Fréttablaðið - 10.08.2018, Qupperneq 2
Veður
Hægur vindur eða hafgola og
léttskýjað með köflum, en í inn-
sveitum norðaustanlands má búast
við skúrum á stöku stað síðdegis.
Sunnan 3-8 m/s og heldur meira
skýjað á Suðvestur- og Vesturlandi.
sjá síðu 16
Frelsinu fagnað
Mannlíf „Ég þekki Ísland betur
en Sviss,“ segir hinn 82 ára gamli
Svisslendingur Florian Rutz sem að
öðrum samlöndum sínum ólöstuð-
um er vafalaust einn mesti Íslands-
vinur þeirra allra. Hann er staddur
hér á landi í sinni þrítugustu heim-
sókn en ástarsamband hans við
land og þjóð hófst fyrir rúmum
fjórum áratugum. Síðan þá hefur
hann snúið aftur reglulega og kveðst
hafa séð hér flestallt það sem mark-
vert er að sjá og gott betur á ferða-
lögum sínum.
„Fyrsta heimsókn mín til Íslands
var árið 1975. Þá var ég 39 ára
gamall og átti loks næga peninga
til að ferðast. Það hafði alltaf verið
draumur minn að ferðast á norður-
slóðum. Svisslendingar halda vana-
lega suður á bóginn en Ísland og
Grænland höfðuðu alltaf til mín.
Fólk sagði að ég væri óður að vilja
ferðast til Íslands,“ segir Florian í
samtali við Fréttablaðið sem hitti á
hann í Reykjavík í gær þar sem hann
var að koma úr ferð í Hvalfjörðinn
ásamt leiðsögumanni og hópi sam-
landa sinna.
Florian er bóndasonur úr fjöllum
Sviss þar sem hann ólst upp við
mikla fátækt. Hann segist þó hafa
verið það heppinn að hafa getað
farið í nám og útskrifast sem kenn-
ari, um árabil hafi hann safnað fé til
að geta ferðast á norðurslóðir. En af
hverju að heimsækja Ísland aftur og
aftur? Hvað er það við landið sem
svo heillar hann?
„Ég sá landslagið, eldfjöllin og
jöklana og hafði mikinn áhuga á
þessu. Svo vil ég fara aftur á staði
sem ég þekki,“ segir Florian sem
kveðst aðspurður ekki hafa heim-
sótt neitt annað land jafnoft og
Ísland. Grænland hafi hann heim-
sótt í fjórgang og telur hann að
hann þekki nú betur til á Íslandi en
í heimalandinu.
„Ég hef dvalið hér á Íslandi í 550
daga í það heila og kannski séð
meira af Íslandi en margir Íslend-
ingar. Áður fyrr vorum við mikið í
tjöldum á ferðalögunum og fórum
bara þangað sem veðrið var gott,
mikið um hálendið,“ segir Íslands-
vinurinn Florian og sýnir blaða-
manni kort sem sýnir skrásetningu
hans á dvalarstöðum og ferðalögum
víðs vegar um landið.
Þegar hann starfaði sem kennari
sneri hann svo að eigin sögn ávallt
aftur klyfjaður ljósmyndum til að
sýna nemendum sínum. Þetta ríf-
lega fjögur þúsund mynda safn
hafi, að hans sögn, kveikt áhuga
nemendanna á Íslandi og þeir hafi
margir hverjir heimsótt landið
síðan. mikael@frettabladid.is
Þrítugasta Íslandsför
kennara á níræðisaldri
Sem fátækur bóndasonur í Sviss dreymdi Florian Rutz alltaf um að ferðast um
norðurslóðir. Nú er þessi fyrrverandi kennari á níræðisaldri og að heimsækja
Ísland í þrítugasta sinn. Safnaði sér fyrir sinni fyrstu ferð fyrir fjörutíu árum.
Florian Rutz hefur komið til Íslands þrjátíu sinnum. FRéttablaðið/EyþóR
Ég hef dvalið hér á
Íslandi í 550 daga í
það heila og kannski séð
meira af Íslandi en margir
Íslendingar.
Florian Rutz
PÁSKATILBOÐ
Útsalan er byrjuð
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
112.425
Verð áður 149.900 25-50%
afsláttur
Sjá nánar á grillbudin.is
Opið virka daga 11-18
Laugardag 11-16
stjórnsýsla Framkvæmdir við
nýbyggingar þjóðgarðsins á Þing-
völlum á Hakinu voru í lok maí
komnar um 70 milljónir króna fram
úr kostnaðaráætlun. Sýningarkostn-
aður hækkaði um 30 milljónir.
Einar Á. Sæmundsen þjóð-
garðsvörður fór yfir stöðu fram-
kvæmdanna á síðasta fundi Þing-
vallanefndar sem var 30. maí.
„Framkvæmdir við anddyri eru að
klárast og sýningarsalur í undirbún-
ingi. Hefja á framkvæmdir við hellu-
lögn utanhúss á næstu vikum,“ segir
í fundargerð nefndarinnar.
Helstu skýringar á framúr-
keyrslunni í kostnaðinum eru
sagðar magnbreytingar í steypu
og jarðvegsvinnu, meira eftir-
lit hjá Framkvæmdasýslu ríkisins
og aukinn hönnunarkostnaður
eftir að áætlun lauk.
Þá segir að kostnaður við sýningu
hækki úr 320 milljónum í um 350
milljónir. „Þar koma til viðbætur í
þremur sýningaratriðum, viðbætur
við hljóðvist og frágangur við raf-
magn.“ Þjóðgarðsvörður benti sér-
staklega á að sýningin muni skila
tekjum á næsta ári. – gar
Eitt hundrað milljóna króna
framúrakstur á Þingvöllum
Mikið og gott útsýni er yfir þingvelli
af Hakinu. FRéttablaðið/PjEtuR
saMGÖnGur Bombardier-vél Air
Iceland Connect varð að nauðlenda
á Reykjavíkurflugvelli skömmu eftir
flugtak þegar annar hreyfill vélarinn-
ar stöðvaðist. Lendingin gekk vel og
farþega og áhöfn sakaði ekki.
Vélin var nýfarin í loftið á leið til
Egilsstaða þegar bilunarinnar varð
vart. Farþegum var komið í nýja vél og
flogið á áfangastað. Atvikið er til rann-
sóknar hjá rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa. – jóe
Nauðlenti vegna
bilunar í hreyfli
Mikill viðbúnaður var á Reykjavíkur-
flugvelli. FRéttablaðið/SiGtRyGGuR aRi
Frelsinu var fagnað á opnunarhátíð Hinsegin daga í Háskólabíói í gær; frelsinu til að elska, frelsinu til að ráða yfir eigin líkama, og frelsinu til að láta
drauma sína rætast óháð kynhneigð, kyngervi og kyni. Andrea Gylfadóttir og Hinsegin kórinn sungu Somewhere over the rainbow. Hinsegin dagar
standa þangað til á sunnudaginn og sem fyrr er dagskráin fjölbreytt. Hápunkturinn er sem fyrr gleðigangan á laugardaginn. FRéttablaðið/SiGtRyGGuR aRi
1 0 . á G ú s t 2 0 1 8 f Ö s t u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-8
F
4
C
2
0
8
D
-8
E
1
0
2
0
8
D
-8
C
D
4
2
0
8
D
-8
B
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K