Fréttablaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 28
Fæst í
apótekum
heilsubúðum og
heilsuhillum
verslana
Er hárið farið
að þynnast?
25,5x10 hair gro hvítt.pdf 1 08/06/2018 13:03
Síðustu áratugir hafa verið erfiðir stuðningsmönnum Liverpool en aðeins einn
titill hefur unnist undanfarin tólf
ár. Eru stuðningsmenn félags-
ins þyrstir í að sjá félagið fara að
vinna titla og þar er einn efstur
á lista. Enski meistaratitillinn.
Titill sem Liverpool hefur verið að
eltast við í 28 ár og komist nálægt
því að landa en þegar á hólminn
er komið hefur tækifærið runnið
úr greipum þeirra.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, hefur fengið nokkuð
greiðan aðgang að fjárhirslum
félagsins á þessu ári og er kominn
tími á að hann fari að skila titlum
til Bítlaborgarinnar.
Klopp er að hefja sitt þriðja
heila tímabil hjá félaginu og
nálgast þrjú ár sem knattspyrnu-
stjóri Liverpool eftir að hafa tekið
við af Brendan Rodgers haustið
2015. Með Klopp komu miklar
væntingar enda hafði honum
áður tekist að stýra Dortmund
til sigurs í þýsku deildinni tvö ár
í röð og í úrslit Meistaradeildar
Evrópu þrátt fyrir að hafa aðeins
brotabrot af fjármagninu sem lið
á borð við Bayern München hafði.
Sömu vandræði héldu áfram
Tókst honum að kaupa leikmenn
og gera þá að stjörnum á sama
tíma og liðið hans spilaði stór-
skemmtilegan fótbolta á leið sinni
í átt að tveimur meistaratitlum og
einum bikarmeistaratitli.
Þrátt fyrir að honum
hafi tekist að láta Liver-
pool spila skemmti-
legan fótbolta voru
sömu vandamál að
hrjá liðið og hafa gert
allt frá því að Rafa
Benitez yfirgaf félag-
ið árið 2010. Allan
stöðugleika skorti
í varnarleikinn og
þar fyrir aftan voru
markmenn sem
voru alltaf líklegir
til að gera afdrifa-
rík mistök líkt
og sást bersýni-
lega í úrslitum
Meistaradeildar
Evrópu í vor.
Engar afsakanir, herra Klopp
Liverpool styrkti leikmannahópinn hvað mest í sumar og mætir með sterkt lið sem er tilbúið að
gera atlögu að titlum. Stuðningsmenn félagsins hafa beðið í 28 ár eftir þeim stærsta á Englandi.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Liverpool að Naby Keita og Mohamed Salah nái vel saman í vetur. Miklar væntingar eru gerðar til Sal
ah eftir að hann bætti markametið í ensku úrvalsdeildinni í vor en varnarmenn munu hafa góðar gætur á honum. NordicPhotoS/gEtty
Setti Liverpool ný viðmið þegar
kom að kaupum á varnarmanni í
janúar síðastliðnum þegar félagið
greiddi stórfé, 75 milljónir punda,
fyrir Virgil Van Dijk, hollenska
miðvörðinn frá Southampton.
Klopp einblíndi á að fá Van Dijk
og engan annan og fékk það í
gegn en hann kom með meiri ró í
varnarleik liðsins.
Stefnan sett á titilinn
Í sumar fékk hann aftur að
styrkja leikmannahópinn og
sækja leikmenn sem hann var
með efsta á óskalista. Ekki
þurfti að sætta sig við plan-B
þetta árið. Aftur fékk hann að
kaupa dýrasta mann heims-
ins í sinni stöðu, brasilíska
markvörðinn Alisson Becker
þótt Chelsea hafi bætt það
met skömmu síðar. Þar að
auki komu varnarsinnaði
miðjumaðurinn Fabinho og Naby
Keita inn fyrir tæpar hundrað
milljónir punda samanlagt. Bætti
hann að lokum aukavopni við
sóknarleikinn, Xherdan Shaqiri, á
góðu verði frá Stoke. Spurningin
er hvort honum takist að fá meiri
stöðugleika út úr svissneska kant-
manninum sem hefur átt kafla-
skiptan feril.
Í heildina hefur Klopp eytt
rúmum 230 milljónum punda til
að styrkja leikmannahópinn á
þessu ári og fengið fjóra heims-
klassa leikmenn í sínar raðir.
Salan á Philippe Coutinho til
Barcelona fyrir 140 milljónir lagar
ársreikninginn en það er ekk-
ert launungarmál að búið er að
styrkja hópinn til að gera atlögu
að meistaratitlinum.
Liverpool með þennan hóp
ætti að teljast tilbúið í baráttuna
um titilinn við ríkjandi meistara
Manchester City og hvaða félag
sem er sem blandar sér í baráttuna
í ár. Í ár ætti Liverpool ekki að
hafa neinar afsakanir, það er kom-
inn tími til að setja nýja bikara
upp í hillurnar á Anfield sem hafa
safnað ryki í of langan tíma að
mati stuðningsmannanna.
Aðeins Manchester
City (106) skoraði
fleiri mörk en Liverpool í
fyrra.
Klopp hefur ekki tekist
að vinna bikar fyrstu
þrjú árin hjá Liverpool.
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@frettabladid.is
10 KyNNiNgArBLAÐ 1 0 . ág ú S t 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RENSKi BoLtiNN
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
D
-A
C
E
C
2
0
8
D
-A
B
B
0
2
0
8
D
-A
A
7
4
2
0
8
D
-A
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K