Fréttablaðið - 27.07.2018, Page 36
Elskuleg frænka okkar,
Guðbjörg Jóhannsdóttir
andaðist 15. júlí 2018.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Þökkum starfsfólki
Hrafnistu í Hafnarfirði (Báruhraun)
fyrir hlýhug og umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Erla Pálmadóttir
Lóa Björg Óladóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð vegna andláts og jarðarfarar
Hauks Bergsteinssonar
Sérstakar þakkir til Líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir góða
umönnun og hlýhug.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ragna Guðvarðardóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Steindórsdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri,
lést laugardaginn 21. júlí.
Útför hennar verður gerð frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 10.30.
Úlfar Hauksson Hólmfríður Andersdóttir
Selma Hauksdóttir Þengill Ásgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Unnur Haraldsdóttir
Eirhömrum 2,
270 Mosfellsbæ,
lést á Líknardeild Landspítalans í
Kópavogi mánudaginn 23. júlí. Útför hennar
fer fram frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 1. ágúst kl. 13.00.
Ásthildur B. Magnúsdóttir Arne Holte
Sigurbjörg B. Magnúsdóttir Gunnar Hreinsson
Helena B. Magnúsdóttir Ólafur Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og
kærleika við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, sonar, föður,
tengdaföður, afa og bróður,
Gunnars H. Haukssonar
Álfholti 20, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Líknardeildar LSH fyrir
einstaka umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Björg Einarsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragna Björgvinsdóttir
frá Kálfsá í Ólafsfirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Dyngju,
Egilsstöðum, 23. júlí.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
fimmtudaginn 2. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á hjúkrunarheimilið Dyngju á Egilsstöðum.
Björgvin Sveinbjörnsson Sigrún Gunnlaugsdóttir
Árni Sveinbjörnsson Elín A.Þ. Björnsdóttir
Sveinbjörn Þ. Sveinbjörnsson
Stefanía Ó. Sveinbjörnsdóttir Sigfús Guttormsson
Hallfríður Sveinbjörnsdóttir Knut Nordbö
Guðrún B. Sveinbjörnsdóttir Stian Ersland
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar kærleiksríki
Filippus Björgvinsson
Sólheimum 25, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
þriðjudaginn 31. júlí kl. 13.00.
Sjöfn Árnadóttir
Selma Filippusdóttir
Björgvin Filippusson Kolbrún J. Gunnarsdóttir
og afabörn.
Kærar þakkir fyrir hlýjar kveðjur og
vinarhug vegna fráfalls og útfarar
Erlu Pálsdóttur
frá Reyni í Mýrdal, til heimilis að
Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Klausturhóla og Heilsugæslustöðvarinnar í Vík fyrir
einstaka aðstoð og umönnun.
Páll Jónsson M. Sigríður Jakobsdóttir
Margrét Jónsdóttir Sigurjón Árnason
Sigurlaug Jónsdóttir Ólafur Helgason
Sveinn Jónsson Jóna Svava Karlsdóttir
Jónatan G. Jónsson Valgerður Guðjónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Jón E. Einarsson
Einar Jónsson Ágústa Bárðardóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ég man vel eftir því þegar pabbi samdi þetta lag. Ég var níu ára þá, og var á sólpalli við sumarhús
í Grundarfirði, rétt utan við bæinn,“
segir Vigdís Vala Valgeirsdóttir um lagið
Í góðu veðri á Grundarfirði sem hún og
faðir hennar, Valgeir Guðjónsson, sungu
nýlega saman í hljóðveri. Lagið er spilað
oft í útvarpi Grundfirðinga þessa viku,
á rásinni FM 103,5, því þar stendur yfir
árleg bæjarhátíð.
Vigdís Vala segir þau feðgin einmitt
vera að syngja saman þegar ég hringi í
hana en er ekkert fúl yfir að vera trufluð.
„Þetta er allt í lagi, við erum bara heima
í stofu hér á Bakkanum,“ segir hún og
upplýsir að þau séu að æfa fyrir tónleika
í Strandarkirkju á sunnudaginn sem
hefjist klukkan 14 og nefnist Sunnan
yfir sæinn breiða. Þar ætli þau að flytja
saman þekkt lög og minna þekkt úr eigin
smiðjum.
Vigdís Vala er 25 ára og er á dokt-
orsstigi í rannsóknasálfræði við HÍ.
Hún kveðst ung hafa byrjað að semja lög
og ljóð. „Ég er samt búin að vera í smá
pásu frá músíkinni eftir að ég byrjaði í
sálfræðinni, en nú er ég farin að blanda
þessu tvennu svolítið saman. Það er mjög
gaman,“ segir Vala sem var með sitt eigið
band þegar hún var um tvítugt.
„Við vorum bara á búllum bæjarins og
ætluðum að taka eitthvað upp saman, en
þá byrjaði ég í sálfræðinni, gítarleikarinn
í verkfræði og trommarinn fór til útlanda
svo ekkert varð af því. Síðan hef ég aðal-
lega fókuserað á skólann en aðeins verið
að troða upp á börum og aðstoða aðra, til
dæmis í bakröddum á nýju Stuðmanna-
plötunni og í Grundarfjarðarlaginu hans
pabba.“ gun@frettabladid.is
Með efni úr eigin smiðjum
Bæjarhátíð Grundarfjarðar er tvítug í ár og í svæðisútvarpinu hljómar lag Valgeirs Guð-
jónssonar Í góðu veðri á Grundarfirði í flutningi hans og dóttur hans Vigdísar Völu.
Valgeir og Vigdís Vala bregða á leik. Þau ætla að syngja saman í Strandarkirkju í Selvogi á sunnudaginn. Mynd/ÁSta
Ég er samt búin að vera
í smá pásu frá músík-
inni eftir að ég byrjaði í sálfræð-
inni, en nú er ég farin að blanda
þessu tvennu svolítið saman.
1896 Tólf læknar og þrír læknanemar sækja fyrsta lækna-
fund á Íslandi, sem haldinn er í Reykjavík og stendur í fjóra
daga.
1898 Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi, sem Oddfellow-
reglan í Danmörku gaf Íslendingum, er vígður með viðhöfn.
1903 Fyrsta kvikmyndasýning í Reykjavík er í Iðnó, er
tveir Norðmenn sýna „lifandi myndir“, meðal annars frá
dýragarði í London, ófriðnum í Suður-Afríku og krýningu
Játvarðs konungs sjöunda.
1929 Jarðskjálfti sem er 6,3 stig á Richter á á upptök sín í
Brennisteinsfjöllum á Reykjanesskaga. Hann finnst í Reykja-
vík, einkum í miðbænum.
Merkisatburðir
2 7 . j ú l í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R16 T í m A m ó T ∙ F R É T T A B l A ð i ð
tímamót
2
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
7
9
-8
F
1
C
2
0
7
9
-8
D
E
0
2
0
7
9
-8
C
A
4
2
0
7
9
-8
B
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K