Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 24
Síðustu þrjú tímabil
hefur Mahrez skor-
að 35 mörk og gefið 24
stoðsendingar í ensku
úrvalsdeildinni.
Torreira er fyrsti
Úrúgvæinn sem
leikur með Arsenal.
Jorginho
26 ára
MiðJuMaður
Ítali
Landsleikir/mörk: 8/0
Keyptur á 50,4 milljónir punda frá
Napoli
Jorginho var fyrsti leikmaðurinn sem Maurizio Sarri keypti sem knattspyrnustjóri
Chelsea. Manchester City hafði
áhuga á Jorginho en það kom lítið
á óvart að hann skyldi enda hjá
Chelsea enda þjálfaði Sarri hann
hjá Napoli.
Hinn 26 ára gamli Jorginho var
lykilmaður í stórskemmtilegu liði
Napoli undir stjórn Sarri. Hann
er leikstjórnandi í anda Andreas
Pirlo, leikur fyrir framan vörnina
og er nokkurs konar taktmælir í
spilinu. Á síðasta tímabili gaf hann
að meðaltali 96,9 sendingar í leik
sem var það langmesta í ítölsku
úrvalsdeildinni. Næstum því 90%
sendinga hans rötuðu á samherja.
Sarri hefur breytt leikstíl Chelsea
og Jorginho er lykilmaður í því
breytingaferli. Miðað við frammi
stöðu hans í leiknum gegn City um
Samfélagsskjöldinn þarf hann þó
tíma til að aðlagast enska bolt
anum. Þar fær hann ekki sama tíma
með boltann og hann fékk á Ítalíu.
Jorginho er ekki mikill varnar
maður en ætti að njóta góðs af því
að spila með hinum sívinnandi
N’Golo Kanté.
Jorginho er fæddur í Brasilíu en
fluttist til Ítalíu þegar hann var 15
ára. Hann er ítalskur ríkisborgari
og hefur leikið átta leiki fyrir ítalska
landsliðið. Jorginho hóf ferilinn hjá
Verona en gekk í raðir Napoli 2014.
Taktmælirinn sem Sarri tók með sér frá Napoli
riyad Mahrez
27 ára
KaNTMaður
Alsíringur
Landsleikir/mörk: 39/8
Keyptur á 60 milljónir punda frá
Leicester
Eftir nokkrar árangurslausar tilraunir til að komast frá Leicester City varð Riyad
Mahrez loks að ósk sinni þegar
Manchester City keypti hann fyrir
metverð í sumar.
Mahrez gerði gott mót hjá Leic
ester. Hann var valinn leikmaður
ársins þegar Refirnir urðu óvænt
Englandsmeistarar tímabilið 2015
16. Þá skoraði Mahrez 17 mörk í
ensku úrvalsdeildinni og gaf 11
stoðsendingar. Tímabilið 201617
var ekkert sérstakt hjá Alsíringnum
en hann var öflugur síðasta vetur.
Hann skoraði þá 12 mörk og lagði
10 upp til viðbótar.
City hafði mikla yfirburði í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og
sló fjölmörg met á leið sinni að Eng
landsmeistaratitlinum. City skoraði
m.a. 106 mörk. Sóknarleikurinn var
því í góðu lagi og hann veikist ekk
Enn eitt vopnið í vopnabúri meistaranna
Lucas Torreira
22 ára
MiðJuMaður
Úrúgvæi
Landsleikir/mörk: 8/0
Keyptur á 26,5 milljónir punda frá
Sampdoria
Stuðningsmenn Arsenal vonast til að Lucas Torreira sé varnarsinnaði miðjumaður
inn sem félagið hefur leitað að án
árangurs í rúman áratug. Margir
hafa reynt sig í þessari stöðu en
enginn verið nógu sannfærandi.
Hinn smávaxni Torreira var
keyptur fyrir 26,5 milljónir frá
Samp doria þar sem hann vakti
mikla athygli fyrir góða frammi
stöðu, sérstaklega á síðasta tímabili.
Í vikunni var greint frá því að
Luis Suárez, samherji Torreira
í úrú gvæska landsliðinu, hefði
hvatt hann til að ganga til liðs við
Arsenal. Torreira lék sinn fyrsta
landsleik í mars og kom við sögu í
öllum fimm leikjum Úrúgvæ á HM
í Rússlandi.
Hinn 22 ára gamli Torreira er
óþreytandi og grimmur miðju
Er týndi hlekkurinn loksins fundinn?
Jorginho verður
mikilvægur
hlekkur í liði
Chelsea í vetur.
NordiCphotos/
Getty
riyad Mahrez lyftir samfélagsskildinum eftir sigur Manchester City á Chelsea á sunnudaginn. NordiCphotos/Getty
ert við komu hins 27 ára Mahrez.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri
City, hefur úr mörgum góðum leik
mönnum að velja og Mahrez þarf
að berjast fyrir mínútunum sínum
hjá Manchesterliðinu. Það er
annar veruleiki en hjá Leicester þar
sem hann var aðalmaðurinn.
Mahrez líður best á hægri kant
inum þar sem hann getur komið
inn á völlinn og sveiflað sínum
frábæra vinstri fæti. Alsíringurinn
er gríðarlega leikinn og erfiður
viðureignar þegar hann er í stuði.
Hann gæti náð nýjum hæðum
undir stjórn Guardiola.
maður sem er duglegur að vinna
boltann. Þrátt fyrir að vera helst
þekktur fyrir góðan varnarleik er
Torreira með fínar sendingar og
skilar boltanum ágætlega frá sér.
Torreira er dýrasti leikmaðurinn
sem Arsenal keypti í sumar og
hann verður í stóru hlutverki hjá
Skyttunum á tímabilinu. Arsenal
stendur á tímamótum enda með
nýjan mann í brúnni í fyrsta sinn í
22 ár. Unai Emery, nýr knattspyrnu
stjóri Arsenal, vill að bakverðirnir
taki virkan þátt í sóknarleiknum og
því mæðir mikið á Torreira að loka
þeim svæðum sem þeir skilja eftir
sig þegar þeir fara fram á völlinn. Lucas torreira er ætlað að styrkja varnarleik Arsenal sem var slakur á síðasta tímabili. NordiCphotos/Getty
6 KyNNiNGArBLAÐ 1 0 . áG Ú s t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U ReNsKi BoLtiNN
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-9
4
3
C
2
0
8
D
-9
3
0
0
2
0
8
D
-9
1
C
4
2
0
8
D
-9
0
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K