Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 16
Karen vildi
láta gott af sér
leiða og vera
fyrirmynd t.d.
fyrir þá sem eru
enn í skápnum
og ekki tilbúnir
til að koma út.
MYND/
SIGTRYGGUR ARI
Karen er einn þriggja eigenda Studio Portland. Hún segir það ögrandi en um
leið gott að vinna hjá sjálfum sér, ekki síst þegar Hinsegin dagar standa yfir.
Karen segir það hafa verið mikið gæfuspor að kynnast unnustu sinni, Sóleyju.
Hinsegin dagar ná hámarki á morgun með Gleðigöngunni sem endar með glæsilegum
útitónleikum í Hljómskálagarð-
inum. Karen Ósk Magnúsdóttir,
gjaldkeri Hinsegin daga, segir að
undanfarnar vikur hafi verið mjög
annasamar en ótrúlega skemmti-
legar. „Formleg opnunarhátíð
var haldin með pompi og prakt
í Háskólabíói í gærkvöldi en yfir
þrjátíu viðburðir hafa verið á dag-
skrá alla vikuna. Við vonumst til
að sem flestir komi í Hljómskála-
garðinn og njóti dagsins en ætlunin
er að skapa svokallaða Pride Park
stemningu. Fólk getur tekið með
sér teppi, fengið sér að borða,
dvalið í garðinum og hlustað á
frábæra útitónleika þar sem meðal
annars Páll Óskar mun koma fram
ásamt fjölmörgum listamönnum,“
segir Karen glöð í bragði en þetta
er í annað sinn sem Gleðigangan
endar í Hljómskálagarðinum.
Yfirskrift Hinsegin daga að þessu
sinni er baráttugleði en um þessar
mundir fagna Samtökin 78 fjörutíu
ára afmæli. Samtökin 78 hafa um
árabil barist fyrir bættum rétt-
indum og samfélagsstöðu hins egin
fólks og verið í fararbroddi í þeim
efnum. Karen segist vera mjög
þakklát því fólki sem ruddi braut-
ina fyrir allt hinsegin fólk og vill
einnig leggja sitt á vogarskálarnir
í þeim efnum. „Ég vil gefa mitt til
baka og vera fyrirmynd fyrir aðra,
t.d. einhverja sem eru enn ekki til-
búnir til að koma út úr skápnum.
Ég ákvað fljótlega eftir að ég kom
út að vinna sem sjálfboðaliði á
þessum vettvangi og þegar leitað
var að manneskju í stjórn Hinsegin
daga tók ég þeirri ábyrgð fagnandi.
Þetta er mjög skemmtilegt og
gefandi starf. Ég hef kynnst fjölda
manns og vinn með algjörum
snillingum. Það er frábært að vera
innan um hinsegin fólk, fólkið sem
ég tengi svo vel við,“ segir Karen
brosandi.
Fordómarnir mestir hjá
manni sjálfum
Tvö ár eru síðan Karen settist í
stjórn Hinsegin daga en hún segir
að um fjögur ár séu síðan hún
ákvað að taka stóra skrefið og
segja fjölskyldu sinni og vinum frá
því að hún væri lesbía. „Ég kom
út þegar ég var rúmlega þrítug.
Ég var lengi inni í skápnum en
ég vissi í þó nokkurn tíma að ég
væri hinsegin áður ég var tilbúin
að stíga skrefið og koma út. Undir
lokin var það orðið mjög erfitt en
þegar ég steig þetta skref fann ég
fyrir ótrúlega miklu frelsi og mér
leið í fyrsta skipti eins og ég gæti
verið ég sjálf. Fordómarnir eru oft
mestir hjá manni sjálfum og maður
þarf að finna hjá sér hugrekki til
að yfirstíga þá,“ segir Karen. „Mér
fannst ég einhvern veginn hvergi
passa inn og leið ekki nógu vel. Ég
ákvað því að breyta lífi mínu hægt
og rólega og meira í þá átt að vera
ég sjálf. Ég sagði upp vinnunni, fór í
framhaldsnám og síðan sem skipti-
nemi til útlanda en það var mjög
lærdómsríkt.“
Karen segir að þetta hafi verið
ákveðin kaflaskil í lífi hennar sem
voru nauðsynleg fyrir hana. „Ég
flutti til Svíþjóðar að hausti, kom
heim um jólin og sagði foreldrum
mínum að ég væri samkynhneigð.
