Fréttablaðið - 10.08.2018, Page 18
Súkkulaði er merkilegt fyrir þær sakir að um
99% mannkyns geta borðað það, hver elskar
ekki súkkulaði? Hráefnið er bara ræktað rétt í kring-
um miðbaug jarðar en samt er það í uppáhaldi hjá
flestum jarðarbúum.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
„Sjálfur er ég meir og meir að færa mig yfir í dekkri tegundir af súkkulaði enda finnst mér það betra eftir því sem
það er dekkra,“ segir Stefán Barði Kristjönuson súkkulaðigerðarmaður. MYND/ERNIR
Súkkulaðigerðarmaðurinn Stefán Barði Kristjönuson hefur að eigin sögn alltaf
haft áhuga á mat og matargerð en
þó sérstaklega súkkulaði, enda sé
það einstaklega skemmtilegt og
fjölbreytt hráefni sem hægt sé að
leika sér mikið með. „Súkkulaði
er merkilegt fyrir þær sakir að um
99% mannkyns geta borðað það,
hver elskar ekki súkkulaði? Hrá-
efnið er bara ræktað rétt í kringum
miðbaug jarðar en samt er það í
uppáhaldi hjá flestum jarðarbúum,
hvort sem þeir búa við miðbaug
eða heimskautsbaug. Sjálfur er
ég meir og meir að færa mig yfir í
dekkri tegundir af súkkulaði enda
finnst mér það betra eftir því sem
það er dekkra.“
Hugmyndin að eigin súkku-
laðigerð kviknaði í berjamó fyrir
nokkrum árum. „Í kjölfarið ákvað
ég að kaupa litla vél og las mér til
um súkkulaðigerð. Alveg frá byrjun
hef ég verið að vinna mikið með
dökkt súkkulaði og það er í raun
alltaf að aukast. Framleiðsla mín
hefur alltaf verið smá í sniðum og
gerð í litlum skömmtun til að ná
fram sem bestum gæðum. Ég sel
súkkulaðið mitt í verslun minni
á Laugavegi og í ýmsum sérversl-
unum.“
Hann segir súkkulaðismekk
landsmanna hafa þroskast jafnt
og þétt undanfarin ár og þar sé
dökkt súkkulaði alltaf að sækja á.
„Einnig finnst mér margir farnir að
leita meira í súkkulaði með salti
en súkkulaði og salt fer mjög vel
saman auk þess sem hreint súkku-
laði er alltaf klassískt.“
Best með mjólk
Sjálfum finnst honum ísköld mjólk
passa best með góðu súkkulaði.
„Margir spyrja mig hvaða súkku-
laði er gott að borða með góðu
rauðvíni en það getur verið erfitt
að para þessa tvo hluti saman.
Helst þarf að passa að vínið sé
aðeins sætara en súkkulaðið. Einn-
ig fer 60% eða 70% súkkulaði mjög
vel með portvíni eða Madeira.“
Hann stendur í stöðugri til-
raunastarfsemi í súkkulaðigerðinni
og segist þar helst vilja nota eins
mikið íslenskt hráefni og hægt
er. „Það er þó ekki alltaf í boði en
ég held þó áfram að reyna. Síðast
var ég t.d. að prófa mig áfram með
súkkulaði sem innihélt tólf ára
gamalt balsamikedik.“
Hér gefur Stefán lesendum
uppskrift að einföldum en afar ljúf-
fengum blóðbergstrufflum.
Blóðbergstrufflur
500 g 70% súkkulaði
400 ml rjómi
30 ml hunang
50 g smjör við stofuhita
1 msk. íslenskt blóðberg
Hitið rjóma að suðu (ekki sjóða)
með blóðberginu út í. Brjótið
niður súkkulaði og setið í skál með
smjörinu og hunanginu. Hellið
síðan heitum rjómanum yfir í
gegnum sigti til að skilja blóð-
bergið frá og hrærið vel. Látið
kólna inni í ísskáp í u.þ.b. tvær klst.
Mótið síðan litlar kúlur og stráið
kakódufti yfir. Geymist í þrjá daga
í ísskáp.
Hugmyndin
kviknaði í
berjamó
Eftir góðan dag í berjamó kviknaði
áhugi Stefáns Barða á súkkulaðigerð. Í
dag framleiðir hann og selur alls kyns
súkkulaði með ólíkum bragðefnum.
Honum finnst ísköld mjólk passa best
með góðu súkkulaði.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is
HEILSURÆKT
Veglegt sérblað Fréttablaðsins
u heilsurækt kemur út 24. ágúst nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . áG ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-C
0
A
C
2
0
8
D
-B
F
7
0
2
0
8
D
-B
E
3
4
2
0
8
D
-B
C
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K