku fræðimennirnir eru þau
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, for-
stöðumaður Félagsvísindastofnunar,
Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórn-
málafræði, og Gunnar Helgi Krist-
insson, prófessor í stjórnmálafræði.
Verkefnið lýtur forystu Dag Arne
Christensen frá UNI Research AS í
Noregi en auk þeirra koma fræði-
menn frá Háskólanum í Bergen og
Gautaborgarháskóla að verkefninu.
Nordforsk er norræn stofnun sem
starfar á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar og hefur umsjón með
og styrkir rannsóknasamtarf á
Norðurlöndum.
Guðbjörg Andrea sagði í samtali
við Morgunblaðið, að styrkurinn sem
HÍ hefði hlotið væri til þriggja ára,
þannig að hún ætti von á því að rann-
sókninni lyki 2021.
„Við teljum að það sé mikil þörf á
svona rannsókn. Verkefnið er m.a. til
komið vegna þeirra hryðjuverka sem
átt hafa sér stað á Norðurlöndunum.
Frumkvæðið að verkefninu kemur
frá Noregi og það er Norðmaður sem
stýrir verkefninu,“ sagði Guðbjörg
Andrea.
„Það sem við ætlum að skoða sér-
staklega, er hvort óttinn við hryðju-
verk, hafi þær afleiðingar, að fólk sé
tilbúið til þess að fórna borgaraleg-
um réttindum að einhverju leyti. Er
fólk tilbúið til þess að leyfa í auknum
mæli símahleranir, aukið eftirlit og
handtökur er meðal þess sem mun-
um rannsaka,“ sagði Guðbjörg Andr-
ea ennfremur.
Hún segir að skoðað verði hversu
mikil áhrif hryðjuverkaógnin hafi á
daglegt líf Norðurlandabúa, en einn-
ig verði skoðaðar alþjóðlegar kann-
anir sem gerðar hafi verið.
Í frétt frá Háskóla Íslands kemur
fram að meginrannsóknarspurning
verkefnisins sé hversu vel lýðræðis-
ríki geti staðið af sér þá ógn sem þau
standa frammi fyrir vegna hryðju-
verka. Í verkefninu verði leitast við
að svara henni með greiningu fyrir-
liggjandi gagna úr fjölþjóðlegum
spurningakönnunum og söfnun
nýrra gagna í þremur rannsóknar-
verkefnum sem hafi eftirfarandi
þemu: „Hefur óttinn við hryðjuverk
það mikil áhrif á borgara að þeir séu
tilbúnir til að fórna borgaralegum
réttindum? Hversu mikil áhrif hafa
lagasetningar gegn hryðjuverkum á
viðhorf fólks til lýðræðis og traust
þess á stjórnvöldum og lögmæti
þeirra? Hver eru tengsl mismunandi
stjórnskipulags og ótta borgara við
hryðjuverk?“
Rannsaka áhrif hryðju-
verkaógnar á líf fólks
HÍ tekur þátt í samnorrænu rannsóknarverkefni
AFP
Norðmenn áttu frumkvæðið Rannsakendur ætla meðal annars að skoða sérstaklega, hvort óttinn við hryðjuverk,
hafi þær afleiðingar, að fólk sé tilbúið til þess að fórna borgaralegum réttindum sínum að einhverju leyti.
Guðbjörg Andrea
Jónsdóttir
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
Við tökum út og þjónustum
kæli- og loftræstikerfi
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu hefur
lokið rannsókn
sinni á máli karl-
manns á fimm-
tugsaldri sem
grunaður er um
gróf kynferðis-
brot gegn börn-
um. Maðurinn
var stuðnings-
fulltrúi hjá Reykjavíkurborg og er
hann grunaður um kynferðisbrot
gegn minnst sjö börnum á tíu ára
tímabili. Málið var sent til embættis
héraðssaksóknara til ákæru-
meðferðar fyrir páska.
Kolbrún Benediktsdóttir vara-
héraðssaksóknari staðfestir við
mbl.is að mál sakbornings sem sæt-
ir gæsluvarðhaldi vegna gruns um
kynferðisbrot gegn börnum hafi
borist embættinu til meðferðar.
Kolbrún segir tólf vikna frest til að
gefa út ákæru renna út í lok næstu
viku, en samkvæmt lögum um með-
ferð sakamála er ekki heimilt að
láta sakborning sæta gæslu-
varðhaldi lengur en í tólf vikur
nema mál hafi verið höfðað gegn
honum eða brýnir rannsóknarhags-
munir krefjist þess.
Þann 21. mars síðastliðinn stað-
festi Landsréttur úrskurð Héraðs-
dóms Reykjaness frá 16. mars um
að maðurinn skyldi sæta gæslu-
varðhaldi til 13. apríl næstkomandi.
Þá hefur einnig verið fenginn dóm-
kvaddur sálfræðingur til að fram-
kvæma sálfræðimat á þroska og
heilbrigðisástandi mannsins, en úr-
lausnarefni matsmanns var að
leggja mat á kynferðislegar lang-
anir og hvatir mannsins, að því er
segir í úrskurði dómsins.
Málið komið til
ákærumeðferðar
Grunaður um mörg kynferðisbrot
Sakamál Maður-
inn er í varðhaldi.
Reiðhjólahjálmur er talinn hafa
bjargað lífi fimm ára gamals barns
þegar óður hundur af tegundinni
Alaska malamute réðst á það. Árásin
átti sér stað í Kópavogi á föstudag-
inn langa. Barnið var bitið illa í andlit
og hendur, en samkvæmt heimildum
mbl.is þurfti meðal annars að sauma
80 spor í andlit þess. Til stóð að lóga
hundinum í gær.
Eigandi hundsins sagði í samtali
við mbl.is að það eina ábyrga í stöð-
unni væri að lóga dýrinu. Fjölskyld-
an vilji ekki hafa hundinn eftir árás-
ina eða gera nágrönnum sínum það
að vera með hann áfram.
Barnið sem hundurinn beit var
flutt á sjúkrahús eftir að hafa komist
sjálft í burtu frá dýrinu. Það liggur
nú á Barnaspítala Hringsins. Gekkst
barnið undir tveggja klukkustunda
langa aðgerð á föstudag hjá lýta-
læknum. Það mun samkvæmt heim-
ildum mbl.is gangast undir aðra að-
gerð í dag. Er barnið með nokkur
bitsár á höndum auk þess sem það
var bitið á milli augnanna.
Ekki fyrsta árás hundsins
Hundurinn var bundinn í langa
keðju fyrir utan heimili nágranna
barnsins þegar árásin átti sér stað.
Var meðal annars í fyrstu óskað eftir
aðstoð lögreglumanna úr sérsveit
ríkislögreglustjóra vegna málsins,
en sú beiðni var afturkölluð skömmu
síðar. Þá hefur dýrið áður ráðist á
póstburðarmann, en í því tilfelli
glefsaði það í fatnað viðkomandi.
Mál sem þetta eru mjög sjaldgæf
að sögn framkvæmdastjóra Heil-
brigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Kópa-
vogs og Garðabæjar. Oftast koma
upp mál sem kalla má ógnun eða
minniháttar árás.
Hjálmur bjargaði
barni frá óðu dýri
Sauma þurfti 80 spor í andlit barnsins
Ljósmynd/Wikipedia
Dýr Ljósmyndin sýnir hund af
tegundinni Alaska malamute.