Fréttablaðið - 27.07.2018, Qupperneq 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur náð ótrúlegum árangri í faginu á
stuttum ferli því hún útskrifaðist
frá matvæladeild Menntaskólans
í Kópavogi í vor. Snædís er 29 ára
og starfar í sumar sem kokkur í
veiðihúsinu í Nesi við Laxá í Aðal
dal. Reyndar er það ein vænlegasta
laxveiðiá landsins og þangað sækja
margir veiðimenn, bæði innlendir
sem erlendir. Snædís segir mikið
ævintýri að starfa í Nesi og hún eigi
örugglega eftir að koma þangað
aftur til að vinna. Síðastliðið ár
hefur hún starfað á Hótel Sögu.
Snædís gekk ekki með kokkinn
í maganum eins og svo margir
aðrir í hennar stétt. Þvert á móti
ætlaði hún aldrei að verða kokkur.
Örlögin tóku þó í taumana þegar
hún kom til Reykjavíkur frá Dalvík,
þar sem hún er alin upp, og hóf
störf á Sushi Samba. Þar vaknaði
áhugi hennar á matargerð.
Skilin eftir á Filippseyjum
Áður en við höldum áfram kokka
spjalli er Snædís spurð hvaðan
útlendi hluti nafnsins hennar
komi. „Ég er fædd á Filippseyjum
og foreldrar mínir eru þaðan,“
svarar hún. „Foreldrar mínir voru
mjög ungir þegar þau eignuðust
mig. Þau fóru í sitthvora áttina.
Þegar ég var tveggja ára kynntist
móðir mín íslenskum manni á
Filippseyjum. Það er gríðarlega
erfitt fyrir konu á Filippseyjum
að vera ein með barn. Aðstæður
hennar voru slæmar og ég kem úr
fátækri fjölskyldu. Lífsbaráttan
var hörð á Filippseyjum. Það var
vissulega stór ákvörðun hjá móður
minni að fylgja manninum til
Íslands í allt aðra menningu og
veðurfar. Hún fór og skildi mig
eftir á Filippseyjum þangað til ég
var fjögurra ára. Móðir mín var þá
gift á Dalvík og hafði eignast son.
Það var mjög erfitt fyrir mig að
koma til Íslands, ég féll ekki inn í
samfélagið og heimilisaðstæður
voru erfiðar. Það endaði fljótlega
með afskiptum barnaverndar sem
flutti mig á fósturheimili þegar ég
var ellefu ára.
Ég flæktist á milli nokkurra
fósturheimila þangað til ég fór í
tíunda bekk. Þá gekk Eyrún Rafns
dóttir félagsmálastjóri í málið og
tók mig inn á sitt heimili. Hún
hafði fylgst með máli mínu frá
upphafi og var formaður barna
verndarráðs. Ég var sannarlega
ekkert ánægð með þessa tilhögun
í upphafi en í dag er ég afskaplega
ánægð, enda er Eyrún og hennar
fjölskylda mitt fólk. Synir Eyrúnar
og manns hennar, Ingvars Arnar
Sigurbjörnssonar, eru bræður
mínir. Blóðmóðir mín býr í næstu
götu og ég held ágætu sambandi
við hana í dag en þannig var það
ekki framan af og sömuleiðis er ég
í góðu sambandi við pabba minn,
Jón. Líf mitt er sem sagt flókið sem
gerði mig svolítið tætta,“ segir
Snædís sem þurfti að taka íslenskt
nafn við komuna til Íslands. „Ég er
heppin að hafa ekki lent á götunni
eða í einhverju rugli og er þakklát
Eyrúnu fyrir það sem hún gerði
fyrir mig.“
Fann föður sinn
Tvisvar hefur Snædís farið til
Filippseyja til að hitta fjölskyldu
sína sem þar er búsett. „Síðast
fór ég í fjóra mánuði árið 2014
til að hitta pabba minn í fyrsta
skipti. Það var svolítið skrítið
að hitta hann loks. Ég leitaði að
honum þegar ég var yngri og fann
hann. Heyrði í honum einu sinni
í gegnum Facebook sem þá var
nýkomin í loftið. Hann fékk lánaða
tölvu hjá vini sínum en átti enga
sjálfur. Frekari samskipti urðu ekki
í það skiptið. Hann er kvæntur og
á fjögur börn. Hins vegar starfar
hann fjarri fjölskyldu sinni í Dubai.
Hann flaug heim til að hitta mig.
Við erum í mjög góðu sambandi í
dag. Hann er duglegur að hafa sam
band og vill helst hitta mig oftar.
Þótt ég skilji smávegis í filipps
eysku er ég feimin að tala málið og
við ræðum frekar saman á ensku.
Pabbi starfar á golfvelli í Dubai en
þangað sækir vel efnað fólk. Hann
þekkir til dæmis vel einn Íslending
sem kemur þar oft,“ segir Snædís.
Hún segir að það hafi verið sér
dýrmætt að heimsækja fæðingar
stað sinn. Eitthvað lá í loftinu sem
hún kannaðist við. „Það var mjög
áhugavert að koma þarna. Maður
fékk auðvitað innblástur í matar
gerð. Eitthvað sem ég gæti nýtt mér
í framtíðinni,“ segir hún.
Kokkurinn heillaði ekki
„Ég ætlaði aldrei að verða kokkur.
