Fréttablaðið - 10.08.2018, Side 41
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
10. ágúst 2018
Tónlist
Hvað? Daníel Friðrik og Megas
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Daníel Friðrik og Megas stíga á
svið í Mengi. Efni þessara hljóm-
leika er ný og eldri lög sem ekki
hafa birst alþýðu manna með
einum eða öðrum hætti. Þessi lög
hafa ekki verið réttu lögin á þetta
eða hitt prógrammið eða líkt og
fallið milli skips og bryggju, orðið
útundan án þess að hafa nokkuð
til þess unnið. Húsið opnað kl.
20.30. Tónleikarnir hefjast kl.
21.00. Miðaverð: 3.000 krónur.
Hvað? Pride-tónleikar Hinsegin
kórsins
Hvenær? 18.00
Hvar? Fríkirkjan
Hinsegin kórinn efnir til tónleika í
tilefni Hinsegin daga. Kórinn hefur
á undanförnum árum getið sér
afar gott orð fyrir góðan söng og
skemmtilega framkomu en hann
syngur undir stjórn tónlistarkon-
unnar Helgu Margrétar Marzellí-
usardóttur. Miðaverð í forsölu: 2.500
kr., verð við innganginn: 3.000 kr.
Hvað? Alchemia, Exile Og Premium
Hvenær? 23.00
Hvar? Íslenski rokkbarinn
Föstudaginn 10. ágúst verður
sjabbalabba smarties rokk/metal
veisla á Íslenska rokkbarnum
þegar Alchemia og Exile og
Premium koma þar fram. Kostar
500 krónur inn.
Hvað? Jóhanna Guðrún og Sverrir
Bergmann ásamt hljómsveitinni
Albatross
Hvenær? 20.00
Hvar? Sigtúnsgarðurinn
Stærstu tónleikar ársins verða á Sel-
fossi föstudaginn 10. ágúst. Húsið
opnað kl. 20.00 og hefjast tón-
leikarnir stuttu eftir það. Svo tekur
Ingó Veðurguð við mæknum strax
að loknu giggi og heldur stuðinu
áfram! Miðasala fer fram dagana
7.-9. ágúst fyrir utan Bónus frá kl.
17.00-18.00 og kostar 2.500 í for-
sölu og 3.500 við innganginn.
Hvað? Harmóníkudansleikur
Hvenær? 2 0.00
Hvar? Skálakot
Haldinn verður harmóníkudans-
leikur á pallinum í Skálakoti. Áætl-
anir gera ráð fyrir að dansleikurinn
hefjist klukkan 20.00 og standi
til klukkan 22.00. Leikin verður
kraftmikil og fjörug harmóníku-
tónlist undir berum himni og
gömlu dansarnir dansaðir af kappi
undir styrkri stjórn Önnu Birnu
Þráinsdóttur dansstjóra. Hvetjum
við áhugasama að panta sér borð í
tíma á info@skalakot.is.
Viðburðir
Hvað? Stella í orlofi – föstudags-
partísýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís
Hin ógleymanlega Stella í orlofi
fjallar um Stellu og baráttu hennar
við geðilla karla, tryllt börn, alkó-
hólista, flugmenn, Lionsklúbbinn
Kidda, danskar drósir og laxeldi.
Myndin er nú komin á stafrænt
form, rúmlega þrjátíu árum eftir
frumsýningu.
Hvað? Lord of the Rings – The Two
Towers
Hvenær? 19.30
Hvar? Harpa
Óskarsverðlaunamyndin Lord
of the Rings – The Two Towers
– (Hringadróttinssaga – Tveggja
turna tal) verður sýnd í fullri lengd
í Eldborgarsal Hörpu ásamt stórri
sinfóníuhljómsveit, einsöngv-
urum og kórum. Tónlist og söngur
myndarinnar, eftir eitt virtasta
kvikmyndatónskáld samtímans,
Howard Shore, verður flutt lifandi
undir þessari frábæru kvikmynd
sem af mörgum er talin vera eitt
besta verk kvikmyndasögunnar.
Athugið, myndin er ekki við hæfi
barna undir 12 ára aldri
Hvað? KakóRó
Hvenær? 17.30
Hvar? Skólahúsið Borðeyri
Verið hjartanlega velkomin í
KakóRó á Borðeyri, einu fámenn-
asta þorpi Íslands, þar sem við
róum líkama, huga og sál með
hugleiðslu, öndunaræfingum, tón-
ferðalagi og djúpri slökun. Skóla-
húsið er á Borðeyri, 500 Stað.
Hvað? Act alone
Hvenær: 17.00
Hvar: Suðureyri
Annar dagur hinnar einstöku lista-
hátíðar Act alone á Suðureyri hefst
með opnun myndlistarsýningarinn-
ar Compassion planet sem fer fram
á ganginum í sundlaugarparadís
þorpsins. Kvelddagskráin hefst með
einleiknum Pain Tapestry í félags-
heimilinu kl. 19.00. Næst verður
boðið upp á danssýninguna FUBAR
sem hefst kl.20.30. Diskóið tekur
svo öll völd kl. 22.00 þegar engin
önnur en Helga Möller stígur á svið.
Ókeypis er á alla viðburði Act alone,
já allt ókeypis, bara mæta.
Námskeið
Hvað? Klappstýrunámskeið
Hvenær? 16.30
Hvar? Primal Iceland, Faxafeni 12
Ert þú meðal þeirra sem fyllast
spenningi yfir bíómyndum þar
sem klappstýrur mynda svimandi
píramída, stökkva upp í hendur
félaga sinna og kastast niður í
kollhnís? Þá ættir þú að athuga
spennandi námskeið sem finnski
klappstýruþjálfarinn Ismo Kor-
honen býður í samstarfi við Húlla-
dúlluna og Akró Ísland helgina
9.-11. ágúst. Á námskeiðinu kennir
Ismo grunnatriði klappstýru-
trixa, kennir akrótrix fyrir smærri
og stærri hópa og kynnir okkur
klappstýruheiminn.
Megas og Daníel Friðrik halda tónleika í Mengi í kvöld. Fréttablaðið/anton brink
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
KOLEOS
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn
og sparneytinn.
Renault Koleos, verð frá: 5.590.000 kr.
Staðalbúnaður í Koleos er m.a.: Virkur neyðarhemlunarbúnaður, Akreinavari, umferðarskiltaskynjun með viðvörun, aðalljós sem beygja um leið og beygt er,
LED stöðuljós með „Follow Me Home“ búnaði, leiðsögukerfi með Íslandskorti, R-Link margmiðlunarkerfi, Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin í reynsluakstur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
0
R
e
n
a
u
lt
K
o
le
o
s
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
m e N N i N g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21F Ö S T U D A g U R 1 0 . á g ú S T 2 0 1 8
1
0
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
D
-B
1
D
C
2
0
8
D
-B
0
A
0
2
0
8
D
-A
F
6
4
2
0
8
D
-A
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K