Hálfu ári seinna kom ég heim og
korteri síðar kynntist ég unnustu
minni, Sóleyju Kristjánsdóttir, en
það er mitt stærsta gæfuspor til
þessa. Ég fékk rosalega góð við-
brögð við því að koma út, miklu
betri en ég var búin að ímynda
mér. Pabbi opnaði meira að segja
kampavín en þau mamma voru
svo glöð fyrir mína hönd. Ég hafði
aldrei átt kærasta og foreldrar
mínir voru eðlilega komnir með
smá áhyggjur af mér og fólki fannst
dálítið skrítið að þrítug kona hefði
aldrei verið með neinn upp á
arminn. Einhverjir pældu örugg-
lega í hvað væri í gangi og sumar
vinkonur mínar grunaði að ég
væri meira fyrir stelpur en stráka.
Ég held samt að það hafi komið
mörgum á óvart að ég væri lesbía
en allir tóku því mjög vel,“ segir
Karen.
Draumurinn var að vinna
sem hönnuður hjá IKEA
Þær Karen og Sóley búa saman í
miðbænum og reka sitt eigið fyrir-
tæki, ásamt Sölva Kristjánssyni,
bróður Sóleyjar. „Við erum með
hönnunarstofu sem heitir Studio
Portland. Við höfum sjálfbærni að
leiðarljósi og kynntum fyrstu vöru-
línuna okkar á HönnunarMars í ár
en hún er að hluta til úr endurunnu
áli, þ.e. úr teljósum. Við erum með
alls konar vörur í þróun og það eru
spennandi tímar fram undan,“ segir
Karen, sem er með BS-gráðu í raf-
magnsverkfræði.
Hún hlær þegar hún er spurð
hvers vegna rafmagnsverkfræðing-
ur hafi ákveðið að opna hönnunar-
stofu. „Frá því að ég var lítil hef ég
haft brennandi áhuga á hönnun og
draumurinn var að fá vinnu sem
hönnuður hjá IKEA. Hins vegar fór
það svo að ég lærði rafmagnsverk-
fræði og rétt fyrir hrun fór ég að
vinna hjá stóru erlendu fyrirtæki
og vann sem verkefnisstjóri yfir
fjárfestingaverkefni í um sex ár. Það
var ofboðslega góður skóli og bæði
lærdómsríkt og gaman. Ég fór svo í
mastersnám í rekstrarverkfræði og
fann þá að mig langaði að breyta til.
Eftir að við Sóley byrjuðum saman
ákváðum við að láta slag standa
og opna okkar eigið fyrirtæki með
Sölva, en við erum öll með ólíkan
bakgrunn og myndum því saman
öflugt teymi. Það er ögrandi að
vinna hjá sjálfum sér en gott að
geta raðað verkefnum og vinnu-
tíma eftir því sem hentar best. Ég
get t.d. hliðrað til í vinnunni vegna
Hinsegin daga en í fyrra vann ég á
hefðbundnum skrifstofutíma og
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ég var lengi inni í
skápnum en ég
vissi í þónokkurn tíma að
ég væri hinsegin áður en
ég var tilbúin að stíga
skrefið og koma út. Undir
lokin var það orðið erfitt
en þegar ég steig þetta
skref fann ég fyrir ótrú-
lega miklu frelsi og mér
leið í fyrsta skipti eins og
ég gæti verið ég sjálf.
Framhald af forsíðu ➛
reyndi að vinna meðfram hátíðinni
og satt að segja var það heldur
mikið álag,“ segir Karen, en allt
starf í sambandi við Hinsegin daga
er unnið í sjálfboðaliðavinnu.
„Við reiðum okkur á styrki og
svo seljum við varning til að standa
undir kostnaði. Hinsegin dagar eru
borgarhátíð og Reykjavíkurborg er
okkar stærsti styrktaraðili, sem við
erum ákaflega þakklát fyrir,“ segir
hún.
Öflug ungliðahreyfing
Karen hefur látið mannréttindi
hinsegin fólks sig varða og m.a.
beitt sér fyrir auknum réttindum
samkynhneigðra foreldra. „Við
Íslendingar erum því miður að
dragast aftur úr öðrum löndum
hvað varðar réttindi hinsegin fólks.
Við höfum alla burði til að vera í
fremstu röð og þetta minnir okkur
á að baráttunni er aldrei lokið,“
segir hún og bætir við að til dæmis
eigi réttindamál transfólks undir
högg að sækja og að víða séu glufur
í kerfinu sem þurfi að laga.
Karen segist þó vera bjartsýn
á framtíðina og nefnir að gaman
sé að sjá hversu öflug ungliða-
hreyfing Samtakanna 78 sé. „Það
er frábært að sjá allt þetta unga
fólk sem er komið út og að það
fái tækifæri til að blómstra á
eigin forsendum. Stundum hugsa
ég hvernig lífið væri ef ég hefði
komið fyrr út, en hver og einn
ákveður sína leið og ég er stolt af
minni,“ segir hún að lokum.
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is, s. 512 5368 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðar-
dóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is,
s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-A
C
E
C
2
0
8
D
-A
B
B
0
2
0
8
D
-A
A
7
4
2
0
8
D
-A
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K