Ég fór á listnáms og hönn
unarbraut Verkmenntaskólans á
Akureyri. Vildi læra fatasaum. Ég
var ekki hundrað prósent ánægð
í þessu námi og ákvað að fara til
Reykjavíkur. Meðfram námi á
Akureyri starfaði ég sem þjónn
á sushistað sem er reyndar ekki
lengur til. Ég var mjög forvitin
um það sem fram fór í eldhúsinu,
fylgdist vel með sushigerðinni og
fékk að prófa að gera rúllur sjálf.
Eigandinn bauð mér að lokum að
vera aðstoðarmaður í eldhúsinu
sem gekk mjög vel. Ég vann mig
hratt upp á þessum litla stað. Þegar
ég síðan ákvað að fara til Reykja
víkur benti eigandinn mér á Sushi
Samba og hvatti mig til að fá vinnu
þar. Mér þótti ótrúlega skemmti
legt að vinna þar og kynntist
mörgu góðu fólki. Það var gaman
að mæta í vinnuna og ég varð betri
og betri í sushi gerð. Mikið var
þrýst á mig að fara í kokkinn en ég
sagðist ekki vera á leiðinni þangað.
Ég væri í listnámi og ætlaði síðan í
framhaldsnám til Ítalíu. Einhvern
veginn þróaðist þetta þó út í að
áhuginn á eldhúsinu óx og dafnaði.
Ég hætti korteri í útskrift í fata
saumi og tók mér pásu í eitt ár til
að hugsa málið betur. Þetta var
um svipað leyti og ég var á leið til
Filippseyja að hitta pabba minn.
Það var eiginlega þar úti sem ég
tók ákvörðun um að fara í kokk
anám. Þegar maður brýst út úr
eigin rútínu sér maður betur hvað
mann langar raunverulega mest
að gera. Ég sagði við félaga mína
sem voru með mér að ef ég færi í
kokkanám ætlaði ég að verða ein
af þeim bestu. Það var markmið
mitt frá upphafi,“ segir Snædís og
hefur heldur betur verið trú því
markmiði þar sem hún kvaddi
MK umvafin gjöfum fyrir góðan
námsárangur.
Með landsliðinu
Á meðan Snædís var á starfssamn
ingi ákvað hún að færa sig frá Sushi
Samba yfir á Apótekið til að læra
meira og þaðan fór hún síðan á
Grillið á Hótel Sögu. Þar kláraði
hún námssamninginn. „Ég fann
hvað það gerði mér gott að flakka
á milli staða og ég vildi að ég hefði
prófað fleiri staði á námsárunum.
Maður lærir alltaf eitthvað nýtt á
hverjum stað. Þegar ég var á fyrsta
ári í náminu vildi ég komast í návígi
við bestu kokka landsins. Ég vann
með landsliðskokki og var sífellt
að spyrja hvernig maður kæmist
þangað. Hann bauð mér að koma
og fylgjast með liðinu, ég fékk að
vaska upp, aðstoða smá og horfa á
handbrögðin. Ég fór að mæta á allar
æfingar og fórnaði öllu einkalífi
til að geta verið með landsliðinu.
Smám saman var mér treyst fyrir
fleiri verkefnum sem endaði með
því að mér var loks boðið að vera
með sem fullgildur félagi. Ég var
þó ekki fullgild fyrr en að lokinni
útskrift,“ segir hún. „Næst á dagskrá
hjá okkur er heimsmeistaramótið í
nóvember. Í framtíðinni langar mig
síðan að læra meira í gerð eftirrétta.“
Í veiðihúsinu í Nesi fá veiðimenn
irnir frábæran mat hjá Snædísi.
Hún segir að þeir séu þakklátastir
fyrir mat úr héraði. „Mér þykir ein
staklega skemmtilegt að fara út og
tína jurtir til matargerðar og svo er
fiskurinn og lambið alltaf vinsælir
réttir.
Stefnir hátt
Snædís gælir við að taka þátt í
keppninni um matreiðslumann
ársins. „Það eru nokkrar sterkar
konur sem ætla að taka þátt en það
væri skemmtilegt að vera fyrsta
matreiðslukonan sem næði þeim
titli,“ segir hún. Snædís er í sambúð
með Sigurði Helgasyni keppnis
matreiðslumanni. Hann hefur
meðal annars tekið þátt í Bocuse
d’Or. „Við kynntumst á galadinner
þar sem ég aðstoðaði kokkalands
liðið. Það var ást við fyrstu sýn,“
segir þessi keppnismanneskja sem
á örugglega eftir að ná langt.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Snædís hitti föður sinn í fyrsta skipti fyrir fjórum árum þegar hún heimsótti hann á Filippseyjum. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON
Snædís hefur lagt hart að sér til að
komast í kokkalandsliðið og hún
hefur sett markið hátt.
EITT KORT
34 VÖTN
7.900 kr.
00000
www.veidikortid.is
JÓLAGJÖF VEIÐIMAN
NSINS!
Sölustaðir:
N1 - OLÍS - ÍSLANDSPÓSTUR og veiðivöruverslanir um land allt.
Frí heimsending þegar pantað er á www.veidikortid.is.
Vatnaveiði er fjölskylduvæn útivist.
Börn yngri en 14 ára veiða frítt með
korthafa.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú L Í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
7
9
-A
7
C
C
2
0
7
9
-A
6
9
0
2
0
7
9
-A
5
5
4
2
0
7
9
-A
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K